Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 31
skessuhoeri MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 31 Við viðurkennum alla trú - en ekki eru allir sem viðurkenna okkur Olafur Haraldsson. Aðventan er tími mikils annríkis hjá flestum, enda í mörg hom að líta við undirbúning jólanna. 1 öllum hamaganginum vill það gleymast að fjöldi fólks heldur ekki jól, að minnsta kosti ekki í hefðbundnum skilningi, og tekur lítinn þátt í und- irbúningnum sem við hin erum svo upptekin af. Eirm af þeim er Ólafur Haraldsson, en hann tók bahá’ítrú fyrir þrjátíu og fimm árum. I samtali við Skessuhom segir Ólafur ffá jóla- haldi fjölskyldtumar og grundvallar- kenningum trúarinnar. Höldum okkar hátíð „Bahá’íar halda ekki jól sem slík,“ segir Ólafur. „Sem íslendingar og meðlimir í fjölskyldum þar sem fólk er kristdð tökum við auðvitað þátt í jólahaldinu að einhverju marki. Þetta var einhvemtíman orðað sem svo í minni fjölskyldu að jólin væm alltaf heima hjá ömmu og afa. Við tökum þátt í jólunum með fjölskyld- unni því við viljum ekki skera okkur úr og erum alls ekki á móti jólunum. Auðvitað má svo sem segja að jólin séu að nokkm leytd hætt að vera kristin hátíð en hafi þess í stað snúist upp í að vera hátíð mammons, og kannski tökum við að einhverju leyti þátt í því. Þegar dætur okkar vora yngri gáfum við þeim alltaf jólagjaf- ir, enda fannst okkur ekki réttlátt gagnvart þeim að þær fengju jóla- gjafir ffá öllum nema okkur foreldr- unum. Nú hefur fjölskyldan stækkað og við höldum enn þessum sið. Við höfum svo okkar eigin hátíð, sem er hátíð gjafa og gestrisni, en hún er undanfari föstu og er haldin síðast í febrúar. Þá gleðjum við hvert annað með gjöfum, höldum fjöl- skylduboð og leggjum áherslu á samvera, eins og hefð er fyrir hjá kristnum mönnum um jólin. I raun hefur bahá’í trúin ekki tekið neina sérstaka afstöðu gagn- vart hátíðum eins og jólunum því hver maður og hver þjóð tekur þetta bara á sinn hátt.“ Trúum á fleiri spámenn Ólafur segir bahá’í trúna yngstu trúarbrögð heimsins. Samkvæmt þeim eiga öll trú- arbrögð heims sameiginleg- an, guðlegan upprana. „Helstu trúarbrögð heimsins hafa komið ffam með vissu milhbili þegar sendiboðar ffá Guði koma til að ffæða mannkynið. Þannig trúum við á Jesúm Krist, Múhameð og alla hina spámennina. Við köllum þetta stighækkandi opinberun og segjum að kennarinn kenni nemendum sín- um í samræmi við það sem þeir hafa hæfileika tdl að meðtaka. Þess vegna sendir Guð spámenn sem opinbera okkur sannleikann efdr því sem við höfum getu tdl þess að meðtaka hann. Yngsti ffæðarinn sem hefur komið er Bahá’u’lláh, sem stofnaði bahá’í trúna árið 1863. Örlítdð á undan honum kom reyndar annar sendiboði, Bábinn, árið 1844, ogvið miðum okkar tímatal við komu hans. Hjá okkur er því árið 163 núna. Þar sem við trúum því að öll trúarbrögð komi ffá Guði má í sjálfu sér segja að við séum líka kristdn. Þegar ég gerðist bahá’íi gerðist ég kristinn affur. Sem unglingur ákvað ég að kristin kirkja höfðaði ekki til mín og hætti að starfa með henni. Eftir að ég gerðist bahá’íi gerðist ég eiginlega meira kristinn en ég hafði verið áður. Munurinn er sá að við trúum á fleiri spámenn en bara Jesú Krist. Við viðurkennum því öll trú- arbrögð, en það er ekki víst að öll trúarbrögð viðurkenni okkur. Eg vil þó taka það ffam að við teljum okk- ur ekkert æðri þeim sem aðhyllast önnur trúarbrögð, bahá’í trúin er bara næsti hlekkur í keðjunni. I ffamtíðinni mun koma annar sendi- boði, Bahá’u’lláh talaði um að þús- und ár myndu líða ffá komu hans þar til næsti spámaður yrði sendur, og þá mun enn bætast hlekkur í keðjuna..“ Eining mannkyns Það er því ekkert í bahá’í trúnni sem bannar Ólafi að fagna jólunum, og það gerir hann með fjölskyldu sinni. „Þessar forsendur trúar okkar banna sumé ekki að við höldum upp á jólin, eða hvaða aðra trúarhátíð sem er og við leyfum okkur al- veg að taka þátt í jólahald- inu upp að vissu marki. En ef við ættum að halda upp á allar helgihátíðir allra trúarbragða heims gerðum við ekki mikið annað,“ nú hlær Ólafur og verður dálítdð dreym- inn á svip. „Það væri nátt- úrulega voðalega gaman, en ég held að fáir hafi efni á eilífum hátíðarhöldum.“ En hvaða hugmyndir hafa bahá’íar um tilveruna og guð- dóminn? „Grundvallarkenning bahá’í trúarinnar er eining mann- kyns, það er bara eitt mannkyn og öll erum við íbúar þessa lands sem heitir Jörð. Til þess að ná því mark- miði verðum við að hlýta nokkram grundvallarreglum. Ein þeirra er að leggja niður fordóma gagnvart öðr- um, hvort sem þeir snúa að kyn- þætti, kynferði, trúarbrögðum eða einhverju öðra. Auðvitað erum við ekki öll eins, við höfum mismunandi hörandslit, upplifum hlutina á mis- munandi hátt og höfum mismun- andi forsendur til þess að skynja heiminn og guðdóminn. Þess vegna leggjum við mikið upp úr sjálfstæðri rannsókn á sannleikanum og bahá’íar hafa því enga klerkastétt. Þess í stað höfum við ákveðið stjóm- kerfi og kosið er í ráð, og þá era all- ir í ffamboði. Aldrei era lagðir fram sérstakir framboðslistar og allur á- róður er bannaður. Ef þú er kosinn til þess að þjóna, þá þjónar þú. Við leggjum líka mikið upp úr því að rækta okkur sjálf andlega, til dæmis með því að fasta einu sinni á ári. Þá neytum við ekki matar ff á því að sól- in kemur upp og þar til hún sest á ný. Þessi fasta er í marsmánuði á hverju ári. Föstuna endum við svo á því að hefja nýtt ár, en nýársdagur hjá okkur er 21. mars. Við biðjum bænir og ástundum andlega lifhað- arhætti, en það er lítið um sérstakar hefðir eða trúarritúöl x bahá’í trúnrú.“ Bindindisfólk Bahaíar á Islandi era um fjögur- hundrað talsins. Ólafur segir þá leggja hart að sér við að breyta eigin Hfemi og þannig endurspegla þær kenningar sem trúin boðar. „Við gerum ekkert, eða reynum að gera ekkert, sem skapar óeiningu. Við drekkum til dæmis ekki áfengi því það er í mörgum tilfellum upp- spretta mikillar óeiningar. Þetta er bara okkar h'fsstíll og við höfum í sjálfú sér ekkert á móti áfengi, það bara tilheyrir ekki okkar h'femi að neyta þess. Við leggjum líka mikla áherslu á að byggja upp fjölskyldu- böndin á sem réttlátastan hátt og teljum hjónabandið heilaga stofhun. Armað er að við bahá’íar tengjum okkur ekki við tdltekirm stjómmála- flokk, þó sum okkar kjósi. Annars vinnum við að umreytingu án andófs og reynum að leggja okkar á vogar- skálamar til að stuðla að einingu og velferð mannkyns.“ ALS Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða Óskum nemendum, starfsmönnum og Vestlendingum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. HASKOLINN ABiFROST www.bifrost.is 311 Borgarnes Sími: 433 3000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.