Ófeigur - 15.08.1951, Qupperneq 21

Ófeigur - 15.08.1951, Qupperneq 21
ÓFEIGUR 21 að öll framleiðslustörf yrðu felld niður, út af aðgerð- um konungs. Lét konungur þá að vilja þegnanna. Senni- legt má telja, að stallbræðrum Vigfúsar Guðmundsson- ar hafi verið ókunn öll þessi saga um aðstöðu þeirra konunga, sem lengst höfðu verið þjóðhöfðingjar Is- lendinga. En furðulegt var, að þeir höfðu með öliu gleymt, að hinir konunghollu Bretar höfðu fyrir munn sinna æðstu kirkjuhöfðingja blandað sér í einkamál hins vinsæla konungs Játvarðar VIII, svo að hann mátti ekki giftast þeirri konu, sem hann unni, nema með því móti að afsala sér kórónunni. Ég hafði ennfremur þá aðstöðu til Sveins Bjöms- sonar, að á mér hvíldi nokkur ábyrgð um framkvæmd hans á ríkisstjórastarfinu. Árið 1939 kom hann hingað til lands um líkt leyti og Stauning var hér til að láta forkólfar krata og Framsóknar ganga undir próf um vilja þeirra til skilnaðar og lýðveldismyndunar. Sagði Stauning svo frá eftir heimkomu sína að honum þótti lítil hætta á skilnaði því að ekki hafði hann rekist á nema einn mann, sem óskaði eftir „fullu frelsi“ þjóð sinni til handa. 1 sama mund kom Sveinn Björnsson i útvarpið og flutti þar ræðu sem Valtýr Stefánsson prentaði orðrétta í Mbl. Hélt sendiherra landsins við hirð Kristjáns X, fram þeirri skoðun að konungssam- band Islands og Danmerkur væri varanlegt þó að mál- efnasambandinu væri sagt upp. Sendiherrann var þess- vegna á þeirri skoðun að persónusamband væri ýtrasti frelsisauki, sem þjóðin gæti vonast eftir. Var þessi skoð- un enn hatramlegri fyrir það að sendiherra taldi Kópa- vogseiða Islendinga virka sönnun fyrir gildi hins danska konungdóms á íslandi. Ég ritaði þá í Tímann fræðilega grein um málið og benti m. a. á að varla mundu Þjóð- verjar telja sig bundna af nauðungarsamningunum í Versölum eftir fyrri heimsstyrjöldina eða Tékkar af valdaráni Hitlers í Tékkóslóvakíu. Þóttu rök mín svo gild, að eftir þetta reyndist enginn maður á Islandi svo djarfur að vilja hindra lýðveldismyndun með tilvitnum í Kópavogseiða. Hitt má telja fullvíst að vitneskju sína um óbeit Islendinga á fullu frelsi hefur Stauning haft úr samtölum við Hermann, Eystein og Stefán Jóhann, sem allir voru þá í stjórn og dögum oftar með Stauning
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.