Morgunblaðið - 27.06.2019, Side 59
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019
SAMSTARFSAÐILI
HVAR SEM ÞÚ ERT
Hringdu í 580 7000
eða farðu á sumarhusavorn.is
Það sem er svo fallegt en
um leið harkalegt við íþróttirnar
er til að mynda það hve svaka-
lega lítið skilur stundum á milli
feigs og ófeigs. Þetta er kannski
skýrast í úrslitaleik heimsmeist-
aramóts. Úrslitin ráðast jafnvel
ekki fyrr en eftir framlengingu
eða vítakeppni en aðeins minn-
ingin um meistarana lifir á með-
an silfurliðið fellur í gleymsk-
unnar dá. Svona alla jafna.
Þegar korter var eftir af
fjórða leik ÍR og KR í úrslitum Ís-
landsmóts karla í körfubolta í vor
var ÍR sex stigum yfir, á heima-
velli, og þurfti bara þennan eina
sigur til að vinna sinn fyrsta Ís-
landsmeistaratitil í 42 ár. Í stað-
inn vann KR leikinn og svo odda-
leikinn á heimavelli og þar með
sinn sjötta Íslandsmeistaratitil í
röð.
Á þeim rúmlega 50 dögum
sem síðan eru liðnir hafa ÍR-
ingar horft á eftir tveimur mik-
ilvægustu leikmönnum sínum.
Matthías Orri Sigurðarson fór í
KR og Sigurður Þorsteinsson í
atvinnumennsku. Eflaust verður
reynt að fylla vel í skörðin, og
enn er fullt af flottum leik-
mönnum í ÍR, en útlitið er samt
þannig að í vor hafi verið mögu-
leikinn, með greini, fyrir félagið
að ljúka sinni löngu bið eftir
stóra titlinum. Nú verði ÍR að
byggja upp nýtt lið og bíða í
nokkur ár í viðbót hið minnsta.
Karlaliði Selfoss í hand-
bolta tókst einmitt að brjóta sinn
ís í vor, á síðasta tímabilinu áður
en besti leikmaður síðustu
tveggja Íslandsmóta, Elvar Örn
Jónsson, hélt í atvinnumennsku
sem og þjálfarinn Patrekur Jó-
hannesson. Það er afar dýrmætt
fyrir félagið að hafa nýtt þennan
möguleika, þó að grunnurinn
hafi þegar verið lagður og verði
áfram til staðar til að liðið geti
barist í fremstu röð.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
FÓTBOLTI
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu.
Mér leist vel á deildina í vetur og er
tilbúinn að gera enn betur núna,“
sagði knattspyrnumaðurinn Jón
Dagur Þorsteinsson í samtali við
Morgunblaðið, en hann hefur skrif-
að undir þriggja ára samning við
danska úrvalsdeildarliðið AGF.
Jón Dagur, sem er tvítugur, kem-
ur frá Fulham á Englandi þar sem
hann hefur verið í unglinga- og
varaliði frá árinu 2015 en var í láni
hjá Vendsyssel í Danmörku á síð-
ustu leiktíð. Þar var hann í lyk-
ilhlutverki á sínu fyrsta tímabili í
aðalliði en liðið féll úr úrvalsdeild-
inni eftir að hafa tapað í umspili um
áframhaldandi veru á meðal þeirra
bestu. Jón Dagur vakti verðskuld-
aða athygli fyrir framgöngu sína og
spilaði meðal annars sína fyrstu
leiki með A-landsliðinu í vetur.
„Þetta var mjög flottur vetur og
eitthvað sem maður var búinn að
vera að bíða eftir. Ég var kominn á
þann stað hjá Fulham að langa að
fara að spila aðalliðsbolta og þá var
mjög gott að komast inn í það hjá
Vendsyssel. Það voru auðvitað von-
brigði að falla, en það er bara eins
og það er,“ sagði Jón Dagur.
Áður en hann var lánaður burt
hafði hann raðað inn mörkunum
fyrir varalið Fulham, sem virkjaði
klásúlu í samningi hans í vetur og
framlengdi við hann til ársins 2020.
Sjálfur vildi Jón Dagur komast frá
félaginu.
Sá ekki fram á tækifæri
„Ég ákvað það eiginlega þegar ég
fór til Vendsyssel að ég vildi standa
mig þar og fara svo í burtu frá Ful-
ham. Þetta voru mjög skemmtileg
ár, að taka skrefið frá U18 ára lið-
inu og upp í varaliðið, en svo þegar
ég var kominn á fjórða tímabilið þá
langaði mig að fara að spila með að-
alliði. Ég sá ekki fram á það hjá
Fulham og tímasetningin að fara á
lán var mjög góð. Ég fer mjög sátt-
ur og sé ekki eftir því að hafa farið
til Fulham,“ sagði Jón Dagur, sem
var aðeins 15 ára gamall farinn að
spila í meistaraflokki HK áður en
enska félagið bankaði á dyrnar.
Hann segir að danska deildin
henti sér vel og það sé kostur að
hafa reynslu frá Englandi þar sem
skiptir máli að vera sterkur.
„Það er spilaður flottur bolti
hérna inni á milli en þetta er meiri
líkamleg barátta en ég hélt áður en
ég kom hingað. En boltinn er mjög
fínn, deildin er flott þar sem það
mæta margir á leikina og umgjörðin
er góð,“ sagði Jón Dagur.
Undir mér komið að standa
mig
AGF hafnaði í níunda sæti af 14
liðum í deildinni síðasta vetur. Fleiri
lið voru í sambandi við Jón Dag eft-
ir frammistöðuna með Vendsyssel.
„Það var einhver áhugi hér og
þar, en ég var mjög spenntur fyrir
þessu skrefi og er mjög ánægður að
hafa valið AGF. Ég hef heyrt mjög
flotta hluti um klúbbinn og leist vel
á allt. Ég er því mjög spenntur að
vera kominn hingað. Ég mun fá
tækifæri og svo er það bara undir
mér komið hvort ég fái stórt hlut-
verk eða ekki,“ sagði Jón Dagur.
Þegar hann var hjá Fulham bjó
hann hjá enskri fjölskyldu og þurfti
því að standa meira á eigin fótum
hjá Vendsyssel síðastliðinn vetur.
Það vakti nokkra kátínu að um svip-
að leyti og hann var valinn í lið um-
ferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni
greindi hann frá því að honum hefði
mistekist að sjóða pasta eftir leið-
beiningum. „Maður þurfti aðeins að
prófa sig áfram, en þetta er allt að
koma núna,“ sagði hann og hló þeg-
ar blaðamaður forvitnaðist hvernig
staðan væri í dag.
Stefnir nær landsliðinu
Jón Dagur á ekki langt að sækja
hæfileika í íþróttum. Faðir hans er
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Ís-
lands- og bikarmeistara kvennaliðs
Breiðabliks, og móðir hans er Haf-
dís Ebba Guðjónsdóttir sem var í ís-
lenska landsliðinu í handknattleik.
Sigríður Sigurðardóttir, fyrst
kvenna til þess að vera kjörin
íþróttamaður ársins árið 1964, er
amma hans og systir hans Val-
gerður Ýr er viðloðandi handbolta-
landsliðið.
Sjálfur hefur Jón Dagur verið
fastamaður í U21 árs landsliðinu
þar sem hann hefur spilað 14 leiki.
Fyrstu skrefin sem hann steig með
A-landsliðinu í vetur, þar sem hann
var í byrjunarliði í vináttuleik gegn
Eistlandi og kom inn á sem vara-
maður gegn Belgíu í Þjóðadeildinni
og Svíþjóð þar sem hann skoraði í
vináttuleik, hafa svo verið mikil
hvatning.
„Já, það er auðvitað stefnan að
koma sér nær hópnum. En ég hef
verið meira í U21 árs liðinu, einbeiti
mér að því og líst vel á hlutina þar,“
sagði Jón Dagur Þorsteinsson.
Tímabært að taka skrefið
Jón Dagur Þorsteinsson er spenntur að sanna sig hjá AGF Sá ekki fram á
að fá tækifæri í aðalliði Fulham Steig fyrstu skrefin með A-landsliðinu í vetur
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Danmörk Jón Dagur Þorsteinsson á hraðferð með boltann í leik með U21
árs landsliðinu í haust. Hann hefur nú gert þriggja ára samning við AGF.
Handknattleiksmarkvörðurinn reyndi Hreiðar Levý
Guðmundsson mun leika með Val í Olís-deildinni á næstu
leiktíð en hann féll með liði Gróttu úr deildinni á síðustu
leiktíð. Hreiðari er ætlað að fylla skarð Einars Baldvins
Baldvinssonar sem Íslandsmeistarar Selfyssinga hafa
fengið að láni frá Val. Koma Hreiðars til Vals er hluti af
fléttu félaganna en Hreiðar gerði samning við Selfoss en
hefur nú verið lánaður til Vals.
Hreiðar Levý er 38 ára gamall og á að baki 146 leiki
með íslenska landsliðinu. Hann var í landsliðshópnum
sem vann silfurverðlaunin á Ólympíuleikunum í Peking
2008 og bronsverðlaunin á Evrópumótinu í Austurríki
2010. Hann lék lengi sem atvinnumaður í Noregi, Þýskalandi og Svíþjóð.
„Ég er bara mjög spenntur fyrir þessu og að taka enn eitt tímabilið. Það
verður gaman að berjast á öðrum enda deildarinnar en ég hef gert síðustu
tvö tímabil. Ég veit að Valur stefnir á að vinna titla og það er gaman að
vera í þannig umhverfi,“ sagði Hreiðar Levý. gummih@mbl.is
Hreiðar lánaður til Vals
Hreiðar Levý
Guðmundsson
HK, sem verður nýliði í úrvalsdeild
karla í handknattleik næsta vetur,
hefur samið við Giorgi Dikham-
injia, landsliðsmann frá Georgíu,
um að leika með liðinu á komandi
tímabili. Dikhaminija er 22 ára örv-
hent skytta eða hornamaður og hef-
ur verið fastamaður í landsliði
Georgíu undanfarin tvö ár. Fyrr í
þessum mánuði var hann í liði
Georgíu sem vann alla sína leiki á
Þróunarmóti IHF og sigraði þar
Bretland í úrslitaleik. Hann lék í
Makedóníu á síðasta tímabili.
Landsliðs-
maður til HK
Ljósmynd/HK
HK-ingur Giorgi Dikhaminjia er
kominn í Kópavog frá Georgíu.