Ófeigur - 15.08.1951, Síða 46

Ófeigur - 15.08.1951, Síða 46
46 ÓFEIGUR varaleysi. Nægir greindar og fræðimenn eru í þingi,, stjórn og utan þings til að gera á nokkrum vikum góða stjórnarskrá. En núverandi flokkar eru svo önn- um kafnir við valdastreitu yfirstandandi tíma að þeir hætta ekki á að hefja störf við nýja stjórnarskrá. Þeir óttast hugsanlegt fylgistap og röskun hlutfalla í valda- taflinu ef deilur yrðu um einstök atriði nýrra stjórnar- laga. Allmikill áhugi er vakinn fyrir nýrri og bættri stjórnarskrá, en flokksleiðtogar reyna að þegja mál- ið í hel. Samt mundu leiðtogar borgaraflokkanna verða mjög fúsir til að gera viðhlýtandi stjórnarlög ef þeir vissu að hugur kjósenda væri einbeittur og vakandi í málinu. Stjómarskrárböl Islendinga er þessvegna bæði að kenna leiðtogum og liðsmönnum og þó mest hinum fyrrnefndu. Enginn vafi er á að Islendingum væri fyrir beztu að kjósa sér forseta til 3—4 ára enda mætti endurkjósa hann einu sinni. Forsetinn veldi sér ráðherra án tilnefningar þingsins. Forsetinn og ráðu- neyti hans framkvæmdi löggjöf landsins. Alþingi semdi lögin og hefði í sínum höndum skattlagningarvald og ákvörðun um hversu fé landsins skuli varið. Þingið yrði þá skyldugt að leggja fram fé til þess að stjórn- in gæti framkvæmt þá löggjöf sem þingið hefir sam- þykkt. Ef ósamkomulag kemur í ljós milli forseta og þingsins þá stöðvast nýar framkvæmdir meðan svo stendur. Hinsvegar heídur þjóðfélagið áfram sinni göngu. Ábyrg ríkisstjórn heldur þjóðarskútunni fljót- andi með hinum föstu gjaldstofnum sem þingið verður að láta fylgja hverri löggjöf sem kostar útgjöld. Með þessu skipulagi fær þingið ekki að blanda sér í stjórnar- myndanir eða framkvæmdaratriði. Landið er aldrei stjórnlaust. Fólkið í landinu hefir á kjördegi með fáum pennastrikum, valið landinu stjórn til 3—4 ára, Flokkarnir neyðast ekki til að eyða mánuðum og árum í stjórnarmyndun og verða þá oftar en skyldi að láta ríkissjóð bera kostnaðinn við að fullnægja kröfum stuðningsmanna. Sífræg dæmi um þetta efni'eru til frá. stjórnarmyndun Ólafs Thors 1944. Þá krafðist Alþýou- flokkurinn að sett yrðu launalög og aðallega mótuð samkvæmt kröfum stéttarfélags launamanna. Stjórnin var mynduð og staðið við sáttmálann. Dæmið er alger- lega hversdagslegt. Gjaldendur hafa oft endranær orðið að borga fyrir þingkosna ríkisstjórn öllu meira en í

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.