Skessuhorn - 20.12.2006, Qupperneq 51
SBrassmigftBWi
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
51
Með jólakveðju úr Borgamesi
Héðan úr Borgarnesi er allt gott
að frétta. Verið er að byggja fjölda
húsa við Kvíaholt og Stöðulsholt,
bæði parhús og einbýlishús, tvær
blokkir eru í byggingu við Arnar-
klett, svo það ætti nú ekki að vera
mikil húsnæðisekla í „Nesinu"
þegar allt þetta húsnæði verður til-
búið. Byrjað er að grafa fyrir
Menntaskóla á gamla íþróttavell-
inum, en áætlað er að byggingu
hans verði lokið fyrir næsta haust.
Það verður frábært fyrir ungling-
ana okkar að geta stundað fram-
haldsnám hér heima. Hafin er
bygging leikskóla við Ugluklett,
sem er ný gata í Bjargslandi og á
hann að vera tilbúinn næsta vor.
Til að mæta eftirspurn eftir leik-
skólaplássum var svokallað Skalla-
grímshús tekið undir leikskóla
meðan beðið er effir að nýi leik-
skólinn verði tilbúinn. Endurbæt-
ur eru hafnar á gamla mjólkursam-
laginu. Byrjað er á húsum við
Brákarbraut meðfram gamla KB
planinu, þar stóð áður gamli
bragginn suðurfrá eins og sagt var.
Eg vona bara að ég tapi ekki útsýni
heiman frá mér (já, svona getur
maður nú verið eigingjarn).
Sumarið var nú ekkert sérlega
gott, lítið um sólskin og blíðviðri,
það verður bara betra næsta sumar.
Heyskapur gekk brösuglega hjá
okkur. Nú verðum við að kaupa
hey handa hrossunum, það er eitt-
hvað sem við höfum ekki þurft að
gera áður.
Hollvinasamtök Englendinga-
víkur eru mjög ánægð með árið
sem er að líða. Búið að gera gömlu
steinbryggjuna svona líka fína,
skafa ofan af gömlu hleðslunni og
hún löguð þar sem þurfa þótti. I
neðra pakkhúsinu var opnuð sýn-
ing 16. september um Pourquoi-
Pas? strandið. Þá voru liðin70 ár
frá þessum atburði út af Mýrum.
Var opnun sýningarinnar eins kon-
ar vígsla pakkhússins, í glampandi
sól og logni. Maður fyllist stolti
hversu vel til tókst með pakkhúsin
sem sóma sér svo vel nýuppgerð.
Næst er að byrja á gömlu búðinni
og gera hana upp. 22. mars n.k. er
140 afmæli verslunar við Brákar-
poll. Gaman væri að halda upp á
afmælið næsta sumar með ein-
hverjum hætti í Englendingavík.
Það sem hæst ber á þessu ári
hérna í „Nesinu“ er án efa Land-
námssetur Islands. Maður á ekki
orð yfir að lýsa hrifningu sinni
hversu vel hefur tekist til með allt
á þeim bæ. Egils- og Landnáms-
sýningarnar eru alveg meiriháttar
svo ég tali nú ekki um Mr. Skalla-
grímsson, alltaf uppselt á hverja
sýningu, farið að auglýsa sýningar í
apríl á næsta ári. Milli jóla og nýárs
verður frumsýndur sögusöngleik-
urinn „Svona eru menn,“ KK spil-
ar og syngur og Einar Kárason
segir sögu hans. Þetta verður
áhugverð sýning. Eg leyfi mér að
segja; Sigríður og Kjartan til ham-
ingju og velkomin í Borgarnes,
það var hvalreki að fá ykkur hing-
að.
Hjá mér hefur ýmislegt gerst á
þessu ári. Eitt barnabarn bættist í
hópinn, en hún var nú aðeins viku-
gömul þessi elska þegar foreldrar
hennar fluttu til Danmerkur með
alla fjölskylduna. Þar ætla þau að
vera við nám næstu árin. En nú
hefur maður ástæðu til að skreppa
oftar til Danmerkur og þangað er
alltaf jafn gaman að koma. Móðir
mín elskuleg kvaddi okkur 23.
ágúst rúmum mánuði eftir 95 ára
afmælið sitt. Eg segi nú bara að
það er ekki mikið mál að verða
svona aldraður ef maður fær að
vera eins hress og ern eins og hún
var. Það var sama um hvað var tal-
að við hana hún var með allt á
hreinu hvort heldur var körfubolti,
tónlistarviðburðir eða aðrar uppá-
komur, hún vildi fylgjast með sínu
fólki og fylltist stolti þegar Borg-
nesingar stóðu sig vel hvar sem var
í heiminum.
Því sagði hún:
„Borgames er það besta ég veit,
býsna er þar umhverfis fógur srveit
alltaf er hún svo glöð og hress
„the little lady from Borgamess. “
Ég vona að Vestlendingar og
landsmenn allir eigi góða og frið-
sæla jólahátið og að komandi ár
verði okkur öllum gott og gæfu-
ríkt.
Jólakveðja úr Borgamesi,
Ingibjörg Hargrave
Gleðileg jól
ogfarsœlt
komandi ár
,
i
! s
I
Ó'skum mðákiptammmi akkar
áem ag landsmmimun álliun
cjleðileijra jála aij faráældar
á kamandi ári.
móálaptin a avinu
áem er a ð líða.
i
ENGJAASI 2-8 - SIMI 433 9000
'X
Æ