Ófeigur - 15.08.1951, Page 35

Ófeigur - 15.08.1951, Page 35
ÖFEIGUR 35 Þrjár kynslóðir á sama óðali. Margir langferðamenn fara yfir Skjálfandafljót hjá Goðafoss. Fæsta, sem eru ókunnugir í Þingeyjarsýslu, mun gruna að ofan við hinn fræga foss er ein af lengstu og fegurstu sveitum landsins, Bárðardalurinn. Milli Goðafoss og Aldeyjarfoss sem er hjá fremstu bæjum bygðarinnar, eru 40 km. I þúsund ár hafa Bárðdæl- ingar átt sókn yfir þetta vatnsfall, sem er að jafnaði 120 m á dreidd. Bygðin er báðu megin fljótsins; dalur- inn er gróinn mjög og gróðursæll. Öldum saman hafa gengið þjóðsögur um vænleika sauðanna í Bárðardal. Þær sögur voru tiltölulega sannar. Sveitin er og hefur verið kostabygð, en víða eru þar 5 km. milli bæja. Flestar jarðir í Bárðardal voru stórar og mannfrek- ar, þegar nýi tíminn, vélaöldin, hóf innreið sína í land- ið, fyrir hálfri öld. Á stærstu jörðunum voru oft þrír vinnumenn og jafnmargar vinnukonur. Kirkjustaður- inn, Lundarbrekka, er í miðjum dal, austanverðum. Hvergi er fegurra en þar. Bærinn er í hvammi, sem er opinn mót suðri. Allur inndalurinn blasir við af hlaðinu á Lundarbrekku og óbygðin fram undir jökla. Um aldamótin síðustu bjó 4 Lundarbrekku gamall, hæglátur, stilltur og hagsýnn óðalsbóndi, Jónas Jóns- son. Hann átti fjölmennan frændagarð í Bárðardal og Mývatnssveit. Jónas var talinn með efnamestu bænd- um í dalnum. Hann fór tryggilega að öllu. Hafði nægi- ega margt vinnufólk, heyjaði vel, átti fyrningar í flest- um árum. Var greiðvikinn og góður búþegn. Hætti aldr- ei á neitt, sem kalla mátti ógætni. Varð aldrei fyrir viðgeranlegum óhöppum, en kunni líka að stýra fram hjá skerjum. Jónas var einn af þeim traustu, öruggu og fastlyndu bændum, sem bygðu með þori og mann- dómi fyrstu sjálfseignarverzlun fólksins, Kaupfélag Þingeyinga. Þegar aldur færðist yfir Jónas bónda á Lundar- brekku, tók við búinu tengdasonur hans og frændi Baldur Jónsson. Hann var alinn upp svo að segja á

x

Ófeigur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.