Morgunblaðið - 27.06.2019, Síða 52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili
Marta María
mm@mbl.is
Ég hitti Ólaf Elíasson í Almhult í
Svíþjóð þar sem hönnunardagar
IKEA voru haldnir á dögunum. Í
fyrra var samstarf Ólafs og IKEA
kynnt en í ár er verkefnið komið
lengra á leið þótt það komi ekki á
markað fyrr en eftir tvö ár.
Á hönnunardögunum var Ólafur
og samstarfsverkenið með sér bás
þar sem verkefnið var kynnt og
fumgerð þess sýnd. Frumgerðin
gefur óljósa sýn á það hvernig ljósið
mun líta út þegar það kemur á
markað.
Ólafur er einn af þekktustu núlif-
andi listamönnum í heiminum í dag.
Hann er þekktur fyrir skúlptúra
sína og innsetningar þar sem hann
vinnur meðal annars með ljós, vatn
og lofthita. Hann hannaði til dæmis
glerhjúpinn utan um Hörpu sem
gefur Reykjavík allt annan svip. Í
vikunni bárust fréttir af því að hann
hafi verið fenginn til að lýsa upp
Sigurbogann í París með innsetn-
ingu og verði verkið afhjúpað á
næsta ári en kostnaðurinn við verk-
ið er um 400 milljónir króna. Hann
mun einnig opna stóra yfirlitssýn-
ingu á verkum sínum í Tate Mod-
ern-safninu í Lundúnum og mun
sýningin opna í júní 2020.
En hvers vegna vinnur einn
þekktasti listamaður heims með fyr-
irtækjum eins og IKEA?
„Ég hef unnið í sjö ár með Little
Sun, sem er góðgerðarverkefni, og
höfum við selt um milljón ljós. Þeg-
ar IKEA heyrði af því vildu þau
koma í samstarf. Við erum umhverf-
isvæn og gefum fólki möguleika á að
leika sér með sólina, hlaða batteríin
og hafa ljós,“ segir Ólafur og bætir
við:
„IKEA hefur verið að hugsa um
svipuð mál og við hjá The Little Sun
og hugsar mikið um sjálfbærni eins
og hvernig tré verður að mublu og
hvernig hægt er að nýta efniviðinn
sem best. Þeir hjá IKEA buðu mér
og fólkinu sem vinnur með mér í
The Little Sun í Berlín á vinnustofu
sem var mjög gaman. Þeir eru svo
stórir og þess vegna býður verk-
efnið upp á svo miklu meiri mögu-
leika. Helst áskorunin er hvernig
hægt er að framleiða eitthvað sem
er nógu ódýrt til þess að fólk á Ís-
landi og í Bangladess og víða um
heim, geti keypt það.“
Ólafur segir að þau séu að reyna
að finna rétta efnið í ljósið þessa
dagana en það er ekki alveg fundið.
Efnið þarf að vera sjálfbært og
ódýrt og það verður að vera tryggt
að efnið skemmi ekki náttúruna eft-
ir 10, 15 eða 20 ár.
„Þetta er allt öðruvísi ferli en þeg-
ar ég er að vinna sem listamaður. Þá
geri ég bara einn hlut og hann er
kannski svolítið dýr. Ég er því að
læra mikið af þessu því þetta er allt
öðruvísi en ég er vanur að vinna.“
Hann segir að það sé líka áhuga-
vert að skoða framtíðarheimilið og
hvernig hugmyndir fólks um heimili
eru að breytast.
„Kúnnarnir hjá IKEA eru mikið
ungt fólk sem býr þröngt og býr
kannski þannig að það megi ekki
bora í veggina. Þá er gott að eiga
sólarplexus sem má hafa úti og inni
og er færanlegur. Batteríið í ljósinu
skiptir miklu máli. Það er svolítið
eins og að eiga peninga í banka.
Þegar það er hlaðið þá getur það
lýst upp eða hlaðið raftæki eins og
síma eða iPad. Það mun þó aldrei
verða það öflugt að það geti knúið
áfram sjónvarp eða stóra tölvu.
Í fyrstu var hugmyndin að gera
lampa sem er fastur við loft eða
veggi en svo fórum við að skoða
hvað það er sem ungt fólk sækist
eftir. Ungt fólk í dag hagar sér allt
öðruvísi en þegar ég var ungur. Þá
sat ég við borð til dæmis en ungt
fólk í dag liggur uppi í rúmi eða á
gólfinu með tölvuna sína. Tölvan í
dag er ekki föst neins staðar og þess
vegna verður þetta að vera þannig
að hægt sé að taka ljósið alltaf með
sér. Hvort sem maður er að fara
niður í geymslu eða út í bílskúr.“
Ólafur og framtíðarheimilið
Ólafur Elíasson listamaður er að vinna með IKEA
að ljósi sem er hlaðið með sólarorku. Þegar ég hitti
hann á dögunum útskýrði hann fyrir mér hvers
vegna hann hafi ákveðið að vinna með IKEA.
Fegurð Hér má sjá frumgerð af ljósinu sem Ólafur Elíasson er að hanna í samstarfi við IKEA. Hér er ekki verið að fást við litapallettu eða annað heldur form og mikla notkunarmöguleika.
Vinnur með IKEA Marta María
Jónasdóttir og Ólafur Elíasson í
Almhult í Svíþjóð.
Heillandi heimur Lífsgæði fram-
tíðarinnar snúast um sjálfbærni.