Ófeigur - 15.08.1951, Side 45
ÓFEIGUR
45
vinnur ekki sjálf fyrir sínum þörfum. Munurinn á að-
stöðu Islands á 13. öld gagnvart Noregskonungi og á
20. öld gagnvart forráðamönnum Engilsaxa, er mjög
mikill. Valdamenn Noregs vildu innlima landið í Noregs-
veldi og nota það sér til auðgunar. Engilsaxar kæra
sig ekkert um að ná pólitískum tökum á íslandi
og ekki að auðgast á þessu fámenna og lítið auðuga
landi. Engilsaxar vilja ekki að Island geti orðið stökk-
pallur fyrir harðstjórnarstórveldi sem vill granda vest-
rænu frelsi. Ef Islendingar verða háðir vesturveld-
unum, nema í sambandi við varnir sem eru jafnmikið
i þágu íslendinga eins og annarra frjálsra þjóða, þá
verður þar eingöngu um að kenna eyðslusemi og léttúð
Islendinga í félagsstarfseminni heima fyrir.
Ófeigur vill safna frá sjálfstæðum og þjóðræknum
mönnum athugasemdum og tillögum um það hversu
þjóðin geti byrjað viðnám gegn hruninu og jafnframt
undirbúið nýa og stórum endurbætta nýsköpun. Er þar
átt við traustari byggingu heldur en þjóðnýtingar-
drauma Einars Olgeirssonar og hans stallbræðra frá
1944—”46. I Ófeigi eiga að geta farið fram umræður
varðandi hin stærstu framtíðarmál landsins, samhliða
því að skip hins annars lýðveldis tekur á sig stærri og
stærri sjóa. Þjóðin getur þá jafnframt, því að hún verð-
ur að taka sér á herðar syndagjöld hrunsins eignast,
utan við eyðilegginguna, bjartari vonarlönd fyrir Islend-
inga, þegar þeir hafa með miklum erfiðleikum friðþægt
fyrir syndir léttúðardaganna. Þeir erfiðleikar sem al-
menningur býr nú við í sköttum og sívaxandi dýrtíð
eru ekki nema byrjun á því sem sýnist vera ókomið af
svipuðu tægi. Islenzka þjóðin hefir lifað af, án viðunandi
varna, eldgos og öskufall, ægilega stórar sóttir, hung-
ur og þjáningar á hverri öld meðan útlendingar stýrðu
landinu. Hún mun enn sigra hliðstæða erfiðleika. Land-
námskaflar Ófeigs verða þessvegna framlag margra
manna enda verða rökin borin fram vegna alþjóðar-
hagsmuna en ekki til persónulegs ávinnings nokkrum
einstaklingum.
Vöntim stjómarlaga.
Annað þjóðveldi Islendinga hefir ekki borið við að
;gera sér stjómarlög. Sjö ár eru liðin í fullkomnu and-