Ófeigur - 15.07.1947, Side 59
ÓFEIGUR
59
Jón á Akri hagaði svo forustu á þingi, að málið gat
hiotið afgreiðslu, þrátt fyrir annir í þinglok. Pétur
Magnússon hélt í þessu máli úrslitaræðu, um að fjár-
skiptin jmðu, eins og nú væri komið, að verða bjargráð
bænda, og greiddi atkvæði með fjárveitingunni, þó að
hún væri stór og utan fjárlaga. Gistivinum mínum
sóttist seint róðurinn. Þegar atkvæðagreiðsla tók að
nálgast, fóru Eysteinn og Steingrímur búnaðarmála-
stjóri út og bjuggu sig undir sigurvagnaræður á þing-
eyska pestarsvæðinu. Framganga þingforsetans og ráð-
herrans bjargaði málinu fyrir hálfa Þingeyjarsýslu og
myndaði fordæmi. Nú vildu svo að segja allir bændur
milli Blöndu og Héraðsvatna skipta í haust, þó að þeir
yrðu fjárlausir í eitt ár. Sækja að þessum mönnum
báðar karakúlpestirnar og er aðstaða þeirra hin erfið-
asta. Nú hefur einn af leiðtogum Framsóknar völdin í
búnaðarmálunum. En þá er áhugi norðlensku bænd-
anna virtur að vettugi og þeir beðnir að gæta vel beggja
pestanna, sem tveir af ráðunautum Búnaðarfélagsins
hafa útvegað bændastéttinni. Nú bitnar sofandaháttur-
inn á kjósendum búnaðarmálastjóra. Hann hefði allra
hluta vegna átt að leyfa Eysteini að vera einum í sigur-
vagnaferðinni til Þingeyinga, þegar búið var, á vordög-
um í fyrra, að bjarga hálfri sýslunni úr þeim mesta
vanda, sem framhleypni og ræfildómur Ásgeirs L. og
Páls Zóph. hafa leitt yfir íslenzkar sveitir.
# # #
Þingeyjarsýsla er eina héraðið á landinu þar sem
skipt hefir verið um allan fjárstofn bænda. Er sýslunni
skipt, af öryggisástæðum í f jögur gæzlusvæði, aðgreind
með girðingum. Veturinn ’46-47 kom sýkin uppíminnsta
hólfinu, Reykdælahreppi, en þar hefur gistivinurinn
Björn á Brún mannaforráð. Ef ekkert var aðgert, máttu
allir vita að pestin bærist á skömmum tíma um hólfið
og síðan í allar áttir um sýsluna, og þaðan til annarra
héraða. Var þá undirbúin landauðn í Þingeyjarþingi
og bændur í öðrum fjárræktarsveitum sviptir öllum
skynsamlegum vonum um framtíð í sambandi við ís-
lenzkan landbúnað. Hér var líkt ástatt og þegar eldur
kemur upp í stóru timburhúsahverfi í hvassviðri og
öll byggðin virðist vígð loganum, ef ekki kemur skjót
hjálp. Á sýslufundi Þingeyinga í vetur var það einhuga
krafa allra fulltrúa, nema eins, að öllu fé í hinu sýkta