Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 56
56 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
Davíð Ólafsson
Viðskiptafræðingur
og löggiltur fasteignasali
897 4732
davido@atvinnueign.is
Síðumúli 13 - 108 Reykjavík - S. 577 5500 - atvinnueign.is
Atvinnueign kynnir til leigu: Skrifstofuhúsnæði á 3. hæð samtals
417 fm með glæsilegu útsýni. Hæðin er innréttuð sem skrifstofu-
og þjónustuhúsnæði með dúk á gólfum, 16 lokuðum skrifstofum,
biðrými, fundarherbergi, snyrtingum og kaffirými. Lyfta er í
húsinu. Gott og nýlegt húsnæði í mjög góðu ásigkomulagi. Laust
1. ágúst 2019. Ekki VSK-húsnæði.
Allar nánari upplýsingar á og utan opnunartíma veitir:
Davíð Ólafsson í síma 897 4732 - davido@atvinnueign.is
Fasteignamiðlun
STÓRHÖFÐI 21SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
50 ára Börkur er úr
Breiðholtinu en býr í
Mosfellsbæ. Hann er
húsasmiður að mennt
og er meðeigandi að
fyrirtækinu Fjarðar-
mótum.
Maki: Guðný Ingibjörg
Jónsdóttir, f. 1975, ritari hjá Trygginga-
félaginu Verði.
Börn: Eydís, f. 1993, Daníel Unnar, f.
2002, Jóhann Hlynur, f. 2003, og Stein-
unn Fanney, f. 2011.
Foreldrar: Guðmundur Ægir Jóhanns-
son, f. 1951, leigubílstjóri hjá Hreyfli, bú-
settur í Reykjavík, og Tove Bech, f. 1951,
fv. stuðningsfulltrúi. búsett í Mosfellsbæ.
Ólafur Börkur
Guðmundsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu ekki hugfallast, þótt margt
sé á dagskránni. Reyndu að standa meira
á eigin fótum. Dekraðu svolítið við sjálfa/n
þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Sambönd einkennast af óleystum
verkefnum og opnum loforðum. Væri ekki
upplagt að bjóða ættingjum í heimsókn?
21. maí - 20. júní
Tvíburar Búðu þig undir að gamall vinur
valdi þér vonbrigðum. Gættu þín á þeim
sem bjóða þér gull og græna skóga.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver er með stuttan kveikiþráð
í dag. Forðastu samskipti við viðkomandi.
Rómantíkin svífur yfir vötnum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það vekur aðdáun samstarfsmanna
þinna, hversu vel þú heldur á málum í erf-
iðri aðstöðu. Virtu skoðanir annarra.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þín sérgrein er að skipuleggja svo
þú skalt vera óragur/órög við að flagga
þeim hæfileika þínum. Forðastu að taka
mikilvægar ákvarðanir ein/n og sér sem
snerta fjölskylduna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Varastu öll gylliboð, sem eiga að færa
þér hamingju og auðæfi í einu vetfangi.
Betri helmingurinn kemur þér skemmti-
lega á óvart í dag.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú verður að hafa þig í
frammi, ef þú vilt að aðrir komi til liðs við
þig. Þótt eitthvað mistakist þá heldur
maður bara áfram.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú getur ekki lengur vikist
undan því að hafa frumkvæði að lausn
mála. Huggaðu þig við það að öðrum líður
eins og þér á þessum tíma.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Notaðu daginn til þess að
ákveða hvernig á að skipta einhverju sem
þú deilir með öðrum. Engum sem reynir
að slá þig út af laginu verður kápan úr því
klæðinu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það sparar tíma að tala hreint
út um hlutina og þá þarftu að temja þér að
vera gagnorð/ur. Skráðu þig í nám upp á
von og óvon.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér tekst yfirleitt að laða að þér
hluti, í stað þess að eltast við þá. Haltu
aftur af þér þegar þú heyrir kjaftasögur
sem þú veist að eru ekki sannar.
Brussel. „Ég hafði mikinn tíma þá og
ljósmyndabúð var rétt hjá þar sem ég
bjó og ég fór sjálfur að framkalla í
myrkvaherberginu í búðinni. Síðar
spurði Guðmundur Kr. hvort ég vildi
læra ljósmyndun og það var vel þegið
því ég hafði áhuga á þessu.“
Fjölskylda
Eiginkona Péturs er Dagmar Har-
aldsdóttir, f. 1.4. 1964, viðburðastjóri
og eigandi Concept Events ehf. For-
eldrar hennar voru hjónin Haraldur
Ágústsson, f. 25.9. 1926, d. 18.8. 1999,
húsasmíðameistari í Reykjavík, og
dam-búar finnst mér líkjast þeim sem
ég hafði alist upp með. Ég á enn þá 96
ára gamla móður sem býr þar og ég
tala reglulega við. Antwerpen er svip-
uð Rotterdam, einnig hafnarborg og
mjög skemmtileg en ég fílaði mig síst
í Brussel enda lenti ég upp á kant við
þjálfarann þar. Svo var frábært að
búa á Alicante og gaman að kynnast
Spánverjum ekki sem túristi. Ég
hefði alveg viljað búa þar áfram en
þeir bara borguðu mér ekki og skulda
mér enn pening, en svona var þetta á
þessum tíma í boltanum.“
Ljósmynduninni kynntist Pétur í
G
uðlaugur Pétur Brekkan
Pétursson fæddist 27.
júní árið 1959 á Akra-
nesi. Fyrstu árin bjó
hann á Efstabæ en flutt-
ist seinna á Garðabraut.
Pétur gekk í Barna- og gagnfræða-
skóla Akraness. Snemma lágu leiðir
hans í knattspyrnu og spilaði hann
lengi erlendis. Þegar hann kom til
baka hóf hann nám í ljósmyndun hjá
Guðmundi Kr. Jóhannessyni í Nær-
mynd og Iðnskólanum og útskrifaðist
þaðan árið 1994. Eftir að hann lauk að
spila knattspyrnu vann hann sem
þjálfari og menntaði sig á þeim svið-
um og er með UEFA – A-gráðu í
þjálfun.
Pétur byrjaði að leika með meist-
araflokki ÍA 1976, varð Íslandsmeist-
ari með félaginu 1977 og bikarmeist-
ari 1978, þar sem hann skoraði eina
mark leiksins gegn Val. Pétur hóf
sama ár að leika með Feyenoord í
Rotterdam og lék einnig með And-
erlecht í Brussel, Antwerpen og
Hercules sem er félag á Alicante á
Spáni. Hann vann hollenska bikarinn
með Feyenoord 1980. Pétur lék 41
landsleik og skoraði 11 mörk. Pétur
kom aftur heim til Íslands 1986 og
skoraði bæði mörk ÍA í 2-1 sigri á
Fram í bikarúrslitunum sama ár. Ári
seinna hóf Pétur að leika með KR og
kom því félagi á ný í hóp þeirra bestu
á Íslandi. Hann lék með KR-ingum til
1991.
Pétur hefur verið þjálfari KR,
Keflavíkur, Tindastóls, Víkings Rvík,
Fram, aðstoðarþjálfari íslenska
landsliðsins og 2. flokks Breiðabliks. Í
dag þjálfar Pétur meistaraflokk
kvenna í Val auk þess að reka ljós-
myndastofu.
„Þegar ég lít til baka þá er ég stolt-
ur af því hvað ég gerði í fótboltanum
og er enn þá að. Það má segja að allt
manns lífsstarf hafi snúist um fót-
bolta. Sáttastur er ég samt við fólkið
mitt, fjölskyldu og börnin.“
Pétur hóf atvinnumannaferilinn
hjá Feyenoord eins og áður sagði og
líkaði vel þar. „Ég tel mig vera
Rotterdam-mann, það er algjörlega
mín heimaborg, ég kem úr hafnarbæ
og vann í frystihúsinu þar og Rotter-
Sigríður Dagmar Jónsdóttir frá
Syðri-Grund í Svarfaðardal, f. 6.12.
1922, d. 5.5. 1983, starfsmaður Lands-
banka Íslands. Fyrri eiginkona Pét-
urs er Petrína Ólafsdóttir, f. 2.10.
1960, búsett í Svíþjóð.
Dóttir Péturs og Petrínu er 1) Íris
Dögg Pétursdóttir, f. 20.5. 1980,
stuðningsfulltrúi í Falkenberg í Sví-
þjóð. Maki: Eyþór Atli Einarsson
kennari. Barnabörn: Nökkvi Dagur
10 ára, Bjarki Leó 7 ára og Mikael
Darri 4 ára. Börn Péturs og Dagmar-
ar eru: 2) Tara Pétursdóttir, f. 21.6.
1985, förðunarfræðingur og áhrifa-
Pétur Pétursson, ljósmyndari, knattspyrnuþjálfari og fyrrv. landsliðsmaður – 60 ára
Foreldrar Péturs og börn Frá vinstri eru Guðríður Elísa, Íris Dögg,
Guðríður, Pétur eldri, Tara og Pétur Mar.
Lítur stoltur yfir ferilinn
Systkinin Frá vinstri: Bjarki, Jón Elís, Margrét Rósa og Pétur. Hjónin Dagmar og Pétur.
Afinn Pétur ásamt barnabörnunum
fimm og eitt er á leiðinni.
40 ára Þórarinn er frá
Staðarbakka í Miðfirði,
V-Hún. Hann er raf-
virki að mennt og
vinnur hjá Tengli og er
einnig sauðfjárbóndi á
Staðarbakka. Hann
situr í stjórn Sauð-
fjárbænda í Vestur-Húnavatnssýslu.
Maki: Guðfinna Kristín Ólafsdóttir, f.
1973, vinnur hjá Fæðingarorlofssjóði á
Hvammstanga.
Börn: Inga Þórey, f. 2000, og stjúpsonur
er Heiðar Örn Rúnarsson, f. 1995.
Foreldrar: Rafn Benediktsson, f. 1952,
og Ingibjörg Þórarinsdóttir, 1954. Þau
eru sauðfjárbændur á Staðarbakka.
Þórarinn Óli
Rafnsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is