Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 53

Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 53
 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 53 ✓ Agætu lesendur! Brátt er árið 2006 á enda og þeg- ar litdð er til baka finnst manni stutt frá síðustu jólum. Það er meira hvað tíminn flýgur áfram. Hefur þetta eitthvað með aldurinn að gera eða er klukkan farin að ganga hraðar? Þetta er það sem maður verður að sætta sig við og hafa í huga að nýta tækifærin sem gefast, því ekki verður betri tími seinna, það er næstum því víst. Arið 2006 hefur verið íbúum Stykkishólms hagstætt. Þó dró dökkt ský fýrir sólu þegar ungur Hólmari lést í umferðarslysi rétt við bæjardyrnar fýrir nokkrum dögum. Svo hörmulegur atburður hefur mikil áhrif á samfélagið. Þá finnum við vel hvað stutt er í sam- huginn og samúðina. Hér fýlgist fólk hvert með öðru í þægilegri fjarlægð, og þegar eitthvað bjátar á, þá er nærveran til staðar. Svona hörmulegt slys vekur hvern og einn til umhugsunar hversu stutt bilið getur verið milli lífs og dauða. I umferðinni leynast hætt- urnar. Því ber ökumönnum að sýna aðgát í akstri og þegar umferðinni er orðin svo mikil eins og dæmin sanna er það ennþá mikilvægara. Undirstaða hvers bæjarfélags er atvinnulífið. A þessu ári hefur ver- ið næg atvinna hér og er það þakk- arvert. Fram til þessa hefur sjávar- útvegurinn verið lang þýðingar- mesti þáttur atvinnunnar. Frá þeirri grein hafa peningarnir kom- ið. Nú eru 3 ár síðan að skelveiðar voru bannaðar. Afleiðingar þess hafa verið að koma í ljós síðan. Mikilvægi sjávarútvegs í atvinnu- lífinu hefúr minnkað tdl muna og störfum hefur fækkað. Einn þátt- urinn er að útgerð hefur mjög dregist saman og eru aðeins gerðir út 3 bátar sem eru yfir 20 tonn að stærð. Þrátt fýrir fækkun fólks í sjávar- aútvegi hefur ekki komið upp at- vinnuleysi. Þar vegur upp á móti mikill uppgangur sem er í bygg- ingaiðnaði. Mikið hefur verið byggt í Hólminum bæði húsnæði fýrir einstaklinga og stofnanir. Hendur sem áður unnu á sjónum hafa fengið verkefni í landi. A árinu hefur verið unnið að byggingu nýs leikskóla sem er um 550 fermetrar að stærð. Skipavík hf í Stykkishólmi hefur séð um verkið samkvæmt tilboði og nú sér fýrir lok ffamkvæmda. Reiknað er með að flytja í nýja húsið strax á nýju ári og verður þá allt frágang- ið; hús, búnaður og lóð. Það var óvenjulegt að sjá að verið var að planta trjám og þökuleggja um miðjan nóvember eins og um há- sumar væri. En allt virðist vera hægt og óþarfi að horfa til árstíma. Skipavík hefur haft fleirí verk- efni á sinni könnu á árinu. Fyrir- tækið byggði nýtt verslunarhús við Aðalgötuna sem hefur verið tekið í notkun. Þar eru vanir menn að störfum og var byggingatíminn stuttur, eða um 4 mánuðir. Næsta verkefni er að byggja 6 íbúða rað- hús sem á að vera tilbúið eftir 6 mánuði. Það ætti ekki að verða mikið mál. Nýtt pósthús er í byggingu og heyrst hefur að KB banki hafi fengið úthlutað lóð við Aðalgötuna og hafi áhuga á að byggja nýtt hús- næði undir starfsemi bankans. Að loknum framkvæmdum við póst- hús og banka losnar húsnæði sem verður vonandi auðvelt að finna ný verkefni fýrir sem skapa ný störf. Skilyrði til búsetu í Stykkishólmi hafa batnað til mikilla muna á síð- ustu árum og samanburður við höfuðborgarsvæðið er okkur ekki lengur eins óhagstæður. Þjónusta við bæjarbúa er mjög góð á mörgum sviðum. Við höfum gott sjúkrahús og heilsugæslustöð. Lágvöruverslun hefur verið starf- rækt í nokkur ár og samkeppni er að komast á varðandi bensín. Ork- an er að opna bensínstöð, en hing- að til hefúr Olís verið með einu bensínstöðina. Samkeppnin skapar bættan hag bæjarbúa. Með kaup- um Orkuveitu Reykjavíkur á Hita- veitu Stykkishólms lækkaði hitun- arkostnaður um 30%, sem bætti hag bæjarbúa. Til viðbótar má nefna góða sundaðstöðu, golfvöll og veitingahúsaþjónustu. Framtíð Stykksihólms er björt þessa dagana. Ibúar af Reykjavík- ursvæðinu hafa áhuga á að eignast hér hús eða íbúðir. Það er gott til þess að vita að þeir sjái kosti þess að dvelja hjá okkur og staðfestir það í huga okkar að hér er gott að búa. Með þessum orðum sendum við útgefendum Skessuhorns þakkir fýrir gott blað og Vestlendingum óskir um gleðileg jól og farsæld á nýju ári. Gunnlaugur Auðunn Amason. Gleðileg jól ogfarsœlt komandi ár Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða Efnalaug tNJottahús Borgarbraut 55 Borgamesi s. 4371930 j
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.