Skessuhorn - 20.12.2006, Síða 39
.W tr cr
§KgSSUIi©EK|
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
39
Stjóm Sparisjóðs Mýrasýslu árið 1983. F.v. Sigfús Sumarliðason, Gísli Kjartansson, Friðjón Sveinbjömsson sparisjóðsstjói, Magnús Sigurðsson, Þórarinn
Jánsson, Rúnar Guðjónsson og Gísli V Halldórsson
Friðjón Sveinbjörnsson
fyrrverandi sparisjóðsstjóra.
Stofnfé skyldi vera tíu millj-
ónir og að hámarki rynni
fimmtungur hagnaðar af
reglulegri starfsemi spari-
sjóðsins í Menningarsjóð-
inn. Þótt sparisjóðurinn
hefði löngum styrkt góð
málefni, var með þessu búið
að setja um slíka styrki fasta
umgjörð. Fjölmörg verkefni
í héraði hafa notið góðs af
tilvist þessa sjóðs.
„Við Sigfús gengumst
eiginlega fyrir því að sjóð-
urinn yrði stofnaður til
minningar um Friðjón.
Hafa margir sem standa að
menningarmálum ýmis
konar fengið styrki úr þess-
um sjóð. Hæsta upphæð
sem við höfðum greitt úr
sjóðnum, þegar ég hætti,
voru þrjár milljónir til
Reykholtskirkjubyggingar,
en þar hafa menn unnið
stórvirki, sem er ómetanleg
lyftistöng menningar í hér-
aðinu. Héraðsmenn vita nú að
þarna er liðs að leita.“
Félag aldraðra
í Borgarfj arðardölum
Nú búið með flest félagsstörf.
Að baki liggur farsæll ferill sem
margir hafa notið góðs af. Félags-
aðild í ungmennafélaginu Brúnni
er sjálflokið því nýlega var það lagt
niður. Sama á við um sveitarfélag-
ið. Bókasafnið, sem lengi var séð
um með öðrum, á nú að taka af
íbúum sveitarinnar. Framleiðenda-
samvinnufélagið sem þátttaka hef-
ur verið í mestalla æfina, er ekki
lengur til. Enn er verið að syngja,
bæði í Söngbræðrum og nú í vetur
í kór eldri borgara hjá Jóni Þ.
Björnssyni og svo er reglulega
mætt á samkomur í félagi aldraðra.
„Svolítið hef ég líka verið með í
kór Reykholts- og Hvanneyrar-
kirkna, þó ekki í vetur. Enginn fé-
lagsskapur er betri en með fólki
sem syngur. Þar eru nú flestir vin-
ir mínir.
Við Ragnheiður erum bæði í
ellimannafélaginu, sem ég kalla
svo. Komið er saman á hverjum
miðvikudegi, en formlegir fundir
sjaldnar. Þar er eitt og annað sér til
gamans gert. Einhver kemur með
skemmtiefni sem ekki hefur verið
birt, og ef leyfi fæst er það sett í
Gullastokkinn, sem við nefnum
svo. Það er mappa sem við söfnum
í þessum greinum, ljóðum og rit-
gerðum. Eg geri nú svo sem ekki
mikið í þessu félagi, en held utan
um Gullastokkinn. Eg slæ efnið
inn í tölvuna, prenta út og set í
möppuna. Svo tókum við að okkur
að endurskoða örneftiaskrár á fé-
lagssvæðinu og sú vinna er komin
vel áleiðis. Eg hef reyndar líka ver-
ið að hnitsetja örnefni í Gilsbakka-
landi. Er langt kominn með það,
hvort sem ég lýk því nokkurn tím-
an, ég er svo linur í löppunum. Það
er nauðsynlegt upp á ffamtíðina að
örnefnin séu geymd á vísum stað
og haldist við, því nú umgangast
menn landið á allt annan hátt en
var og hætt við að þessi nöfh glat-
ist ef ekki er aðgætt í tíma. Á sumr-
in ferðumst við hjónakornin.“
Upplifað þúsund árin
á einni mannsævi
Sú kynslóð sem Magnús á Gils-
bakka tilheyrir hefur að sumu leyti
lifað þúsund ár Islandsögunnar á
sinni ævi. Þessi kynslóð fær að
kynnast gömlum vinnubrögðum
sem horfin eru. Býr víða í torfbæj-
um en lifir einnig allar þær ffam-
farir sem yngra fólk þekkir ein-
göngu í dag. Vatnaskil í íslensku
samfélagi verður um stríðið. Þá
eignumst við peninga í fyrsta sinn
og ffamfarir eru stórstígar eftir
það. En bretavinnan sleit menn
líka upp, fólk sótti í að
komast í hana. Ekki var
verið að ferðast utan
sveitar að neinu ráði á
yngri árum og fyrsta
ferð í Borgarnes var far-
in fyrir fermingu.
„Það eru forréttindi
að hafa fengið að lifa
svona miklar breytingar
og margt ungt fólk skil-
ur þetta ekki þegar ég er
að reyna að lýsa um-
hverfinu eins og það var.
Eg tel mig ríkari fyrir
vikið. Skilningur á þörf
samhjálpar var trúlega
meiri hjá minni kynslóð,
við vissum hversu mikil-
vægt það var að hver
styddi annan. Allar
framfarir á okkar tíð
urðu í krafti samvinn-
unnar. Samkenndinni
þarf að viðhalda svo
hagur íbúa í héraði haldi
áfram að vænkast," sagði
Magnús Sigurðsson að
lokum.
Dagur er að kveldi kominn.
Haldið er af stað niður brekkuna.
Bæjarhúsin hverfa sjónum í bak-
sýnisspeglinum. Jöklarnir hneigja
kolla sína í kveðjuskyni í tungl-
skininu. Hugurinn fullur af fróð-
leik og þakklæti. Blaðamaður hefur
notið hverrar mínútu í návist
Magnúsar og Ragnheiðar og gest-
risni þeirra. Með tilhlökkun er
hugsað til næsta fundar við þessi
mætu hjón.
BGK
r
Óskum Vestlendingum
öllum gleðilegrajóla og
farsældar á nýju ári.
Þökkum samstarfið á
árinu sem er að líða
V E S T ö R L A N D J
Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi
sími 433 7550
Konráð Konráðsson - Eyjólfur Torfi Geirsson
Gleðileg jól
Sendi mínar bestu óskir um
gleðileg jól og farsæld ó nýju óri
Þakka samstarfið ó órinu
sem er að líða
Magnús Stefánsson
Félagsmálaráðherra
www.xb.is
________________________