Morgunblaðið - 27.06.2019, Page 53
Flestir Íslendingar þekkja KEA skyr enda hefur
vanilluskyrið verið mest selda skyrið á íslenskum
markaði undanfarin ár og þykir algjörlega
ómissandi á mörgum heimilum. Í tilefni þess að
30 ár eru liðin síðan KEA skyr var sett á markað
var ákveðið að gefa þessari íslensku skyr-
fjölskyldu andlitslyftingu og bjóða neytendum
upp á spennandi nýjungar í leiðinni.
Allar tegundir eiga það sameiginlegt að vera
með eindæmum bragðgóðar, þær eru prótein- og
næringarríkar og að sjálfsögðu unnar úr hágæða
hráefnum.
„Það sem einkennir nýjar umbúðir er stílhrein
hönnun, fallegir litir og skýr skilaboð til neyt-
enda. Við viljum gera fólki auðveldara fyrir að
finna sitt uppáhaldsskyr og vekja athygli á eign-
leikum vörunnar,“ segir Guðný Steinsdóttir,
markaðsstjóri MS.
Fyrst ber að sjálfsögðu að nefna þetta gamla
góða KEA skyr – sígilda og vinsæla bragðið sem
allir þekkja og allir elska, ýmist eitt og sér eða í
bland við ávexti og fleira góðgæti í hollri hræru,
en hér hefur fólk val um hreint skyr, vanilluskyr
og bláberja- og jarðarberjaskyr.
Fyrri nýjungin af tveimur í vörulínunni er nýtt
tveggja laga KEA skyr þar sem hreint og silki-
mjúkt skyrið liggur ofan á bragðgóðum ávöxtum
í botni dósarinnar. Til að byrja með verða tvær
bragðtegundir í boði, með mangó í botni og með
jarðarberjum í botni. Þessar tegundir eru full-
komnar fyrir alla sem vilja hræra aðeins upp í
hlutunum og prófa eitthvað nýtt. Hér er við-
bættum sykri haldið í lágmarki en í hverjum 100
g eru einungis 4 g af viðbættum sykri.
Seinni nýjungin er kolvetnaskert KEA skyr
sem hentar núverandi og verðandi skyrunn-
endum sem vilja draga úr neyslu kolvetna án
þess að gefa neinn afslátt af góðu bragði. Hér
hafa neytendur val um þrjár bragðtegundir,
vanillu-, jarðarberja- og banana- og það er svo
kaffi- og vanilluskyrið sem setur punktinn yfir i-
ið en það er væntanlegt í verslanir á næstu vik-
um. Kolvetnaskert KEA skyr inniheldur engan
viðbættan sykur, einungis sykur frá náttúrunn-
ar hendi (mjólkur- og ávaxtasykur) og sætuefn-
um er haldið í lágmarki.
Nú hafa landsmenn þrjár leiðir til að njóta
KEA skyrs og ættu því allir skyrunnendur að
finna eitthvað við sitt hæfi.
KEA skyr fagnar 30 ára afmæli
Nýtt útlit og nýjar bragðteg-
undir blasa nú við í hillum versl-
ana mörgum til mikillar gleði.
Tveggja laga Fyrri nýjungin af tveimur er
nýtt tveggja laga KEA skyr þar sem hreint og
silkimjúkt skyrið liggur ofan á bragðgóðum
ávöxtum í botni dósarinnar.
Sætuefni í lágmarki Kolvetnaskert KEA
skyr inniheldur engan viðbættan sykur, ein-
ungis sykur frá náttúrunnar hendi og sætu-
efnum er haldið í algjöru lágmarki.
Nýjar umbúðir Nýju umbúðirnar
koma einstaklega vel út.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Frábært úrval af
sundfatnaði