Ófeigur - 15.08.1951, Síða 29

Ófeigur - 15.08.1951, Síða 29
ÖFEIGUR 29 og krata að láta ríkið ganga í ábyrgð fyrir öllu tapi á bátaútveginn, lagði Ölafur Thors til að, ef gróði yrði á síld á næstu vertíð skyldi kúfurinn renna upp í tapið á bátafiskinum. Gegn þessu risu allir kommún- istar og allt þinglið Framsóknar, það sem var undir áhrif- um gistivinastefnunnar. Þegar kom til loka atkvæða- greiðslu um málið var ég einn á móti. Enginn annar þingmaður var laus undan áhrifum galdrakonunnar aust- rænu. Tjónið af þessari óafsakanlegu og frámunanlegu heimskulegu atkvæðagreiðslu er talið 165 milljónir kr. Og á þessu ógleymanlega brjálsemiskvöldi í sögu Alþingis gekk Framsókn, sem var þó ekki í ríkisstjórn með kommúnistum mun lengra í niðurlægingunni heldur en kratar og Mbl.menn. Nú hafa leiðtogar og blöð þrí- flokkanna samskonar viðhorf til kommúnista eins og Haraldur hárfagri til sinnar galdrakonu eftir að hula sjúkrar ástríðu var fallin frá augum hans og heil- brigð dómgreind komin heim. Sama er um börnin úr þessu vanheilaga sambandi byltingar og borgara. Þau bera sorglega mikinn svip af móðerni: Útvegurinn er þjóðnýttur. Uppeldiskerfi þjóðarinnar forheimskar nemendurna og setur gjaldþol foreldranna í hættu. Bankar og sparisjóðir sjá ekki fram úr erfiðleikum dagsins. Atvinnulíf þéttbýlisins er helsjúkt og virðist komið að falli. Dýrtíðin veldur því að þjóðin er hætt að vinna fyrir daglegu brauði. Það var raunaleg sjón að sjá leiðtoga og liðsmenn heillar þjóðar endurleika með sjálfstæði, fjármál og menning Islendinga æfintýri Noregskonungs úr gamma hinnar töfrafríðu en gegn- rotnu austurlandagaldrakindar. * ■4 Ríkið hefir um undanfarin fjögur ár haldið uppi umfangsmiklum hemaði í Vestmannaeyjum. Er nokkuð um hann getið í síðasta hefti Ófeigs. Stjórnin hafði látið stórdómarann og fjölmennan hóp endurskoðenda herja í Eyjum framan af vetri en eftir mikil átök hafði stórdómarinn haldið til Reykjavíkur með lið sitt til endurskipulagningar. Tók hann með sér allt bókhald Helga Benediktssonar en rætur viðskifta hans standa víða í Eyjum, þannig að hér var um heilt skjalasafn að ræða. Helgi gat ekki talið fram til skatts og fékk Eysteinn ekki tekjur úr þessum landshluta nema að

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.