Skessuhorn - 20.12.2006, Síða 73
-.^1 ,M. ..
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
73
Djópalón er einn staöurinn á Snæfellsnesi þar semferöamenn leggja gjarnan leið sína á ogþar má finna hinafrægu aflraunasteina
sem margir reyna sig á, en náttúrufeguröin er einnig einstök. A þessari myndfrá 1985 er Kristján Hjelm að ganga með fjörunni í
leiðindarveöri.
Fyrsta hrefnan skotin. Guðmundur Haraldsson, skipstjóri á Nirði heldur á hjartafyrstu hrefnunnar sem veidd var eftir langt
veiðistopp. Fjölmiðlar höfðufylgst grannt með Nirði en nýlega gefist upp á biðinni. Alfons siglir til móts við Njörð og nœrþessari
mynd semfagnar augnablikið betur en orðfá lýst. Henni var síðan dreift tilfjölda landa víðsvegar um heim og í bréfi sem var sent
til Morgunblaðsins frá náttúruvendarsamtökum var sagt að enginn mynd hafi skaðað ímynd Islands eins mikið ogþessi.
Mannbjórg varð þegar Dritvík SH 412 frá Ólafsvík skemmdist í eldi á Breiðafirði og sökk í
kjólfarið eftir að hafa verið dregin til hafnar í Ólafsvtk. Sprenging varð rétt eftir að áhöfnin
yfirgaf bátinn. Fimm manna áhöfn Dritvíkur var bjargað um borð í Ingibjörgu SH 174.
Eldur kom upp í vélarrúmi bátsins er hann var að veiðum á Breiðafirði, um 16 til 17 sjómtl-
ur norður afRifi. Varðskipsmenn á Óðni og slökkvilismenn frá Ólafsvtk sjást hér við störf um
borð í Dritvík, en stjómborðsdekkið var þáfarið að gefa sig.
Þessar fiereysku dömur voru ánægaðr með lífið og tilveruna á Færeyskum dögum sem eru
haldnir í Ólafsvík.
Hans Þorsteinsson vélstjóri er hér á spjalli við Guðlaug Guðmundsson útgerðarmann árið
1987. Þeirfélagar eru nú báðir látnir.
Ekki mátti tæpara standa þegar grófustjóra var bjargað úr hjólaskóflu sem hafði lent úti í
brimgarðinum við Ólafsvíkurenni. Sonur mannsins lagði sig í mikla hœttu við að bjargafóð-
ur sínum og munaði minnstu að illafœri þegar brimið hreif hann með sér og kastaði honum
til ogfrá t stórgrýttri jjörunni. „Það er ekki hægt að lýsa tilfinningunni. Maður veit ekki
hvað snýr upp og hvað niður. Það eru bara ægileg högg og hávaði, “ sagði Svanur Tómasson í
samtali við Alfons. Fyrir myndþessa, þegar Svanur var dreginn á land eftir að hafa lamist í
grjótinu t ísköldum jónum, fékk Alfons fyrstu verðlaun íLjósmyndasamkeppni „Okkar
manna 2003, “ sem eru Ijósmyndaraverðlaun Morgunblaðsmanna.