Ófeigur - 15.08.1951, Side 8
8
ÖFEIGUR
allt framleiða mikið og á ódýran hátt. Þegar ísland
fer að keppa við Dani og Ástralíumenn á stórborga-
markaði í álfunni með góðar og ódýrar mjólkuraf-
urðir, þá mun þurfa að athuga slóð Guðjóns í Gufudal
og hinna stórbændanna, sem eru með amerískum áhöld-
um og amerískri tækni að endurnema landið. Hitt er
annað mál, að ef tveir piltar hirða 60 kýr í Gljúfur-
holti, þá líta þeir ekki á sig sem tilvonandi stórbænd-
ur heldur sem launaþræla með fimm daga vinnuviku
og engum varanlegum tengslum við sveitina. Flest
starfsfólkið á Korpúlfsstöðum gerðust bolsivikar, alveg
eins og verksmiðjufólk í borgum. Hin stóru, véliðju-
bú í sveitunum eru merkilegur áfangi í þróun atvinnu-
lífsins hér á landi. Þau eru mikil framfarafyrirtæki.
Þau stórauka framleiðsluna, en þau bæta einu mann-
félagsvandamáli við hin, sem fyrir voru.
Enn hefur ekki verið minnzt á tvö nýtízku stórbýlí
í Árnessýslu, Laugardæli og Laugarvatn, og þó eru
þau sérstaklega merkilegir áfangar í búnaðarsögunni.
Þegar Egill Thorarensen keypti Laugardæli fyrir kaup-
félagið á Selfossi, þá voru þau kaup ekki sérlegt gleði-
efni fyrir suma góða bændur í sýslunni. Þeim fannst
óþarfi, að láta þeirra eigin félag vera að keppa við
einstaka félagsmenn um þröngan markað. Nú er þetta
viðhorf breytt. Kaupfélagið hefir ræktað feikna stórt
tún á Laugardælum. Þar er stórbú. Stórgripirnir eru
hundrað, mest nautgripir og nokkuð af hestum. Þar
eru að jafnaði hundrað svín. Hér er um að ræða stór-
felldan búrekstur og samsvarandi jarðabætur. Þar að
auki var nægilegur jarðhiti í Laugardælum til að hita
allt Selfoss-kauptúnið. Sú framkvæmd sparar þjóðinni
ótaldar milljónir á ókomnum öldum, en það er önnur
saga. Nú vilja Árnesingar fá Laugardæli eins og jörðin
er orðin, með hinni miklu jarðrækt og húsabótum, til
að hafa þar kynbótabú, fyrst og fremst til að fullrækta
stofn mjólkurkúnna. Þó að þingið og landstjórnin verði
ef til vill ekki áhugasöm úm þá framkvæmd, mun það
ekki stöðva málið. Árnesingar skilja fullvel, að hin
mikla ræktun þar og annarsstaðar gerir óhjákvæmi-
legt að tryggja að bústofninn sé góður. Allar líkur
benda til, að Laugardæli verði í framtíðinni nokkurs