Skessuhorn - 20.12.2006, Síða 63
ggESsmBMSBlii'I
MIÐVIKUÐAGUR 20. DESEMBER 2006
-V.
að byrja eru bændumir í óða önn að
planta tóbaki, maís og grænmeti.
Uppskerutíminn er síðan í apríl.
Hér hefur fólk ekki sömu tæki og tól
við akurvinnunna og við eigum að
venjast. Þeir eru plægðir með
handafli og er notaður við það haki.
Þeir sem eiga nautgripi nota þá
einnig til að plægja. Venjulega tekur
öll fjölskyldan þátt í að vinna á
akrinum, allt niður í lftil böm. Frí er
gefið í skólum í byrjun regntímans
og taka þá öll böm þátt í að plægja
akurinn og sá. Flestir Malavar eiga
einhvem skika lands sem þeir planta
í hvar sem þeir búa, það er því hægt
að finna akra efst í fjöllum og innan
borga.
Samgöngur
Samgöngur í Malaví era ólíkar því
sem við eigum að venjast. Vegirnir
em mjög lélegir og þarf helst að
vera á fjórhjóladrifhum jeppa til að
komast á milli staða með góðu
móti. Aðalþjóðvegurinn ffá suðri
til norðurs er malbikaður. Hann er
samt mjór og oft holóttur. Vegir
fyrir utan þjóðveginn em flestir
með lélegu malbiki eða moldavegir
sem fara mjög illa á regntímabilinu
og er lítið sem ekkert viðhald á
þeim. Það verður því off ófært í
sum þorpin á regntímanum.
Umferðarmenningin hérna er
einnig ólík okkar. Hér er vinstri
umferð enda gömul bresk nýlenda.
Mikið er af gangandi og hjólandí
fólki sem virðist ekki gera sér grein
fyrir að það þurfi að víkja fyrir bíl-
um. Þegar ekki er verið að passa sig
á fólkinu þarf að sveigja ffam hjá
geitum, kindum og hænum sem
hlaupa reglulega yfir götuna. Síðan
em flestir stærri bílar með stefnu-
ljósin á í tíma og ótíma svo erfitt er
að vita hvenær þeir ætla að beygja
eða hvort þeir vilja bara hleypa
ffam úr sér. Hér era engir strætis-
vagnar heldur em minibusar sem
keyra fólk á milli staða. Þessir
minibusar eru í mjög misjöfnu
Akuryrkja í Malaví.
Vatnið sótt í vatnsbólið.
ástandi. Flestir era einhvernvegin
bundnir saman til að loka hurðum
og skotti. I flestum ef ekki öllum
tilfellum era u.þ.b. 30 manns í bíln-
um en þeirmega bara taka 14 far-
þega. Það virðist vera endalaust
troðið. Svo þegar bíllinn er fullur
er farið af stað, ekki farið effir ein-
hverri áætlun. Fólk fær einnig far
með pallbílum og era að okkar mati
off allt of mikið af fólki á pallinum.
Hér er pallurinn bæði fylltur af
farmi og fólki og síðan er fólk tekið
uppí ef það stendur í vegakantinum.
Þessi ferðamáti er auðvitað stór-
hættulegur og heyrast annað slagið
fféttir af slysum þar sem pallbílar
hafa lent í árekstri eða oltið. Hér er
líka tæpast hægt að taka leigubíla.
Reyndar era nokkrir leigubflar í
borgunum en það þarf að þekkja
mann sem þekkir mann til að fá
símanúmerið hjá öraggum leigubfl-
stjóra. Við eram svo heppnar að
bróðir varðarins okkar er leigubfl-
stjóri svo við þurftum ekki að leita
langt.
Rútur fara á milli helstu borga en
þær era í ffekar lélegu ástandi og
getur tekið langan tíma að ferðast á
milli staða. T.d. getur tekið sjö klst
að ferðast leið sem tekur tæpar
þrjár klst venjulega. Ein lest er í
Malaví sem gengur ffá suðri til
norðurs og sinnir aðallega ffakt-
flumingum þar sem bæði er fljót-
legra og ódýrara að taka minibus.
Einnig sigla tvær ferjur á vatninu
milli suðurs til norðurs. Flestdr
Malavar hafa ekki eftii á að nota al-
menningssamgöngur og mjög fáir
eiga bfla sjálfir. Flestir fara um fót-
gangandi eða á hjóli þannig að það
getur tekið þá langan tíma að kom-
ast á milli staða. Þeir bera einnig
oft þungar birgðir langar leiðir,
konurnar á höfðinu og karlarnir á
hjólum.
Ar
Þrátt fyrir mikinn menningar-
mun á Islandi og Malaví höfum við
aðlagast lífinu hér nokkuð vel. Við
eram nánast á hverjum degi að
upplifa eitthvað nýtt og er þetta
reynsla sem við hefðum ekki viljað
missa af.
Með hátíðakveðju til Islands,
Fríða Björk Skúladóttir
Asta Rut Ingimundardóttir
Bjamheiður Böðvarsdóttir
'V* ’ * #
* é *
Zjí* * ' • • r* ^ -v-C* * • 1, ' *
.■ * * * *
'é
«.4 :4
Eftirtaldir aðilar óska viðskiptavinum og
Vestlendingum öllum gleðilegra jóla, árs ogfriðar
með pökkfyrir árið sem er að líða.
Gösli ehf.
Brákarbraut 20
Borgarnesi
(BJARMARf)
Vélaverktakar
S. S93 3365 og 894 4465
Fjöruhúsið Heilnum
s. 435 6844
Grundarfjörður
GÍSUJÓNSSON EHF
Körfubilaþjónusta, lelga vlnnuvéla
og hjólbaröaþjónusta
Suðurgötu 65 - Akranesi - Sími 431 1458
S/m/ 431-3480 GSM 893-5536
HUSASMIÐJAN
...ekkert mál
POSTURIN N
allur pakkinn
* , : é ,'Tj- ^ : * 4 .r ® ^
4 f', * "■* ■■ * * 4* ::
h . * 4 f l: p •#■ * .”
.4 4 >'* * • 4
m ^ ‘ * * + : *■ * ’ '1 >N- 4 * , m
* ■ >/'*■-’l.* 4 f. * "4 v 4
m o
* **