Ófeigur - 15.07.1947, Síða 71
ÓFEIGUR
71
vík að taka þessar lóðir við Viðeyjarsund til þarfa út-
gerðarmanna í bænum, sem hafa í þeim efnum hvergi
höfði sínu að að halla. Var þá sýnilegt, að ekki mundi
verða úr flutningi skólans, enda voru gamlir nemendur,
og þeir eru margir áhrifamenn, mjög mótfallnir um-
ræddri breytingu, sem auk þess hefði orðið mjög kostn-
aðarsöm fyrir nemendur og aðstandendur þeirra í bæn-
um. Er þess vegna lagt til, að hér verði tekið á málinu
með nokkurri forsjá: Gamli skólinn notaður um ófyrir-
sjáanlega langan tíma, en bætt við nýjum byggingum
ofanvert við skólahúsið, kennslustofum, rannsóknarstof-
um, vinnustofum, íþróttasölum, bókasöfnum og nauð-
synlegum íbúð um fyrir kenara og starfslið skólans.
Aths. Þegar Brynjólfur bolvíkingur hafði flækt sig og rektor
í 15 milljóna byggingarráðagerðum, en vantaði jörð til að standa
á, flutti ég þessa tillögu. Fáum dögum síðar brann allmikið af
gömlu húsunum á hinum umræddu lóðum. Bjuggust nú flestir
við, að menntamálastjórnin og fjárveitinganefnd myndu grípa
tækifærið og samþykkja eignamámsheimild samkvæmt þessari
tillögu. En hlutaðeigendur sváfu fast og sofa enn. Búið er að
endurbyggja brunahúsin. Síðar verða þessi hús og lóðirnar keypt-
ar fyrir margfalt verð handa skólanum, þegar forráðamenn
menntamálanna hafa reynt allar ófæru leiðimar og em komn-
Ir ofan á jörð og famir að beita heilbrigðri skynsemi.
Afgreiðslum.: Helgi Lámsson, Vesturg. 5, Reykjavík. Sími 5677.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jónas Jónsson, frá Hriflu.
Prentað í Steindórsprenti h.f., Tjamargötu 4, Reykjavik.