Skessuhorn - 20.12.2006, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006
Næsta
Skessuhom
3. janúar
Jólablað Skessuhorns er jaih-
framt síðasta blað ársins. Næst
kemur Skessuhorn út miðviku-
daginn 3. janúar. Fréttaþjón-
usta verður á vef Skessuhorns
alla virka daga og er hægt að
koma með fréttaábendingar og
beiðnir um birtingu tilkynninga
í síma 433-5500 eða 894-8998.
Að vanda var reynt að vanda
til efnistöku í jólablaði okkar.
Til liðs við fasta starfsmenn
fyrirtækisins komu nokkrir
lausapennar að skrifum og við-
talagerð fyrir blaðið. Þetta eru
þau Anna Lára Steindal,
Jóhanna Harðardóttir, Ofeigur
Gestsson og Sigrún Ósk Krist-
jánsdóttir. Einnig skrifa átta
fulltrúar sinna svæða úr lands-
hlutanum kveðjur úr héraði.
Auk þess hafa ýmsir fleiri lagt
Skessuhorni lið við þessa há-
tíðaútgáfu blaðsins. Færum við
öllu þessu góða fólki bestu
þakkir fyrir, sem og öðrum sem
stutt hafa okkur á árinu. Okkar
fyrsta verk á á nýju ári verður
m.a. að kynna úrslit í kosningu
á Vestlendingi ársins 2006.
Hittumst heil á nýju ári
- gleðilega hátíð!
F.h. Skessuhoms ehf.
Magnús Magnússon, ritstjóri
Til minnis
Skessuhorn minnir á hinar ýmsu
guðsþjónustur og samveru-
stundir í kirkjum Vesturlands um
hátíðirnar. Sjá má upplýsingar
um messur á bls. 44.
Vectyrhorfwr
Allt útlit er fyrir að Rauð jól með
risastórum staf. Búast má við
umhleypingum og lægðagangi
nú í „vitlausu viku" (stundum
einnig kölluð „stauravika" eða
„augnavika") með talsverðri úr-
komu. Víða verður suðvestan
hvassviðri og úrkomusamt, eink-
um hér á Suður- og Vesturlandi.
Hitasveiflur verða talsverðar, en
gera má ráð fyrir hlýindum á að-
fangadag.
Spivrniruj viKijnnar
í síðustu viku var spurt á Skessu-
hornsvefnum: „Borðar þú skötu
á Þorláksmessu?" Cóður meiri-
hluti, eða 67,9% sögðust gera
það. 29,8% eru ákveðnir í að
gera það ekki, en 2,2% höfðu
ekki enn ákveðið það.
Næstu tvær vikur er spurt: :
„ Var árið 2006 þér og
þínum hagfellt"
Svaraðu án undanbragða á
www.skessuhorn. is
Vestlendiníjtyr
vih-Mnnar
Að þessu sinni eru vestlendingar
vikunnar björgunarsveitarmenn
um allt Vesturland sem vinna nú
við sölu á jólatrjám og í fram-
haldinu fara beint í sölu flugelda
til að fjármagna starfsemi sveita
sinna. Þessu fólki öllu verður
seint fullþakkað fórnfúst starf sitt
bæði við rekstur sveitanna og
ekki síst að vera ávalt til taks þeg-
ar eitthvað bjátar á.
Orkuveitan kaupir hitaveitu
Skorrdælinga
Frá undirritun kaupanna. F.v. Guðlaugur Þór Þórðarson, stjómarformaihir OR, Stein-
unn Fjóla Benediktsdóttir varaoddviti, Davíð Pe'tursson oddviti Skorradalshrepps og
Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur.
Síðastliðinn miðvikudag var
gengið frá kaupum Orkuveitu
Reykjavíkur á hitaveitunni í
Skorradal. Um er að ræða borholu
í eigu Skorradalshrepps og veitu-
kerfi sem var í eigu Hitaveitu
Skorradals ehf. Kaupverð er 54
milljónir króna sem greiðast með
reiðufé og yfirtöku skulda að upp-
hæð 26 milljónir króna. Orkuveita
tekur við rekstri hitaveitunnar um
áramótin.
Hitaveitan í Skorradal tók til
starfa árið 1996 og í tilkynningu ffá
Orkuveitunni segir að hún þarfnist
orðið talsverðra endurbóta. Hún
þjónar bæði býlum og bústöðum í
dalnum en nær þó til tiltölulega ht-
ils hluta þeirrar miklu sumarhúsa-
byggðar sem þar er. Að mörgu er
að huga við enduruppbyggingu
veitunnar og mun Orkuveita
Reykjavíkur nota næsta árið til að
leggja drög að því með hvaða hætti
verður staðið að uppbyggingunni
að því er ffam kemur í tilkynning-
unni. „Markiniðið er að veitan
þjóni sem best vaxandi markaði fyr-
ir heitt vatn í öllum Skorradalnum
eða þar sem hagkvæmt kann að vera
að hitaveituvæða."
Með kaupum þessum eykst enn
starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur á
Vesturlandi því í dag rekur fyrir-
tækið veitur á Akranesi, Hvanneyri,
Varmalandi, Bifröst, í Grundar-
firði, Borgarnesi, Munaðarnesi,
Norðurárdal, Reykholti og í Stykk-
ishólmi.
HJ
Tillaga felld um að Fannahlíð
verði stjómsýsluhús
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar
felldi í síðustu viku tillögu um að
breyta einu af félagsheimilum í
sveitarfélaginu, Fannahlíð, í stjóm-
sýsluhús. Það var Magnús Hannes-
son sem lagði tdllöguna ffam og í
henni var gert ráð fyrir að breyting-
in yrði til bráðabirgða næstu 2-3
árin. Nokkrar umræður urðu um til-
lögu Magnúsar á fundinum og vom
skoðanir skiptar. Að lokum var til-
lagan felld með fjórum atkvæðum
gegn þremur.
Félagsheimilið Fannahlíð stendur
í norðausturhlíðum Akrafjalls. Hús- sem skóli og félagsheimili ffá upp-
ið var byggt á árunum 1954-1959 í hafi. Fannahlíð mun enn vera nýtt
landi Stóru-Fellsaxlar og hefur til fundahalda og hafa félög í sveitar-
þjónaði íbúum Skilmannahrepps félaginu þar aðsetur. IIJ
\Tlja ldæða skólann
á kostnað stúkubyggingar
Bæjarstjórn Akraness vísaði á
þriðjudag til bæjarráðs tillögu
minnihlutans um að klæðning verði
sett á Brekkubæjarskóla á næsta ári.
I tillögunni segir að um leið verði
hætt við að byggja stúku við knatt-
spyrnuvöllinn á Jaðarsbökkum „og
þeim 15 milljónum króna sem áætl-
aðar em í þá ffamkvæmd varið í
endurbótanna," eins og segir í til-
lögunni. I greinargerð með tillög-
unni segir að klæðning skólans sé
Jón Oddur
íbróttamaður ársins
íþróttasamband fatlaðra hefur
tilnefnt Jón Odd Halldórsson ffá
Hellissandi íþróttamann ársins úr
röðum fatlaðra íþróttamanna. Jón
Oddur vann fyrr á árinu til brons-
verðlauna í 100 metra hlaupi á
heimsmeistaramótinu í frjálsí-
þróttum í flokki T35. Jón Oddur,
sem keppir fyrir Reyni á Hell-
issandi, hlaut einnig þennan titil í
fyrra og hefur nú hlotið hann
þrisvar sinnum. HJ
ónýt og hún mikil lýti á húsinu.
„I síðustu fjárhagsáætlun var gert
ráð fyrir endurbótum á húsinu, en
að þeim hefur ekki orðið á þessu
ári. Nú er svo komið að ekki verð-
ur lengur beðið með að hefjast
handa við endurbætur. Stór göt era
komin á klæðningu hússins og hef-
ur vatn greiðan aðgang að einangr-
un. Ef ekki verður hafist handa
mun þurfa að taka alla einangrun
utan af húsinu áður en það er klætt.
Shk aðgerð er miklu dýrari en þær
endurbætur sem fyrirhugaðar vom.
Þess vegna era þessar endurbætur
fyrirbyggjandi gegn skemmdum og
spamaður þegar til ffamtíðar er lit-
ið,“ segir orðrétt í greinargerðinni.
Gunnar Sigurðsson forseti bæj-
arstjórnar lagði til að tillögunni
yrði vísað til bæjarráðs til umfjöll-
unar og var það samþykkt sam-
hljóða.
HJ
Ibúar við Anahlíð vilja
lagfæringar á götunni
íbúar við Ánahlíð í Borgamesi
hafa sent yfirvöldum Borgarbyggð-
ar bréf vegna auglýsingar um
deiliskipulag lóðar Dvalarheimilis
Aldraðra í Borgarnesi þar sem
minnt er á slæmt ástand í götunni.
Byggðaráð Borgarbyggðar hefur
vísað erindinu til skipulags- og
bygginganefhdar. Ibúarnir sendu
bréf til forstöðumanns fram-
kvæmdasviðs Borgarbyggðar þar
sem vakin er athygli á bágu ástandi
ýmissa mála í götunni í tengslum
við fyrirhugaðar framkvæmdir á lóð
Dvalarheimilisins. Ekki er af hálfu
íbúanna um að ræða mótmæli við
byggingaframkvæmdirnar, en vakin
er athygli á því að nýbyggingin
mrmi skyggja mest á íbúðir við
Anahlíð. Hinsvegar vilja íbúarnir
úrbætur í götimni, eins og segir
orðrétt í bréfinu: „Það vantar gang-
braut, gatan er mikið nomð af
gangandi fólki á öllum aldri, margt
af því þarf að nota hjálpartæki en
aðstaðan er engin nema á miðri
gömnni. Einnig geta bílar ekki
mæst með góðu móti og úrbóta er
þörf í bílastæðismálum.“
BGK
Aætlunarbíll valt
MÝRAR: Áætlunarbíll fór út af
Snæfellsnesvegi sunnan við Hít-
ará á þriðjudagskvöld í síðustu
viku. Mikil hálka var á veginum
þegar slysið átti sér stað. I bfln-
um vora átta farþegar auk öku-
manns og allir sluppu án
meiðsla. Að sögn lögreglu
skemmdist bfllinn lítilsháttar.
-hj
Styrkir byggingu
reiðhallar
STYKKISHÓLMUR: Bæjar-
stjórn Stykkishólmsbæjar sam-
þykkti einróma í síðusm viku að
veita Hestaeigendafélagi Stykk-
ishólms allt að 15 milljónir
króna til byggingar reið-
skemmu. Bæjarstjóm samþykkti
einnig að skilmálar og skilyrði
verði sett þegar fyrir liggur af-
greiðsla Hestamannafélagsins
Snæfellings á erindum Hesteig-
endafélags Stykkishólms og
Hesteigendafélags Grundar-
fjarðar vegna styrkveitingu
landbúnaðarráðuneytisins til
reiðhúsa. Eins og fram hefur
komið í frétmm Skessuhorns
fékk Hestamannafélagið Snæ-
fellingur 15 milljónir króna í
styrk frá ráðuneytinu tdl bygg-
ingar reiðskemmu í Grundar-
firði. -hj
Tíu vilja verða
verkefhisstjórar
AKRANES: Tíu umsóknir bár-
ust um nýja stöðu verkefhis-
stjóra æskulýðs- og forvamar-
mála hjá Akraneskaupstað en
umsóknarfresmr rann út 8. des-
ember. Umsækjendur era: Erna
Hafnes Magnúsdóttir Reykja-
vík, Gunnar Kristinn Þórðarson
Reykjavík, Halldór Hlöðversson
Egilsstöðum, Heiðrún Janusar-
dóttir Akranesi, Helga Atladótt-
ir Þýskalandi, Ingibjörg Har-
aldsdóttir Akranesi, Óli Örn
Atlason Reykjavík, Sigrún Rík-
harðsdóttir Akranesi, Steinunn
Eva Þórðardóttir Akranesi og
Þorkell Héðinn Haraldsson
Reykjavík. -hj
Skólastjóraskipti
RI YKHÓLAR: Áslaug Gutt-
ormsdóttir hefur tekið við starfi
skólastjóra Reykhólaskóla af
Hilmari Þór Hafsteinssyni.
Hilmar tók við starfinu í sumar
en sagði því lausu á dögunum.
Mennta- og menningarmála-
nefnd fór þess á leit við Áslaugu
að hún tæki við starfinu út
skólaárið. Jafnframt ákvað
nefndin að auglýsa starfið laust
til umsóknar í febrúar. -hj
Hrafii fjölgar
Islandsmetum
sínum
AKRANES: Hrafn Traustason
liðsmaður Sundfélags Akraness
hefur verið iðinn við að slá Is-
landsmetin að undanfömu og
um helgina bætti hann einu meti
í safn sitt þegar hann bætti ís-
landsmet drengja í 400 metra
fjórsundi á jólamótd KR. Hann
bætti metið um 3 sekúndur og
synti vegalengdina á 4.48,69.
Hrafn setti einnig Akranesmet í
100 metra bringusundi á mót-
inu. Þá bætti Rakel Gunnlaugs-
dóttir eigið met í 200 metra
bringusundi stúlkna og syntd á
2.34,68. -hj