Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Blaðsíða 51
6. Annáll efnahagsmála 1994-1995
1994
Janúar
Persónuafsláttur á fyrri hluta árs var ákveðinn 23.915 kr. á mánuði. Skatthlutfall í
staðgreiðslu var ákveðið 41,84%. Tekjuskattshlutfall var lækkað úr 34,30% í 33,14%.
Útsvarshlutfall í staðgreiðslu var 8,69%. Hlutfallið var raunar 8,64% í janúar, en þá lá
ekki fyrir ákvörðun allra sveitarfélaga um útsvar.
Þann 1. janúar lækkaði virðisaukaskattur af matvælum úr 24,5% í 14%.
Samningurinn um Evrópskt efnahagssvæði tók gildi 1. janúar.
Verkfall sjómanna hófst á miðnætti 1. janúar og náði það til á sjötta þúsund sjómanna
alls staðar á landinu nema á Vestfjörðum. En þann 14. janúar setti ríkisstjómin bráða-
birgðalög til að stöðva verkfallið. Með lögunum voru allir síðast gildandi kjara-
samningar aðila framlengdir til 15. júní 1994.
Febrúar
Þann 1. febrúar voru skuldabréf ríkissjóðs boðin út á bandarískum skuldabréfamarkaði.
Alls voru seld bréf fyrir um 200 milljónir dollara eða sem svarar til um 14,6 milljörðum
króna. Bréfm eru með 0,57% álagi á vexti af 10 ára ríkisskuldabréfum Bandaríkjanna
þannig að ávöxtun þeirra er um 6,2%.
Þann 17. febrúar gaf sjávarútvegsráðuneytið út reglugerð um aukningu loðnukvótans
sem nemur 97 þúsund tonnum. Með aukningunni var heildarkvóti íslenskra loðnuskipa
á vertíðinni frájúlí til apríl 1.072 þúsund tonn.
Mars
Þann 7. mars voru gefin út lög um stöðvun verkfalls sjómanna og voru þau staðfesting á
bráðabirgðalögunum frá því í janúar 1994.
Ríkisstjómin samþykkti þann 22. mars að sækja um aðild Islands að Svalbarðasam-
komulaginu.
49