Þjóðarbúskapurinn - 01.04.1995, Síða 55
• að hækka persónuafslátt í takt við launaþróun fremur en verðlagsþróun og þannig
mun afslátturinn hækka í heild um 2.150 kr. á næsta ári
• að taka á greiðsluvanda vegna húsnæðislána
• að lækka húshitunarkostnað á dýrustu svæðunum
Þann 28. desember var gerð breyting á lögum um hlutafélög m.a. vegna samningsins
um Evrópska efnahagssvæðið. Sama dag voru gefin út lög um einkahlutafélög. Helstu
nýjungamar í lögunum eru að greina þarf á milli hlutafélaga og einkahlutafélaga.
Einkahlutafélög ná til minni félaga. Flest hlutafélög hér á landi uppfylla þau skilyrði að
geta talist einkahlutafélög.
Þann 31. desember voru gefín út lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu. Tilgangur
laganna er að tryggja að framleiðsla, úrvinnsla, flutningur, geymsla og dreifing
landbúnaðarafurða sem framleiddar eru með lífrænum aðferðum lúti ákveðnum reglum
á lögbýlum og í fyrirtækjum sem hafa fengið vottun til notkunar á vörumerki lífrænnar
framleiðslu.
Fjárlög voru samþykkt á Alþingi þann 22. desember. Samkvæmt þeim verður
rekstrarhalli A-hluta ríkissjóðs 7,4 milljarðar króna.
Með samþykkt þingsályktunar um fullgildingu samnings um Alþjóðaviðskipta-
stofnunina (WTO) þann 29. desember urðu íslendingar stofnaðilar að WTO. Samtímis
var Marakess samningurinn (GATT-samningurinn) fullgiltur af íslands hálfu.
Meginatriði hvað varðar landbúnað er að tollar leysa af hólmi magntakmarkanir og
aðrar innflutningshindranir.
1995
Janúar
Þann 1. janúar tók gildi reglugerð um gjaldeyrismál. í henni er m.a. kveðið á um að
gjaldeyrisviðskipti vegna inn- og útflutnings vöru og þjónustu skulu vera óheft, svo og
fjármagnshreyfingar og gjaldeyrisviðskipti vegna þeirra, nema annað sé ákveðið í
lögum.
Þann 1. janúar tók gildi ný atvinnugreinaflokkun Hagstofu íslands, ÍSAT 95.
Febrúar
Þann 2. febrúar keypti Seðlabanki Islands íslenskar krónur fyrir 2 milljónir dollara, eða
um 134 milljónir króna, í því skyni að styrkja gengi krónunnar. Aðgerðin var liður í að
halda gengi íslensku krónunnar innan 2,25% frá svonefndu miðgengi.
Þann 7. febrúar hækkaði Seðlabanki Islands vexti sem gilda í viðskipum bankans við
innlánsstofnanir. Þannig hækkaði ávöxtun í endurkaupasamningum og endursölu-
samningum um 0,4 prósentustig.
53