Ófeigur - 15.08.1951, Page 54
54
ÖFEIGUR
byggðina saman, leggja 1 eyði afdalajarðir, en mynda
nýrækt og svokallaðar samvinnubyggðir, þar sem fólk-
ið getur búið þétt saman. Ekki mun Ófeigur átelja
myndun ættargarða úr stórjörðum. En hitt er fásinna,
að sækjast eftir að eyða gamlar byggðir. Óvíða er
meira strjálbýli er nærri Látrabjargi, þar sem sveita-
fólkið bjargaði fyrir skömmu enskri skipshöfn frá
bráðum dauða. Hefur þessi atburður verið kvikmynd-
aður og lýst mjög erlendis í þeim virðulega tilgangi
að auka hróður landsins. Hefur þjóðin ekki gert neitt
á síðari árum sem kastað hefur á hana meiri ljóma
heldur en björgunarafrek sveitamanna við Látrabjarg.
Bar þar ekki eingöngu til hin vasklega framganga
þeirra, sem unnu að björguninni, heldur og öll fram-
koma þeirra, sem byggðu sveitina. Kom þar jafnt til
greina verktækni þeirra, sem var frábær, þrek þeirra
og hugprýði, stilling þeirra, gestrisni og manndómur
í hvívetna. Ef farið væri að leggja byggðir í eyði hér
á landi til að spara vegi, síma, presta, lækna og póst-
göngur, þá mundu heimili fólksins, sem unnu björg-
unarafrekin, verða framarlega á fordæmingarlistanum.
Afskekktu byggðirnar hafa alltaf verið þjóðinni til
gagns og sæmdar. Þar hefur fæðzt upp þrekmikið fólk
og hugkvæmt. Þar hafa erlendir og innlendir sjómenn
þrásinnis leitað hælis í sárum nauðum og fengið þá
hjálp og aðhlynningu, sem þeim lá mest á. Viturlegra
mundi vera, að skipa í öllum stærri kaupstöðum nefnd-
ir til að semja við sveitafólkið í hinum afskekktu byggð-
um landsins um að þeir taki til sumardvalar og mennt-
unar efnileg börn úr þéttbýlinu til að láta þau þrosk-
ast við hin einstæðu skilyrði, sem mótað hafa fólkið
sem öðlazt hefur ódauðlega frægð við Látrabjarg og
starfa annarstaðar við sambærileg skilyrði. En það eru
lífshættir allra afskekktra byggða, þar sem landið og
erfiðleikar þess kenna hverri kynslóð að vera hetjur
í mannlegum skilningi.
Nýtt uppeldi.
Núlifandi kynslóð hefur verið athafnasöm við að
reisa nýja skóla. Hinsvegar hefur víða misheppnazt
að hagnýta þessar dýru og oft mjög myndarlegu stofn-
anir. Samkvæmt kerfi því sem bolsivikar fengu lög-