Morgunblaðið - 27.06.2019, Síða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
útsala
70%
sparaðu allt að
af völdum vörum
Tónverkið Tímaeining eftir Halldór
Eldjárn verður flutt í Ásmundarsal
við Freyjugötu í kvöld klukkan
20.30. Því er lýst sem klukkustund-
arlöngu ferðalagi um tilviljana-
kennd og óskilgreind rými. Finn-
bogi Pétursson myndlistarmaður
hefur skapað umgjörð fyrir tón-
verkið með sýningunni Yfir og út
sem nú stendur yfir í Hallgríms-
kirkju og Ásmundarsal.
Tímaeining Halldórs
í Ásmundarsal
FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 178. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu.
Mér leist vel á deildina í vetur og er
tilbúinn að gera enn betur núna,“
segir knattspyrnumaðurinn Jón
Dagur Þorsteinsson sem lék með
Vendsyssel í dönsku úrvalsdeildinni
í vetur sem lánsmaður frá Fulham.
Nú hefur AGF frá Árósum keypt
hann af enska félaginu. »59
Tilbúinn að gera
enn betur með AGF
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Píanóleikarinn Helga Laufey Finn-
bogadóttir kemur í dag fram ásamt
tríói sínu í tónleikaröðinni Freyju-
jazzi. Tónleikarnir eru í Listasafni
Íslands, hefjast klukkan 17.15 og
standa í tæpa klukkustund.
Helga Laufey útskrifaðist frá
Sweelinck-tónlistarháskólanum í
Amsterdam árið 1994 og
kennir djasspíanóleik.
Með henni leika Guð-
jón Steinar Þorláks-
son á kontrabassa
og Erik Qvick á slag-
verk.
Á efnisskrá
eru meðal ann-
ars frumsamin
lög og þjóð-
lög í nýjum
búningi.
Tríó Helgu Laufeyjar
leikur í Listasafninu
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Þegar mágarnir og matreiðslumeist-
ararnir Ragnar Guðmundsson og
Gunnlaugur Hreiðarsson opnuðu
veitingastaðinn Lauga-ás á Laugar-
ásvegi í júní 1979 höfðu einhverjir á
orði að það væri feigðarflan svona
langt frá miðbæ Reykjavíkur. „Marg-
ir héldu að við færum með túrist-
unum um haustið en annað kom á
daginn,“ segir Ragnar, sem hefur átt
og rekið staðinn með fjölskyldunni
frá byrjun.
Ragnar lærði á Hótel Borg og
Hressingarskálanum og útskrifaðist
sem matreiðslumaður 1965. Fyrsta
sumarið vann hann á Hótel Selfossi.
Þaðan lá leiðin til Þorvaldar Guð-
mundssonar í Síld og fiski og var
hann í vinnu hjá honum í Þjóðleik-
húskjallaranum, á Hótel Holti og
Hótel Loftleiðum. Þegar Askur var
opnaður á Suðurlandsbraut fór Ragn-
ar þangað, síðan í Kokkhúsið, aftur á
Ask og loks í eigin rekstur.
Veitingahúsið Lauga-ás á Laugar-
ásvegi er með elstu starfandi veit-
ingahúsum í Reykjavík. „Kobbi [Jak-
ob H. Magnússon] opnaði
veitingastaðinn Hornið í Hafnar-
stræti rétt eftir að við byrjuðum með
Lauga-ás og ég hef oft sagt að við er-
um þeir einu sem hafa rekið hér veit-
ingastaði á sömu kennitölu í 40 ár,“
segir Ragnar. „Guðmundur, sonur
minn, er reyndar að mestu tekinn við,
Jóhann Jónsson hefur lengi verið yf-
irmatreiðslumeistari og ég kalla mig
sendiherra staðarins.“
Fjölskyldustaður frá byrjun
Hugmyndin var að vera með
huggulegan fjölskyldustað. Jón
Kaldal hannaði veitingahúsið og Bára
Sigurðardóttir, kona Ragnars, hefur
haldið gardínum í sama horfi frá byrj-
un. „Þetta var fyrsti hvítmálaði veit-
ingastaður landsins, við útbjuggum
barnahorn, sem var nýlunda, og buð-
um upp á sérstakan barnamatseðil.
Þar hefur soðin ýsa með smjöri verið
á boðstólum og það er minn uppá-
haldsmatur auk þess sem lambakjöt
að hætti ömmu bregst aldrei.“
Ragnar bendir á að þeir hafi byrjað
á því að bjóða upp á gratíneraðan fisk
og grillað lambalæri með bearnaise-
sósu. „Við höfðum að leiðarljósi að
vera með fjölskylduvænan veitinga-
stað og góða og ódýra rétti úr úr-
valshráefni og höfum haldið okkur við
það alla tíð.“ Hann segir að sömu lög-
mál hafi gilt í veisluþjónustu fyrir-
tækisins. „Við höfum alltaf lagt
áherslu á að vera með nýtt hráefni.“
Ragnar segir að velgengnin felist í
því að standa vaktina heilshugar.
„Það þarf að hugsa um reksturinn
eins og lítið barn, vinna við þetta dag
og nótt,“ segir hann og segist þakk-
látur fyrir að hafa ávallt haft gott
starfsfólk í eldhúsi og sal. „Það geng-
ur ekki að ganga um með skjalatösku
og þykjast vera fínn maður. Guð-
mundur útskrifaðist 1992 og er vel
meðvitaður um hvað þarf til þess að
hlutirnir gangi. Ég eldist og alltaf er
verið að ýta mér frá eldavélinni en
mér finnst þetta gaman og það er lyk-
ilatriði. Ég hef oft sagt við Kobba að
við erum heppnir að hafa aldrei farið í
háskóla, því okkar besta menntun er
lífið og lífsreynslan.“
Þegar Ragnar var í matreiðslu-
náminu mátti telja grænmetisteg-
undir á Íslandi á fingrum annarrar
handar. „Nú er völ á mjög góðu
grænmeti og öðru hráefni, við eigum
frábæra matreiðslumenn, bæði karla
og konur, og það er gaman að fylgjast
með framförunum,“ segir hann.
Morgunblaðið/Hari
Lauga-ás í 40 ár Feðgarnir Ragnar Guðmundsson og Guðmundur Ragnarsson standa vaktina á veitingastaðnum.
Í bransanum í um 60 ár
Ragnar Guðmundsson hefur rekið veitingastaðinn
Lauga-ás í 40 ár Góðar hefðir í föstum skorðum