Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Page 75

Skessuhorn - 20.12.2006, Page 75
SBESSUHÖiEK V5f F MIÐVDCUDAGUR 20. DESEMBER 2006 75 /l/U/l/l*,. Einkaframkvœmda - SSV á villigötum í fréttum fjölmiðla á þriðjudag í liðinni viku var rætt við Sigríði Fin- sen, formann Samtaka sveitarfé- laga á Vesturlandi um tvöföldun Vesturlandsvegar. Þar kom ffam hjá formanninum að hann vildi að farið yrði í einkaffamkvæmd á tvö- földun vegarins, ffá Reykjavík og upp í Bifföst og að rætt yrði við forsvarsmenn Spalar hf um að taka verkið að sér. Maður fer að velta fyrir sér, hvers við eigum að gjalda, sem búum á Vesturlandi og hvort allar vegaffamkvæmdir sem framkvæma þarf í þeim landshluta þurfi að fara í einkaffamkvæmd. Reynsla okkar hér á landi af einkaffamkvæmd er sú að þeir sem þurfi að ferðast um þessa vegi, eigi að borga fyrir af- notin. Sturla Böðvarsson, samgöngu- ráðherra hefur ekki viljað heyra á það minnst að ríkið taki yfir skuld- ir Spalar hf vegna Hvalfjarðar- gangna og að veggjald verði lagt niður. Hann hefur hinsvegar margoft biðlað til forsvarsmanna Spalar hf um að þeir fari í gerð Sundabrautar og að um verði að ræða einkaffamkvæmd, sem myndi vafalaust þýða það að vegfarendur þurfi að borga fyrir afhotin. Einnig hefur Sturla tilkynnt að innan örfárra ára þurfi að tvöfalda Hvalfjarðargöng, vegna þess að umferð þar sé svo mikil að þau anni þeim ekki óbreytt. Ef farið verður að tillögum ráðherrans, þá verður komið þrefalt veggjald á þennan stutta vegspotta, frá Reykjavík og yfir Hvalfjörð. Er það sanngjamt? Þegar formaður SSV lagði það til í fjölmiðlum á þriðjudag, að það þurfi að flýta tvöföldun Vestur- landsvegar og að verkið yrði unnið í einkaffamkvæmd hugsanlega af Speh hf, var eins og sjálfur sam- gönguráðherrann væri að tala, svo lík vora sjónarmið formanns SSV og ráðherrans. Er ekki kominn tími til þess að ríkið skili til baka einhverju af því fjármagni, sem það hefur innheimt sl. áratugi í formi vegaskatts sem lagt hefur verið á eldsneyti. Eðli- legt væri að ríkið byrjaði á því að taka yfir skuldir Spalar hf vegna Hvalfjarðarganga og í ffamhaldi af því að leggja niður veggjaldið þar. Svo þarf samgönguráðherrann að hætta að hugsa um einkafram- kvæmdir í þjóðvegakerfinu, það er löngu búið að innheimta nóg í rík- iskassann af sköttum sem nota átti í uppbyggingu þjóðvegakerfisins. Hvers eigum við að gjalda sem búum á Vesturlandi og þurfum mikið að nota umrædda vegi, þar sem verið er að innheimta veggjald og stendur tdl að innheimta meira veggjald? Kveðja, Gísli B. Amason www.skessuhorn.is ffrí/i/u/i/t~,„ Samvera bama og foreldra um hátíðimar Desember er mánuður vökunátta og prófa, stress og jóla- undirbúnings, spennufalls og afslöppunar; hversdagurinn breyt- ir um takt og getur orðið erfiður bömum, unglingum og foreldr- um. Til að skapa jafnvægi er sam- vera fjölskyldunnar því mikilvæg sem aldrei fyrr. Samverustundir fjölskyddunnar eru sterkasti þátturinn við að mynda góð tengsl. Þó fjölskyldur séu ólíkar að gerð og stærð eiga þær það sameiginlega meginverk- efhi að búa þannig að bömum að bestu kostir þeirra fái að njóta sín; að fjölskyldulífið varðveiti og efli heilbrigði og þroska bama og að þau njóti hlýju, virðingar og ör- yggis. Þannig verði þau betur í stakk búin að takast á við verkefni lífsins. Rannsóknir hafa sýnt að því meiri tíma sem böm, ungmenni og foreldrar verja saman þeim mun minni hætta er á að unga fólkið leiðist út í misnotkun vímu- efha. Þó að hvaða bam sem er geti lent í vanda vegna áfengis- og vímuefhaneyslu sýna rannsóknir að aðstæður og atlæti sem börn búa við skiptir miklu máli um hvernig þeim reiðir af í lífinu. I því er ábyrgð foreldra fólgin. Foreldr- ar geta haft afgerandi áhrif á áfengis- og vímuefnaneyslu bama sinna eins og annað er varðar hegðun þeirra og lífsvenjtir. For- eldrar em mikilvægar fyrirmyndir. Þar virðast gerðir þeirra og hegð- un vega þyngra en orð. Reglur um útivistartíma bama og unglinga em fyrst og ffemst settar til að vemda börnin okkar. Það er marg sannað að efdrlitslaus»' böm em líklegri en önnur böm til að byrja að reykja og prófa áfengi eða önnur vímuefni. Jafnfhamt er þeim hættara en öðram til að verða fórnarlömb eða gerendur ofbeldisverka eða afbrota. Við viljum hvetja foreldra að sýna ábyrgð og við minnum á að reglur um útivistartíma barna og ungmenna era í fullu gildi - lika um jól og áramót. Munið að forvamir byrja heima og foreldrar era mikilvægustu for- vamafulltrúar barna og unglinga. Með þetta að leiðarljósi viljum við hvetja til samvista fjölskyld-s* unnar um jól og áramót. Gleðilegjól! Heiðrún Janusardóttir, Hafdís Dögg Hafsteinsdóttir og Vdldís Sigurðardóttir fr^ö/l/li/l/l^,. Yfrrlýsingfrá Landssambandi eldri borgara, LEB og Aðstandendafélagi aldraðra, AFA Landssamband eldri borgara og AFA - Aðstandendafélag aldraðra lýsa miklum vonbrigðum með þá niðurstöðu Alþingis við lokaaf- greiðslu fjárlaga fyrir árið 2007, að fella ffamlagðar breytingartil- lögur: annars vegar um að frí- tekjumark vegna atvinnutekna líf- eyrisþega verði krónur 70 þúsund á mánuði og hins vegar að Fram- kvæmdasjóði aldraðra verði bætt þau ffamlög sem farið hafa í rekst- ur stofnana í stað framkvæmda sem ákveðnar hafa verið á undan- förnum áram og nema orðið um 5 milljörðum króna. Eftir afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 2007 hefur ríkisstjórnin grip- ið til smávægilegra leiðréttinga á greiðslum til örorku- og ellilífeyr- isþega. Hægt verður að flýta að- greiningu frá tekjum maka, frí- tekjumörk vegna atvinnutekna samræmd milli öryrkja og aldr- aðra og að unnt verður að dreifa töku séreignasparnaðar yfir heilan áratug. Halda menn að aldraðir og öryrkjar hafi upp á heilu ára- mgina að hlaupa?! Affam verður þó hagstæðast fyrir elllífeyrisþega að taka séreignarspamað út í einu lagi áður en viðkomandi hefur töku ellilífeyris. Eftdr standa svo skerðingar m.a. vegna tekna úr lífeyrissjóðum frá fyrstu krónu. Sá sem býr einn og hefur tekjutryggingu og heimilis- uppbót heldur aðeins eftir 3.100 kr. af 10.000 kr. 69% fara í tekju- skatt og skerðingu. Þá stendur eftir krafan um hækkun grunnlíf- eyris, sem verði óskertur til allra lífeyrisþega. Aðgerðir núverandi ríkisstjórn- ar sýna, svo ekki verður um villst, að fulltrúar ríkisvaldsins í sam- ráðsnefndinni sálugu, höfðu ekki viðunandi samningsumboð. Það má því vera sérhverjum lífeyris- þega ljóst, að stjórnarflokkunum er ekki treystandi til að standa að endurskoðun og heildarappstokk- un almannatryggingakerfisins, endurskoðun skerðinga og flutn- ingi á málefnum aldraðra ffá heil- brigðisráðuneyti tdl sveitarfélag- anna. Til þess að vel megi tdl takast, þarf samstöðu allra flokka á Alþingi. Sú tdllaga stjórnvalda sem sam- þykkt var um 2 5 þúsund króna frí- tekjumark á mánuði vegna at- vinnutekna lífeyrisþega, nær allt of skammt, enda um brot að ræða af meðaltekjum í landinu. Nú er vinnuaflsskortur í þjóðfélaginu og með því að miða ffítekjumarkið við 70 þúsund krónur á mánuði, hefði skapast raunveralegur hvati til þess að lífeyrisþegar nýttu krafta sína frekar á vinnumarkaði og bætt um leið kjör sín. Frá 1992 hefur nærri helmingi þess fjár sem landsmenn hafa greitt í Framkvæmdasjóð aldr- aðra, verið varið í rekstur og ýmis önnur verkefni sem orka tvímælis að séu í samræmi við lög, í stað nýbygginga og endurbóta á hjúkr- unar- og dvalahreimilum. Afleið- inginn er mikill skortur á hjúkr- unarrými og fjöldi aldraðra býr enn á fjölbýli á hjúkrunarheimil- unum. Með því að skila Fram- kvæmdasjóði aldraðra aftur þeim fimm milljörðum, sem teknir hafa verið til rekstrar á undanförnum áram, hefði skapast tækifæri til að gera stórátak í búsetu- og umönn- unarmálum aldraðra. I ljósi þess að við blasir að gera þarf stórátak í kjarmálum og bú- setumálum aldraðra, verður það að teljast óábyrgt af stjórnvöldum, að láta líta svo út sem nú sé verið að bæta stórlega hag aldraðra á öllum sviðum. Ljóst er að LEB og AEA þurfa að skerpa enn ffekar á réttindamálum sínum og halda áfram skeleggari baráttu en nokkra sinni fyrr, með öllum tdl- tækum ráðum. Málefni aldraðra * þola enga bið. Stjóm Landssambands eldri borgara Stjóm AFA - Aðstandendafélags aldraðra /l/U/l/l^,. Saltvegaakstur Gísla Ein- arssyni leiðist að aka eftir söltuðum veg- um eins og fram hefur komið í þessu blaði. Mér leiðist að aka eftir sölt- uðum vegum. Ennffemur þekki ég ekki neinn sem óskar eftir að þjóðvegirnir séu saltaðir. Bíllinn minn getur rannið til í saltpæklin- um rétt eins og bíll Gísla. Eg útbý minn bíl á haustin með bestu fá- anlegum vetrardekkjum (nagla- lausum), og ég býst við því að svo geri einnig þeir sem þurfa að aka daglega 90 - 100 km eftir þjóð- vegmurn. Leiðin sem ég ek, er Akranes - Reykjavík og til baka að kvöldi. Sumir kaflar á þessari leið era saltaðir meira, eins og gegnum Mosfellsbæinn, og sumir heldur minna, en samt allt of mikið, eins og frá Hvalfjarðargöngum að Mosfellsbæ. Og minnst er saltað- ur kaflinn frá Akranesi að göng- um. Þessir kaflar era yfirleitt salt- bornir strax og frystir, jafnvel áður en snjóar. Síðan þegar byrjar að snjóa verður vegurinn blautur og veiðir hvert snjókorn sem fell- ur á hann, meðan ekki festir snjó á ósaltaða veginum ef vindur er. Og alltaf er það ósaltaði kaflinn sem er fyrstur orðinn þurr í ffostinu og þar er hálkan því yfirleytt minnst. Því spyr ég; fyrir hvern er verið að salta vegina og í hvaða tilgangi? Er þetta gert af tómri ill- kvittni þeirra sem ráða þessum málum? Er einhver sem getur sýnt fram á það með óyggjandi rökum að það sé einhver bót af þessum saltaustri? Svo ekki sé minnst á allt tjónið sem þetta veldur á bílunum! Og öll um- hverfismengunin! Og allt saltið og uppleysta tjaran sem berst inn í Hvalfjarðargöng! Sú mengun sem þangað barst síðastliðinn vet- ur, var ekki hreinsuð fyrr en kom- ið var fram á vor. Og þá spyr ég; á ekki að fara að hreinsa gólfið í göngunum? Eig- um við að aka göngin í þessum rykmekki og slæma skyggni, í all- an vetur og fram á vor, rétt eins og í fyrra? Eg óska eftir svari frá að- ilum sem stjórna þessum málum. Ennfremur vil ég að þeir gefi sig fram, sem virkilega vilja frekar, og telja sig þurfa að aka á söltuðum vegunum. Þar sem bréffitari þyk- ist svolítið umhverfissinnaður, þá gleðst hann yfir því að sífellt færri ökumenn kjósa að aka á nagla- dekkjum. Enda bjóðast margir vænlegir kostir í vetrardekkjum, ýmist sérskornum dekkjum úr mýkra og stamara gúmmíi, loft- bóludekkjum og svo ýmis konar harðkorna dekkjum sem öll eiga það sameiginlegt að koma jafh vel eða betur út úr prófunum, heldur en nagladekk. Með allt þetta ágætis úrval vetrardekkja sem er í boði, þá er okkur gert að aka bara í saltpækli þannig að eiginleikar dekkjanna nýtast ekki einu sinni. Eg spyr því aftur, fyrir hvern er verið að salta vegina? Eg vil að lokum skora, bæði á stjórn Spalar og stjórn vegamála, að svara þeim spurningum sem beint er til þeirra í þessum pistli. Stefán Magnússon

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.