Ófeigur - 15.08.1951, Síða 25
ÖFEIGUR
25
ir frá góðusömu fólki í öðru landi, sem vill afstýra
liallæri á Islandi.
#
Vigfús Guðmundsson stóð með fleira fólki á sögu-
legum vegamó.tum, þegar hann myndaði meiri hluta í
blaðstjórn Tímans til framdráttar gistivináttunni. Upp
úr því fór Framsóknarflokkurinn og samhliða honum
hinir tveir borgaralegu flokkarnir beint í voðann, Bolsi-
vikar sáu um að peningaeign landsmanna fór fyrir
lítið. Uppeldi barna og unglinga var sett í þær skorður
sem ólíklegastar voru fyrir heilbrigt og andlega vak-
andi þjóðlíf. Framundan er algert fjárhagsöngþveiti
og óhjákvæmilegt millibilsástand, þegar þjóðin reynir
að reisa sig á legg og byrja í fátækt og vanmætti að
vinna fyrir þeim brauðmolum, sem hún leggur sér til
munns.
Margir Framsóknarmenn reyna að halda því fram
að í raun og veru hafi þeir aldrei látið glepjast af bolsi-
vikum, þar sem hinir tveir flokkarnir hafa ómótmæl-
anlega fallið fyrir freistingunni og búið með fimmtu-
herdeildinni í stjómarráðinu. Þessir Framsóknarmenn
segja, að þeir séu algerlega hreinir af öllu samneyti við
þá menn, sem borgararnir kalla nú í blöðum og á mann-
fundum hreina og beina föðurlandssvikara. Snemma i
júlí í sumar var ég staddur á stjórnmálafundi á Akur-
eyri. Þar var einnig einn af reyndustu þingmönnum
Framsóknarmanna Bemharð Stefánsson. Hann taldi
sig og sína hreina af samneyti við byltingarflokkinn.
Ég benti honum á óþægilegar staðreyndir, sem sýna
hið gagnstæða. Vorið og sumarið 1942 var stöðugur
samdráttur um sameiginlega stjórnarmyndun milh
Framsóknar og bolsivika og þann tíma allan starfaði
nefnd með kjömum mönnum úr báðum flokkunum að
undirbúningi samstjórnar. Um vorið spörkuðu Brynj-
ólfur og Einar hastarlega í Hermann og Eystein með
stómm fúkyrðum í þinginu en játuðu samningabröltið
hreinlega. Heilan vetur hafði kommúnistaflokkurinn
stöðugt uppi hótanir í bingi og utan þings um að taka
af samvinnufélögunui alla verzlun með landbúnaðar-