Ófeigur - 15.08.1951, Page 24

Ófeigur - 15.08.1951, Page 24
24 ÓFEIGUR ekki að verulega gagni sökum rangrar meginstefnu. Yfirsjón flokksins var, að hann reyndi í hart nær átta ár að verða samstíga við bolsivika og eyðilagði, eins og maður, sem segir ósatt fyrir rétti, málstað sinn og góða samvizku. Hugsjónirnar hurfu algerlega, en valda- streita kom í staðinn. Lyftándi áhugamál fóru sömu leið. Æskan fékk engin viðfangsefni nema augnabliks- gróðaáhyggjur. Myndarlegir ungir menn, sem starfa við Tímann og Dag eru bældir af valdastreitumönn- um í flokksstjórninni, eins og bezt sást í fyrra sumar, þegar Þórarinn Þórarinsson og Haukur Snorrason tóku djarfmannlega í streng með þjóðlegum hagsmuniun í landvamarmálunum, en aðeins einu sinni. Grá loppa kom út úr fimmtuherdeildarbjarginu og stöðvaði heilbrigða framsókn vaskra ungra manna. Blöðin og flokkarnir sofnuðu sameiginlega. Á síð- ustu árum er ekki borið við að halda myndarlega ræðu á Alþingi. Málin eru öll afgerð á leynifundum bak við tjöldin. Hin opinbera meðferð, sem þingskrifarar herma frá, er aðeins leiksýning, óskáldleg og óskemmtileg. Alþingi hefur misst allt álit hjá almenningi. Þegar þing er sett, koma helst rónar til að heiðra lög- gjafarsamkomuna með nærveru sinni. Hvergi eru haldnir almennir fundir til að ræða hreinskilnislega og í fullri alvöru vandamál dagsins. Um tíma fóru sumir helztu stjórnmálaskörungarnir með togleðursbrúðu og búktalara á samkomur til að draga áheyrendur að leið- inlegum ræðum um valdabrask þeirra. * Háttvirtir kjósendur mega ekki telja sig algerlega óábyrga um þá skemmilegu upplausn þjóðskipulagsins, sem fylgt hefur gistivinastarfsemi borgaranna hjá kom- múnistum. Ef menn spyrja um sparisjóðs og banka- innstæðumar og um ásigkomulag verðbréfanna, þá fá þeir þær fréttir, að krónan sé talin vera 13 aurar, en sé mun minni og á hraðri leið niður á við. Ef þeir spyrja um opinber mannvirki, olíuna og benzín í bíla og báta eða um brauðið, sem menn neyta við hverja máltíð, þá er ætíð sama svar: Mest af þessu em gjaf-

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.