Ófeigur - 15.07.1947, Side 61
ÓFEIGUR
61
kommúnista. Þótti honum þess vegna máli skipta að
þess háttar þingfulltrúi yrði kosinn í Þingeyjarsýslu í
fyrravor. Lagði hann sig mjög í framkróka að efla
Björn á Brún til þingmennsku. Fór Einar með Birni
um alla Svalbarðsströnd og Höfðahverfi, í því skyni
að segja Birni, hvað bæirnir heita, því að hann bar
hvorki kennsl á mennina eða þeirra málefni. Nú hefur
Einar séð, sér til sárrar hryggðar, að sá maður sem
hann hafði treyst var á góðum vegi að sleppa pestinni
lausri á Eyfirðinga og hindra sauðfjárbúskap í þeim
byggðum, þar sem búið var að bjarga fólkinu með
forgöngu þeirra manna, sem kunna betur en gistivinir
að leysa vandamál almennings.
# *
Eysteinn Jónsson hefur látið Tímann fræða lesendur
sína á því, að ég hafi spillt fyrir, að fólk utan Reykja-
víkur fengi stuðning af skemmtanaskattinum til að reisa
samkomuhús. Hið sanna er, að meðan Eysteinn var í
ómegð, átti ég þátt í að skemmtanaskatturinn væri lát-
inn ganga til að gera virðulegt samkomuhús í Reykjavík.
Lög um þetta efni voru samþykkt á fyrsta þingi eftir að
ég varð þingmaður. Hefir skatturinn að nokkru leyti
gengið til að reisa í höfuðstaðnum fullkomnasta mann-
fundahús, sem byggt hefur verið á íslandi. Þegar ég
sá í vetur sem leið, að áður en langt um liði, mundi
leikhúsið verða fullgert, bar ég fram tillögu um að sjóðn-
um, öllum, yrði framvegis varið til að styðja byggingu
samkomuhúsa í kaupstöðum kauptúnum og sveitum.
Tilgangurinn að um allt land yrði reist, með þessum
stuðningi a. m. k. eitt myndarlegt samkomuhús í hverju
bæjar og sveitarfélagi. Öll þjóðin hafði hjálpað Reykja-
vík til að leysa sinn vanda. Á sama hátt átti höfuðbær-
inn að muna eftir þörf annarra. Þegar Eysteinn var
orðinn ráðherra án verulegrar þekkingar á andlegum
málum, vildi hann gera sér tvennt til frægðar: Búa til
og veita sjálfur 30—40 embættisstöður við leikhúsið í
Reykjavík og taka nokkuð af skattinum, en alltaf minna
en helming, til fundarhúsa fyrir ýmiskonar skemmti-
félög. Frægð Eysteins í þessu máli er sú, að hann vill
þjóðnýta leikarana í Reykjavík að rússneskum sið, þó
að til þess þurfi að verja mörgum hundruðum þúsunda
árlega, í ofanálag á það, sem stórbyggingin gefur af sér.
Að líkindum hefur Eysteinn ekki vitað, að ríkisrekin: