Morgunblaðið - 27.06.2019, Síða 54

Morgunblaðið - 27.06.2019, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18 Sérhæfum okkur í hreinsun á viðkvæmum fatnaði „Slagorðið okkar í sumar er „hækkaðu í gleðinni“ og ætlum við heldur betur að standa við það,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson eða Siggi Gunnars, dagskrárstjóri K100. „Við breytum dagskránni aðeins í sumar, lengjum morgun- þáttinn til 10, svo tekur Erna Hrönn við með bestu tónlistina og létt spjall þar á eftir fram til kl. 14,“ segir Siggi sem mun svo stýra nýjum sumarsíðdegisþætti frá kl. 14 til 18. „Áherslan verður á stutt og hnitmiðuð viðtöl, góða tónlist, skemmtun og svo ætlum við náttúrlega að vera með puttann á púlsinum á því helsta sem verður um að vera hjá þjóðinni í sumar- fríinu.“ Stöðin ætlar sér einnig að vera dugleg að gleðja hlustendur með hinum ýmsu glaðningum, hvort sem það verða draumasum- arfrí eða réttu græjurnar og gott- erí til þess að hafa með í fríið. „Við förum með bros á vör inn í sumar- ið með létta sumardagskrá og hlökkum svo til að kynna flotta vetrardagskrá þegar líða tekur á sumarið,“ bætir Siggi við en K100 hefur verið í miklum vexti á síðastliðnum vetri og fagnaði ein- um af bestu hlustunartölum frá upphafi í síðustu viku. Hækkum í gleðinni í sumar Í gær hófst sumartíminn á K100. Stöðin skipti um ham og ný sumar- dagskrá leit dagsins ljós, sem verður í gildi í júlí og ágúst. Í sumarskapi Siggi Gunnars blóm- legur í stúdíói K100. Svanberg Halldórsson gekk 12 sinnum upp á Esju á einum sólar- hring á dögunum. Hann kom haltrandi í heimsókn til Ísland vaknar á K100 á dögunum og sagði frá þrekrauninn. Ákvörðunin var tekin fimmtán klukkustundum fyrir brottför. „Ég hef verið þekktur fyrir að taka skyndiákvarðanir í lífinu og þessi fæddist þegar ég var að vafra á Facebook, en þar sá ég mynd af einhverri vitleysu sem ég fram- kvæmdi fyrir tíu árum og ákvað að núna væri kominn tími fyrir eitt- hvað nýtt.“ Svanberg segist hafa reiknað með því að vera einn á ferð, en þar sem hann á svo góða vini og fjölskyldu, endaði þrekraunin með því að það voru einungis tvær ferðir sem hann fór einn upp á fjallið. Hann viðurkennir að ferðin hafi tekið á líkamlega og andlega og þegar verkefninu var lokið voru einungis fjórar tær heilar, á þeim voru bæði sár og blöðrur og sömu- leiðis missti hann þrjár neglur af tánum. Hann sér ekki eftir að hafa komið sér heim eftir að síðustu gönguferðinni upp á þetta fjall höfuðborgarsvæðisins var lokið. islandvaknar@k100.is Meira en hálfnaður og farinn að þreytast. Þrekraun fyrir Ljósið Svanberg Halldórsson gekk tólf sinnum upp á Esju á einum sólarhring á dögunum. Tilgangurinn var að safna áheitum fyrir Ljósið, sem er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Svanberg var bara nokkuð brattur eftir eina af fyrstu ferðunum. Þegar hér er komið sögu er farið að líða á seinni hluta átaksins. Kominn að Steini í síðasta sinn. Alveg búinn á því við heimkomuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.