Ófeigur - 15.08.1951, Qupperneq 42

Ófeigur - 15.08.1951, Qupperneq 42
42 ÖFEIGUR horf. Jörðin er ættargarður. Þar fer fram nýtt land- nám, eftir því sem ættin stækkar, meðan land er til að rækta. Sumstaðar í Þingeyjarsýslu er ættargarður- inn meira en þrískiptur. I Bárðardal, gegnt Lundar- brekku er margbýli á jörðinni Stóruvellir. Þar eru víðáttumiklar, eggsléttar grundir, landrými fyrir fjölmörg ný heimili. Þar þarf ekki annað en bera tilbúinn áburð á landið, þá er þar komið full- myndað tún. Þar sem þorp myndast, og helzt ættar- garður, leysa raforkan og fjölbreyttar vinnuvélar úr miklu af þeim félagslegu örðugleikum, sem einyrkja- kynslóðin fyrsta átti við að búa. Alveg sérstaklega leysa ættarþorpin þann vanda, sem leiðir af því að ein hjón, oft með lítil börn, geta tæplega, sökum fjar- lægða, tekið þátt í félagslegu og mannlegu samneyti, sem er mönnum eðlilegt og óhjákvæmilegt. Heimili voru fyrr á tímum mannmörg, af því að fastráðin hjú bættust við fjölskylduna og áttu sinn þátt bæði í framleiðslustörfum og sameiginlegri and- legri ánægju. Einyrkjatímabilið reyndi of mikið á for- eldrana og að nokkru leyti á börnin. Þriðja skeiðið hefst fyrir alvöru með tilkomu amerísku landbúnaðarvél- anna. Með þeim var hægt á stuttum tíma að skapa ræktarland nálega eftir þörfum. Stórjörð með góðum ræktunarskilyrðum verður, undir nútímakringumstæð- um, að mörgum jörðum. Gömlu stórbýlin eru nú á dögum eins og hringurinn Draupnir, sem skapaði eftir föstum reglum nýja hringa í sinni mynd. Þessi þró- un er í félagslegum efnum mesta nýjung sveitamennsk- unnar á fslandi. Enn skortir víða skilning á mikilvægi ættarþorpsins. Enn eru til vaskir menn, sem þreyta kapp við Gretti Ásmundsson, reyna að bjóða einver- unni byrginn og sýna hverju sterkur vilji kann að áorka. Jónas Baldursson hafði í huga mörg verkefni og öll hnigu þau í eina átt. Hann vildi mega taka á með þeim, sem voru að byggja upp landið, bæði inni í dölum og út við sjávarsanda. Ég held, að ef honum hefði auðnazt að starfa fullan vinnudag, mundi hann hafa orðið góður liðsmaður við að fá fleiri og fleiri Islendinga til að skilja, að jafnvel mesta kraftahetjan gat ekki un- að einn í skála sínum. Ég hygg, að áhrif Jónasar hefðu ekki fyrst og fremst komið fram í rituðu eða mæltu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.