Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Qupperneq 34
Afli og útflutningsframleiðsla
Afli sem bundinn er kvóta á fiskveiðitímabilinu 1. september 1994 til 31. ágúst 1995
var ákveðinn eftirfarandi:
Aflaheimildir á fiskveiðiári 1994-1995
Breyting frá
Þúsund tonn fyrra fiskveiðiári í tonnum
Þorskur............................... 155 0
Ýsa.................................... 65 0
Ufsi .................................. 75 -10
Karfi.................................. 77 -13
Grálúða ............................... 30 0
Skarkoli............................... 13 0
Síld.................................. 120 20
Rækja ................................. 70 20
Humar ................................. 2,2 -0,2
Gert er ráð fyrir að þorskaflinn verði nokkru meiri en svarar til úthlutaðs aflamarks á
fískveiðiárinu. Ástæðuna fyrir því má meðal annars rekja til ákvæða um veiðar báta
minni en 6 brúttólestir með línu og handfærum, ákvæða um undirmálsafla utan
aflamarks og álags við útflutning á óunnum afla. Veiði krókabáta er áætluð um 30
þúsund tonn, en krókabátar hafa farið verulega firam úr heimildum sínum á fyrri hluta
þessa fískveiðiárs. Það leiðir svo afitur til að úthaldsdagar krókabáta skerðast í hlutfalli
við þennan umframafla á næsta ári. Að öllu samanlögðu má áætla að þorskaflinn á
Islandsmiðum verði um 165 þúsund tonn á þessu fískveiðiári.
Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir að afli ársins 1995 verði 0,7% meiri en árið 1994
reiknað á föstu verði. Áætlunin byggir á þeirri forsendu að þorskafli verði um 200
þúsund tonn á árinu og annar botnfískafli verði um 354 þúsund tonn. Þar af er þorskur
úr Smugunni áætlaður 35 þúsund tonn sem er svipað og í fyrra og úthafskarfi, sem er
utan kvóta, áætlaður 60 þúsund tonn. Mikil óvissa ríkir um veiðar utan fískveiði-
lögsögunnar á þessu ári og jafnframt um veiðar frá september til ársloka, eða eftir að
yfirstandandi fískveiðitímabili lýkur.
Uthlutaðar aflaheimildir til íslenskra skipa á loðnuvertíðinni frá júlí 1994 til maí
1995 nema 817 þúsund tonnum. Keyptar aflaheimildir af Grænlendingum nema 20
þúsund tonnum til viðbótar. Frá júlí og fram til áramóta í fyrra veiddu íslensku skipin
210 þúsund tonn og frá áramótum hafa veiðst um 390 þúsund tonn þannig að ólíklegt er
að veiðist upp í aflaheimildir. Loðnuafli á árinu 1995 er áætlaður um 800 þúsund tonn.
Gert er ráð fyrir að botnfiskaflinn í heild dragist saman um 1,6% á föstu verði frá
árinu 1994. Þjóðhagsstofnun reiknar með að annar afli verði óbreyttur. Þó er gert ráð
fyrir að síld úr norsk-íslenska síldarstofninum eða Íslandssíld, eins og hún hefur verið
kölluð, aukist úr 21 þúsund tonnum í 50 þúsund tonn.
Að öllu samanlögðu reiknar Þjóðhagsstofnun með aukningu í útflutningsframleiðslu
sjávarafurða um 3% milli áranna 1994 og 1995.
32