Skessuhorn - 20.12.2006, Qupperneq 43
^&usuhuk.
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
43
Böm systranna. Vinstra megin sitja böm Drífu, Hildur Amey og Benedikt. Emilia Anna, elsta dóttir Brynju, situr með nýfieddan bróður sinn Amar Pálma og lengst til hægri er Ein-
ar Magni.
liður milli mín og ljósmæðranna.“
Drífa samsinnir því og hlær: „Þær
sögðu alltaf: „Heldurðu að systir
þín vilji hitt og þetta?“ En þetta
var allt miklu meira áfall fyrir
Brynju. Eg var búin að vera að
undirbúa mig undir að eiga fyrir-
bura vikum saman og hafði fengið
tilheyrandi fræðslu. Þetta gerðist
bara einn, tveir og þrír hjá
Brynju.“
Konur með
risastór böm
Systurnar segja að þótt starfs-
fólk Landspítalans hafi staðið sig
vel hefði margt mátt bemr fara
þessa fyrstu daga. „Það er mjög
léleg aðstaða á spítalanum, bæði
fyrir foreldra fyrirbura og foreldra
veikra barna,“ segir Drífa.
„Starfsfólkið gerir sitt besta en
það hefur náttúrulega ekki tök á
að taka mann í sálffæðitíma. Svo
situr maður niðri á sængur-
kvennagangi þar sem konurnar
sitja í röðum með risastóru börn-
in sín. Maður var eitthvað svo
týndur."
Einar Magni fékk að fara heim
af sjúkrahúsinu eftir tvær vikur en
Hildur Arney fékk ekki að fara
heim fyrr en eftir tvo mánuði. Þá
vóg hún aðeins 2,8 kg. „Hún var
fjögurra mánaða þegar hún náði
fæðingarþyngd sumra barna,“
segir Drífa.
Hraust og heilbrigð
Þótt frændsystkinin séu fædd
fyrir tímann eru þau bæði hraust
og heilbrigð. „Það hefur ekki ver-
ið neitt meira að henni en öðrum
börnum," segir Drífa um dóttur
sína. „Hún verður veik en heldur í
við jafnaldra sína í þroska þótt
hún sé töluvert minni en þeir.“
Brynja segir það með ólíkindum
hversu lík börnin eru. „Þau eru
alltaf nákvæmlega jafnstór og
jafnþung. Svo tóku þau fyrstu
skrefin með aðeins eins dags
millibili þótt hann hafi reyndar
verið lengur að læra að labba. Það
er alveg ótrúlegt hvað Hildur er
dugleg í einu og öllu.“
Brynja er búsett á Akranesi en
Drífa í Reykjavík. „Það er spurn-
ing hvernig við skipuleggjum af-
mælisveislurnar í framtíðinni,“
segja þær og hlæja. „Kannski við
sláum þessu bara saman þótt þetta
yrðu líklega 50 manna veislur með
öllu föðurfólkinu!"
SÓK
VERKTAKI
- Við byggjum upp -
...óskum Skagamönnum
til hamingju me3 nýju
verslunarmiístöðinal
Snjómokstur á Vesturlandi
um jól og áramót
Vegagerðin mun hreinsa snjó eftirtalda daga, á eftirtöldum
leiðum, ef þörf er á um jól og áramót:
Dagana 21. 23. og 26. desember og 2.janúar.
Allar aðalleiðir í Borgarfirði og einnig um Geldigadraga,
í Reykholt og Húsafell.
Allar aðalleiðir á Snæfellsnesi ásamt Utnesvegi að Hellnum, um Alftafjörð'
og Skógarströnd. Einnig um Heydal, Bröttubrekku, Laxárdalsheiði,
flf Svínadal, Reykhólasveit að Reykhólum og í Kollafjörð.
#Á aðfangadag 24. desember og gamlársdag 31. desember verður þjónusta
fram að hádegi á þessum sömu leiðum nema ekki um Geldingsdraga og
: ekki frá Reykholti í Húsafell.
Dagana 20., 22., 27., 28., 29., og 30. desember og 3. janúar erþjónustað
" samkvœmt áætlun.
#Á jóladag og nýársdag verður þjónusta frá kl. 10:00 á leiðum sem venjulega
eru með vetrarþjónustu alla daga, það er Hringvegur, Akrajjallsvegur,
Hvalfjarðarvegur, Snœfellsnesvegur frá Borgarnesi að Hellisandi um
Fróðárheiði, um Vatnaleið og norðanvert Snœfellsnes milli Stykkishólms
og Ólafsvíkur, í Búðardal um Bröttubrekku.
ia Upplýsingar um færð eru veittar í síma 1777
og í talhólfí, í síma 1778
*
Vegagerðin á Vesturlandi