Skessuhorn - 20.12.2006, Síða 42
42
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
Systur áttu fyrirbura sama daginn
Voru kallaðir Valentúiusartvíburamir
Systurnar Drífa og Brynja
Baldursdætur eru fæddar með
árs millibili og hafa alltaf verið
samrýndar. Arið 2004 kom í ljós
að þær ættu báðar von á sínu
öðru bami. Fæðingardagurinn
var settur með mánaðar millibili
en báðar áttu þær bömin á Val-
entínusardaginn, þann 14. febr-
úar á síðasta ári. Bömin vom
fædd 11 og 7 vikum fyrir tímann
og vógu aðeins 6 og 9 merkur. I
ár urðu þær aftur bamshafandi á
svipuðum tíma. Drífa og Brynja
sögðu blaðamanni Skessuhoms
frá þessari ótrúlegu tilviljun.
„Okkur fannst alveg nógu
merkileg tilviljun að það ætti bara
að vera mánuður á milli fæðingar-
daganna," segir Brynja og hlær.
„Hildur Arney, dóttir Drífu, átti
að fæðast 29. apríl og Einar
Magni, sonur minn, þann 26.
mars. Auðvitað var rosalega gam-
an að vera svona samferða." Það
vill reyndar þannig til að þær syst-
urnar eru alls fjórar og þær þrjár
elstu hafa alla tíð fylgst að í barn-
eignum. „Anna systir okkar og ég
áttum okkar fyrstu börn með
fyrir það sem eftir var meðgöng-
unnar. Eg var búin að vera þar í
um mánuð þegar vatnið fór að
morgni sunnudagsins 13. febrúar,
en ekkert gerðist fyrr en upp úr
kvöldmat. Hildur var svo fædd
fimm mínútur yfir miðnætti."
Brynja fór upp á Sjúkrahús
Akraness klukkan 2 að nóttu og
Einar Magni var fæddur innan við
þremur klukkustundum síðar.
„Eg fékk svokallað fylgjulos og
var keyrð inn á deild án þess að
hafa talað við neinn í fjölskyld-
unni. Eg ætlaði nú ekki að fara að
láta mannskapinn hafa áhyggjur
af mér þegar Drífa var nýbúin að
eignast eitt stykki Þumalínu!“
„Nei, þú varst
að eiga bam!“
Einar Magni eyddi fyrstu
klukkustundum lífs síns á Akra-
nesi en var svo fluttur þaðan til
Reykjavíkur í sjúkrabíl. I bílnum
var hjúkrunarkona sem átti erfitt
með að átta sig á aðstæðum. „Eg
var að reyna að segja henni að
systir mín hefði verið að eiga barn
Systumar fengu ai bittast meí bömin ífyrsta skipti þegarþau voru orðin átta daga gömul. Þessi mynd er tekin viS það tœkifœri
Brynja og Drífa með Valentínusartvíburana sína.
Flökkusaga
á Vestfjörðum
Hildur Arney fæddist 11 vikum
fyrir tímann, var 6 merkur og 41
cm. Einar Magni fæddist tæpum 7
vikum fyrir tímann, var 9 merkur
og 42 cm. Litlu frændsystkinin
vöktu athygli á sjúkrahúsinu. „Þau
voru kölluð Valentínusartví-
burarnir á vökudeildinni og þetta
þótti rosalega sætt. Sú tillaga kom
strax upp að láta fjölmiðla vita af
þessu en við vildum fá frið svona
til að byrja með. Við vorum samt
alveg heimsffægar á spítalanum,“
segir Brynja og skellihlær. Drífa
bætir því við að starfsfólkið hefði
haft orð á því að svona tilfelli
hefði aldrei komið upp áður.
„Mér skilst að einhvern tímann
hafi systur átt á svipuðum tíma en
aldrei fyrirbura. Eiginlega fannst
mér það fyndnast þegar frænka
okkar sem býr fyrir vestan heyrði
sögu úti í bæ um systurnar sem
höfðu eignast fyrirbura sama dag-
inn. Þetta var orðin flökkusaga á
Vestfjörðum!“
Fengu að vera
saman í stofu
Sjálfar tóku systurnar aðstæð-
unum með jafnaðargeði. „Það
þykir mjög skrítið að liggja með
systur sinni en við töluðum varla
um þetta. Það gerðist svo hratt og
var svo mikið brjálæði allt saman.
Við eyddum dögunum í að mjólka
okkur á milli þess sem við gáfum
börnunum uppi á vökudeild.
Drífa trillaði mér um allt í hjóla-
stól og við fengum að vera saman
í stofu,“ segir Brynja og Drífa
bætir því við að systurnar hafi haft
mikinn stuðning hvor af annarri.
„RS vírusinn var búinn að vera
skæður á þessum tíma. Þess vegna
var búið að herða reglur um
heimsóknir mjög mikið. Systir
okkar mátti ekkert koma og
mamma og pabbi fengu rétt að
stinga inn nefinu. Að því ffátöldu
kom enginn í heimsókn.“
Brynja viðurkennir að sjúkra-
húsvistin hafi engu að síður verið
erfið að mörgu leyti. „Eg var
hræðileg á spítalanum, fannst allt
ómögulegt og grenjaði yfir öllu.
Aumingja Drífa, sém átti í raun
miklu meira bágt, var alltaf milli-
þriggja mánaða millibili," segir
Brynja. „Þegar Drífa varð óffísk
að sínu fyrsta barni reyndist Anna
eiga von á sínu öðru. Þau fæddust
með tveggja mánaða millibili. Svo
fæðast þessi tvö sama daginn og
loks urðum við Drífa ófrískar í ár.
Eg átti í september en hún er
skrifuð í febrúar. Engin okkar hef-
ur náð að ganga með fram að
áætluðum fæðingardegi og í hvert
skipti kemur alltaf sitt hvort kyn-
ið!“
Fæddust með
5 klukkustunda millibili
Þrátt fyrir þessa runu tilviljana
átti enginn von á því sem gerðist
umræddan Valentínusardag.
Drífa hafði legið inni á Landspít-
alanum í fimm vikur áður en að
fæðingunni kom. „Þegar ég var
komin tæpar 24 vikur á leið kom í
ljós að ég var með leghálsbilun og
læknarnir sáu fram á að Hildur
gæti fæðst hvað úr hverju. Eg var
því lögð inn og þurffi að liggja
en hún horfði bara á mig og sagði
blíðum rómi: Nei, elskan - þú
varst að eiga barn,“ segir Brynja
og hlær. „Eg hélt áfram að reyna
að segja henni hvað ég hefði mikl-
ar áhyggjur af Hildi en hún benti
bara á Einar og reyndi að sann-
færa mig um að hann hefði það
bara fínt.“
Drífa átti líka bágt með að trúa
fréttunum í fyrstu. „Eg var á allt
annarri deild af því ég var gengin
svo stutt. Við vorum á vökudeild-
inni til um það bil klukkan þrjú
um nóttina. Svo fórum við bara að
sofa. Þegar ég vaknaði um morg-
uninn og leit á símann sá ég að
Anna systir var mikið búin að
reyna að ná í mig. Eg hringdi í
hana og hún sagði mér að Brynja
væri líka búin að eiga. Eg hélt
þetta væri einhver lélegur brand-
ari og var ekki alveg að skilja
húmorinn."
Frœndsystkinin eru afar samstíga í bókstaflegri merkingu - þau tókufyrstu skrefin með aðeins dags millibili.