Skessuhorn - 20.12.2006, Qupperneq 25
ggBSailBMMBIM
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
25
Vesturland 2006 í múli og myndum
í sumar kom síðan ung stúlka úr Grundarfirði, Sigurbjörg
Sandra Pétursdóttir, erni til bjargar sem frægt varð. Sýndi
hún mikla djörfung með því að handsama fuglinn og halda
honum þar til hjálp barst. Erninum, sem fékk nafnið Sig-
urörn, var komið til aðhlynningar og sleppt nú í upphafi að-
ventu, endurnærðum og frískum.
Umsjón: Magnús Magnússon.
Ljósmyndir: Blaðamenn Skessuhoms, fréttaritarar ogfleiri.
Vesturland morgundagsins
Á fjölmennri ráðstefnu um framtíð Vesturlands undir yf-
irskriftínni „Á fleygiferð - Vesturland morgundagsins," og
haldin var á Bifröst í lok janúar voru flutt ýmis fróðleg er-
indi sem vörpuðu ljósi á þau gríðarlegu sóknarfæri sem bíða
svo gott sem handan við hornið fyrir íbúa og samfélagið hér
á Vesturlandi. Yfir það heila tekið endurspeglaði ráðstefnan
mikla bjartsýni um framtíð landshlutans sem sýnir sig í því
að þensla er mikil, íbúaþróun er víðast hvar í rétta átt, mik-
ið er byggt og atvinnuleysi lítið á landsmælikvarða. Þar
spáði fráfarandi rektor Háskólans á Bifröst því að Vesturland
gætí orðið eitt helsta vaxtarsvæði landsins og að íbúafjöldi
þess getí tvö- eða þrefaldast á næstu 10 til 15 árum. Þetta eru
tölur sem segja má að endurspegli meiri bjartsýni um íbúa-
þróun en heyrst hafi áður á opinberum vettvangi. Runólfur
sagði jafnframt að háskólarnir á Hvanneyri og á Bifröst
geymi aðgöngumiða að þekkingarsamfélagi morgundagsins
og mannauðurinn sé sú auðlind sem býr í þekkingu okkar,
menntun, huga og þjóð og sú auðlind sé ein af þeim fáu sem
ekki klárist.
Lengsti viðlegukantur landsins
Nýr viðlegu-
kantur Grundar-
tangahafnar var
formlega tekinn
í notkun í byrjun
febrúar. Skipa-
komum hefur
fjölgað gríðar-
mikið á Grund-
artanga undan-
farin ár og þang-
að komu 270
flutningaskip
árið 2005. Mikl-
ar vonir eru
bundnar við að
umferð um
Grundatanga-
höfn muni stór-
aukast áfram og
þar verði í fram-
tíðinni ein helsta
umskipunarhöfn
landsins sam-
hliða því að
þrengir að hafn-
sækinni starf-
semi á dýrara
landi á höfuð-
borgarsvæðinu. Nýi viðlegukanturinn á Grundartanga er
500 metra langur, um 500 þúsund rúmmetrar af efni fóru til
uppfyllingarinnar og framkvæmdin kostaði um 500 milljón-
ir króna.
Þegar Iitið er um öxl og árið 2006 gert upp má með
nokkurri vissu halda því firam að árið hafi verið Vest-
lendingum bæði gjöfult og gott í víðum skilningi. Árið
einkenndist af framkvæmdum á öllum svæðum lands-
hlutans, atvinnuleysi var lítið sem ekkert og veðráttan
var þokkaleg. Þó má segja að nýliðinn nóvembermánuð-
ur hafi einkennst af umhleypingum og vorið hafi verið
kalt. Á fyrri hluta ársins fóru ffam kosningar til sveita-
stjóma. Eins og jafnan í aðdraganda kosninga er tekist
á, teknar ákvarðanir um framkvæmdir sem e.t.v. er ekki
til fyrir og annað gert í þeim tilgangi að fegra ásýnd
stjómmálaafla sem vilja ná glæsilegu endurkjöri. Nokk-
ur sveitarfélög á Vesturlandi sameinðust samhliða eða í
kjölfar kosninganna í vor og em nú 10 talsins í gamla
Vesturlandskjördæmi. Og enn nálgumst við kosningar. I
vor verður kosið til Alþingis og hafa nú þegar nokkrir
stjómmálaflokkar kynnt ffamboðslista sína, en aðrir
eiga það effir. Vafalaust verður hart tekist á um málefhi,
fólk og áherslur í aðdraganda kosninganna í vor. Enn
sem fyrr er mikilvægt að íbúar láti í sér heyra, bendi
væntanlegum stjómmálamönnum á hagsmunamál sín
og sinna svæða og sofi ekki á verðinum á neinn hátt.
Munum það að þingmenn em ekkert annað né meira en
fulltrúar fólksins. Það er ágæt Ieið til að ná athygli þeirra
að beina athugasemdum og fyrirspumum til þeirra í
gegnum fjölmiðil eins og Skessuhom. Við sjáum því
ffam á fjömgt kosningavor hér á fféttaveitu Vestur-
lands.
Þegar fféttir Iiðins árs í Skessuhomi em rifjaðar upp
kemur eitt og annað í ljós og af nægu er að taka. Blaða-
menn hafa á árinu haff í mörg hom að líta og ekki á
neinum tímapunkti glímt við fféttaþurrð. Hróður blaðs-
ins og samnefhds fféttamiðils á netinu hefur verið að
aukast og er nú svo komið að rekstur útgáfufyrirtækis-
ins er í góðu jafnvægi. Segja má að tími hafi verið til
kominn í Ijósi þess að Skessuhom hefur nú verið starf-
rækt í 9 ár og gengið í gegnum erfiðleika á köflum. Sýn-
ir þessi viðsnúningur umffam annað að íbúar á Vesmr-
landi hafa með stuðningi sínum loks sýnt það í verki að
þeir vilja hafa öfluga fféttaveitu starfandi á Vesturlandi.
Lesendum og velvildarmönnum Skessuhoms víðsveg-
ar um Vesturland, og utan þess einnig, em hér með
færðar bestu þakkir fyrir ánægjulegt samstarf á árinu,
með von um viðburðaríkt, gjöfiilt og gleðilegt ár 2007!
Nafnið Peningasveit hlaut
ekki brautargengi
Á íbúaþingi, sem íbúar væntanlegs sveitarfélags sunnan
Skarðsheiðar sóttu í upphafi árs tóku nemendur Heiðarskóla
virkan þátt. Þeir fluttu erindi um sýn unga fólksins á hið nýja
sveitarfélag og möguleika þess í ffamtíðinni. Meðal þess sem
unga fólkið gerði fyrir þingið var að kanna hug nemenda og
starfsfólks Heiðarskóla hvert ætti að vera nafn hins nýja
sveitarfélags. I nýjum nöfnum var áberandi að fólk leitaðist
við að nýta örnefhi á svæðinu. Má þar nefna Skarðshreppur,
Skarðsheiðarbyggð, Glymhreppur, Akraskarð og Hvalborg.
Til örnefna verður sjálfsagt að telja himininn og ein tillaga
kom með nafninu Himnasveit. Af fleiri nöfnum má nefna
Álfaborg, Grunnaíjarðarhreppur, Grunnifjörður, Melaþúfa,
Skessuheiði, Sunnanhreppur og Hreppahreppur. Hlutskarp-
ast í vali þeirra var þó nafnið Peningasveit, sem skírskortar
til góðrar fjárhagsstöðu. Það nafn hlaut hinsvegar ekki náð
fyrir augum fullorðna fólksins sem valdi að nefna sveitarfé-
lagið Hvalfjarðarsveit, eins og alþjóð veit.
Nýr Baldur
I ársbyrjun var ákveðið að ráðast í stækkun Breiðafjarðar-
ferjunnar Baldurs. Fest voru kaup á nýrri og hraðskreiðari
ferju sem kom til heimahafnar í Stykkishólmi sl. vor. Nýja
ferjan getur flutt allt að 50 bíla og 300 farþega.
Ránfuglar í sviðsljósinu
Fuglar komu talsvert við sögu á árinu sem er að líða. Ekki
einungis að margir ræddu um framtíð rjúpunnar og skot-
leyfa á hana, heldur voru öllu grimmari og fáséðari fuglar í
sviðsljósinu. Myndarlegur fálki fannst í grjótgarðinum und-
ir Olafsvíkurenni í lok janúar. Það voru íbúar sem komu
fuglinum tíl bjargar, skítugum og grútugum en líklega hefur
fuglinn komið fullnálægt múkka sem mikið er af á þessum
stað. Fálkinn var fluttur á Náttúrufræðistofnun til frekari
aðhlynningar.
ur Sigmundsson sérleyfisakstri milli Vesturlands og höfuð-
borgarsvæðisins eftir áratuga farsælt starf og nýtt fyrirtæki
tók yfir sérleyfið. I annan stað urðu þau tímamót að Strætó
bs. hóf áætlunarakstur á Akranes í fyrsta skipti. Leiðakerfi
Strætó er þannig framlengt með legg á Akranes þar sem
farnar eru margar ferðir á dag alla daga vikunnar. Viðtökur
hafa verið góðar og nýta heimamenn á Akranesi ferðirnar
óspart, enda ódýr ferðamáti, niðurgreiddur af ríki og Akra-
neskaupstað.
s------------------------------
Konráð maður ársins 2005
Konráð Andrésson, stjórnarformaður og stofnandi
Loftorku í Borgarnesi ehf. var í upphafi árs kosinn Vestlend-
ingur ársins 2005. Fyrirtæki hans hefur á undanförnum
árum og áratugum vaxið og dafnað undir hans stjórn og er í
dag stærsti vinnustaðurinn í Borgarbyggð og stærsta verk-
takafyrirtækið í landshlutanum. Konráð hefur nú dregið sig
í hlé frá daglegri stjórnun í fyrirtækinu en vinnur þar engu
að síður fullan vinnudag 6 daga vikunnar þó kominn sé á átt-
ræðisaldur. Þeir sem tilnefndu Konráð nefndu einkanlega
það hversu farsæll og þrautseigur frumkvöðull og stjórnandi
hann hafi alla tíð verið.
Akumesingar duglegir að nota Strætó
Á nýársdag var brotið blað í almenningssamgöngum á
Vesturlandi í tvennum skilningi. I fyrsta lagi hætti Sæmund-