Ófeigur - 15.08.1951, Blaðsíða 48
48
ÓFEIGUR
staðnum. Menn hins þriðja lýðveldis verða að taka á
sig hlutfallslega jafnþungar byrgðar fyrir landvarnir
eins og frændþjóðimar í Atlantshafsbandalaginu. Allt
sem er minna hæfir aðeins örkvisum en ekki afkomend-
um þeirra forfeðra, sem fórnuðu ættjörð og auði Nor-
egs til að mega njóta hér á landi hins fulla frelsis, sem
þeir gátu ekki öðlazt á ættjörðinni.
Fiskimið fslendinga.
Norðursjórinn og miðin kringum Færeyjar eru að
verða svo fiskvana, að þau eru hætt að bera arðvænlega
atvinnu. Gegndarlaus rányrkja vélbáta og togara valda
þessari eyðileggingu náttúrugæða og mannlegra afkomu
Sama hætta vofir yfir Islandi. Eiga þar jafna sök ís-
lenzkir og erlendir veiðimenn. Ábyrgðin er þó þyngst
á þeim innlendu mönnum, sem láta mikinn f jölda veiði-
skipa og báta draga vörpur í landhelginni og sópa burtu
ungfiskinum. Dag eftir dag og ár eftir ár hafa hrygn-
ingarsvæðin og gmnnsævið nærri landi og inni á f jörð-
um og flóum stöðugt verið undir forboðinni rányrkju..
Sumarið 1949 birti Vísir grein eftir Jón Árnason banka-
stjóra. Ræðir hann þar sýnilega eyðingu útvegs á ís-
landi af framangreindum ástæðum. Leggur hann til
að íslendingar hefji innlenda og alþjóðlega baráttu
fyrir því, að ísland verði viðurkennt sem aðaluppeldis-
stöð fiska við Norður-Evrópu og að 10 mílna belti um-
hverfis landið verði friðað fyrir allri botnvörpuveiði
þar með taldar bátavörpur og dragnætur. Hann leggur
til, að fslendingar leiti fyrst og fremst samvinnu við
Breta um þetta efni og bjóði eindregið samstarf þjóðar-
innar. Bretar em gömul menningar og fiskveiðaþjóð,
sem kann að meta góð og vel meðfarin matvæli til heim-
ilisþarfa. Ef íslensku fiskmiðin em eyðilögð líkt og
Norðursjórinn þá eiga Bretar hvergi heima með" fisk
til neyzlu í landinu. Þessi tillaga kann að vera erfið í
framkvæmd fyrir skammsýni og vanmenntun manna
bæði á Islandi og í Bretlandi. En hér er áreiðanlega
bent á einu leiðina, sem er til um varnir til tryggingar
íslenzkum útvegi. Mundi í þessum efnum hægt að taka
Rússa til fyrirmyndar. Þeir friða 12 mílur frá landi
fyrir öðrum þjóðum.