Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Síða 20
meðal annars byggt á gögnum frá Seðlabankanum um raunvexti atvinnurekstrarins
1991-1993 en áætlunum Þjóðhagsstofnunar eftir það. Niðurstöður þessara útreikninga
eru sýndar í töflu sem fylgir hér með. Hún nær að heita má til alls atvinnurekstrar
annars en hins opinbera og peningastofnana.
Vert er að leggja áherslu á að hér er um að ræða afar lauslegt mat. Af töflunni má þó
ráða að hagur atvinnurekstrarins hefur stöðugt vænkast frá árinu 1991 en það ár nam
hagnaður um !4% af tekjum eða um 3,3 milljörðum króna. Á árunum 1992 og 1993 var
hagnaðurinn áætlaður 1-1 !4% en á liðnu ári er hann talinn hafí orðið um 3% af tekjum
eða um 21 milljarður króna. Rétt er að geta þess að við þessa útreikninga á afkomu
atvinnurekstrarins er íjármagnskostnaður reiknaður á annan hátt en almennt er gert í
bókhaldi fyrirtækja. Misvægi á innlendum verðbreytingum og gengisbreytingum sem
kemur fram í bókhaldi fyrirtækjanna mælist ekki í þessum útreikningum því hér hafa
áætlaðir raunvextir verið færðir til gjalda. Þessi munur á aðferðum veldur því að afkoma
áranna 1992 og 1993 er betri hér en í ársreikningaskýrslu fyrir árin 1992 og 1993 sem
áður var vitnað til. Svipuðu máli gegnir um samanburð á afkomubatanum milli áranna
1993 og 1994. Heildartölumar benda til þess að afkoman hafí batnað um 114-2
prósentustig en úrtak þeirra 43 íyrirtækja sem áður var vitnað til bendir til nokkru meiri
bata. Að líkindum er skýringanna að leita í ólíkri gjaldfærslu á {jármagnskostnaði en
einnig kann afkoma úrtaksfyrirtækjanna að hafa batnað meira en heildarinnar.
Fjármál hins opinbera
Hér á landi eins og víða í öðrum OECD ríkja hefúr hallarekstur og skuldasöfnun hins
opinbera verið viðvarandi vandamál síðari árin. Sú fjármálastefna hefur þrengt að
lánsQármarkaðnum og leitt til hærri vaxta en ella. Þetta hefur dregið úr fjárfestingu í
atvinnurekstri og þannig dregið úr hagvexti. Á árinu 1994 er áætlað að tekjuhalli hins
opinbera hafí numið rúmum 17 milljörðum króna eða sem svarar til 3,9% af
landsframleiðslu. Þetta er nokkru hagstæðari niðurstaða en árið á undan er tekjuhallinn
mældist 4,5% af landsframleiðslu. Til samanburðar var tekjuhalli OECD-ríkjanna 3,8%
að meðaltali árið 1994 og 4,2% árið 1993.
Yfirlit um fjármál hins opinbera 1992-1994
í milljörðum króna Hlutfall af VLF
1992 1993 19949 1992 1993 1994
Heildartekjur..................... 150,3 147,5 154,5 37,8 35,8 35,6
1. Skatttekjur................. 138,8 136,6 142,7 34,9 33,1 32,9
2. Aðrartekjur.................. 11,5 10,9 11,7 2,9 2,7 2,7
Heildarútgjöld.................... 161,5 166,0 171,5 40,6 40,3 39,6
3. Samneysla.................... 80,4 84,8 87,4 20,2 20,6 20,2
- þar af afskriftir........... 2,5 2,6 2,7 0,6 0,6 0,6
4. Önnurútgjöld ................ 83,6 83,8 86,8 21,0 20,3 20,0
Tekjuafgangur..................... -11,2 -18,4 -17,1 -2,8 -4,5 -3,9
1) Bráðabirgðatölur.
18