Ófeigur - 15.08.1951, Síða 47
ÓFEIGUR
47
þetta sinn. Síðar verður vikið að feiri atriðum í nýrri
stjómarskrá.
Landvarnir.
Islendingar hafa talið sér heiður að því að hafa ekk-
ert vopnavald í landinu, hvorki til að hrinda erlendri
árás eins og Tyrkjuráninu á sinni tíð eða til að hindra
innanlandsdeilur, sem verið hafa skaðlegar fyrir mann-
félagið. Togarar, sem voru keyptir nálega eingöngu
fyrir ríkisfé, lágu aðgerðarlausir sumarið 1950 og tóku
upp megnið af hafnarrými höfuðstaðarins. Ríkið tapaði
að minnsta kosti 100 milljónum af gjaldeyristekjum við
þessa landlegu. Þegar sviplíkir atburðir komu fyrir hjá
Dönum í stjórnartíð Staunings, svo sem þegar verka-
menn vildu stöðva sláturhúsin og flutning svínakjöts og
eggja á markað í Englandi, þá lét kratastjórnin danska
lierinn koma til sögunnar og afgreiða vörurnar, sem
færðu allri þjóðinni þau sterlingspund, sem henni var
lífsnauðsyn að fá daglega fyrir danska framleiðslu til
þess að ekki kæmi hungursneyð í landinu. Atli hinn
breski lætur ekki verkalýðsfélögunum líðast að skera
á lífæð þjóðarinnar með því að neyta að flytja mat-
væli til borganna og beitir þá hernum til að vernda
þjóðlega hagsmuni. Ef ísland hefði haft sæmilegt
stjómarskipulag, mundi ríkisstjórnin hafa sent íslenzka
lögreglu með togarana úr Reykjavíkurhöfn út á mið-
in að framleiðslustörfum, ef sjómennirnir sem fengu
þessi tæki til að vinna auð úr skauti hafsins, hefðu
ekki viljað nota þau. Þessi þáttur landvarnanna er að
vísu merkilegur en þó liggur mest á að verja Iand og
þjóð fyrir innrás. Nú hafa allir borgaraflokkarnir beð-
ið Bandaríkin að hafa hér nokkurt varnarlið, án þess
að þjóðin taki á sig nokkra byrði við dvöl þess. Engin
þjóð hefir reynt þessa leið nema Islendingar og er
slíkt metnaðarleysi ósamboðið mönnum, sem unna og
meta frelsi. íslendingar hafa reynst vaskir hermenn
þegar þeir hafa tekið þátt í nútímahernaði,. Veldur
ekki vöntun á hug eða dug þessum ófarnaði heldur
skortur á skynsamlegum umræðum borganna í
landinu. Þrjátíu flugmenn hafa boðið stjórninni að
taka þátt í landvörnum og eitthvert umtal hefir orðið
um málið í stjórnmálafélagi ungra Mbl.manna í höfuð-