Skessuhorn - 20.12.2017, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 20172
Mikilvægt er þegar sækja á jólaboð um há-
tíðarnar að fylgjast vel með veðurspám og
færð á vegum áður en haldið er af stað í
lengri ferðir. Förum gætilega.
Spáð er vestan 10-15 m/s og éljagangi
framan af degi á fimmtudag en dregur úr
vindi og éljum síðdegis. Léttskýjað austantil
á landinu og frost frá núlli og í fimm stig. Á
föstudaginn gengur í suðaustan 13-18 m/s
og dálitla snjókomu í fyrstu, síðan rigningu
eða slyddu um landið sunnanvert. Hiti 1 til 7
stig, mildast syðst. Hægari suðvestanátt um
kvöldið og slydduél en styttir upp á aust-
urhelmingi landsins og kólnar aftur í veðri.
Á Þorláksmessu er gert ráð fyrir suðvestan
5-10, en norðaustlægri á Vestfjörðum. Snjó-
koma með köflum á vesturhelmingi lands-
ins en bjartviðri austantil. Hiti um og undir
frostmarki. Á aðfangadegi er spáð vaxandi
norðaustanátt, 8-15 síðdegis. Snjókoma
norðan- og austanlands en bjart sunnan
heiða og frost 1 til 5 stig. Gera má ráð fyrir
norðanátt með éljum en þurrt sunnanlands
á jóladegi og kalt í veðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns
„Tekur þú þátt í vefkönnunum?“ Flestir svör-
uðu „Já, stundum“ eða 45% svarenda, 33%
svöruðu „Já, stöku sinnum“ og 11% svar-
enda svöruðu „Já, alltaf“ en 8% svöruðu
neitandi og 3% vissu ekki svarið.
Spurning næstu viku er:
Hvernig spáir þú að árið 2018 verði í saman-
burði við 2017?
Allir þeir sem gefa vinnu sína til styrktar
ýmsum góðum málefnum nú á aðventu eru
Vestlendingar vikunnar. Markaðir, tónleika-
hald og almenn góðvild eru með talin.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Sendum íbúum Vesturlands,
félagsmönnum, félagasamtökum,
fyrirtækjum og öðrum velunnurum
hugheilar jóla- og nýjárskveðjur
Þökkum gott samstarf og stuðning á árinu
Stjórn Hollvinasamtaka HVE SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Bók væntanleg um Víking AK 12
Þúsund hitaeiningar á Þorlák 26
Jóla-myndagáta 34
Jóla-krossgáta 36
Fréttaannáll ársins 38-48
Ábendingar um eldvarnir 51
Átján barna saumaklúbbur 52
Ég er skáldið Jósefína 54-55
Eldgos, missir og von 56-57
Diddi slim rifjar upp ferilinn 58-59
Kveðjur úr héraði 60-65
Endurminningar um farskóla 66-67
Hjónin í Stóra-Ási 68-69
Ég er ekki sjónin mín 70-71
Bernskujól fréttaritara 72
Bjögga jólabarn 73
Það halda margir að ég sé vitlausari en ég er 74-75
Vargurinn tekinn tali 76-77
Það er allt til á Nesinu 78-79
Íþróttagarpur á níræðisaldri 80
Ef þú tekur Guðnýju að þér þá færðu jörðina með 82-83
Í hjálparstarfi í Afríku 84-85
Traðahjón tekin tali 86-87
Búinn að keyra tvisvar til tunglsins 88
Hljómsveitin Tíbrá og sveitaballárin 90-91
Þá mega jólin koma fyrir mér 92-93
Hóf smíðar tólf ára og er enn að 94-95
Sagnaritari samtímans 98-99
Dvöldu í sumar við leiðsögn á Grænlandi 100-101
Ingvar Ingvarsson 102-104
Ung kona á heimshornaflakki 106-107
Hugvekja séra Geirs Waage 108
Skötuhlaðborð
í hádeginu á
þorláksmessu
Borðapantanir
í síma 430-6767
Gleðileg jól!
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
Verkir í liðum?
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 51. tbl. 20. árg. 20. desember 2017 - kr. 750 í lausasölu
Til alþingismanna
Tökum upp
US Dollar
Meðal efnis í
Jólablaði
Skessuhorns:
Lionsklúbburinn Harpa í Stykk-
ishólmi og Lionsklúbbur Stykkis-
hólms, ásamt nokkrum velunnur-
um, afhentu Dvalarheimili aldraðra
í Stykkishólmi á dögunum blöðru-
ómskoðunartæki af fullkomnustu
gerð. Það voru þær Ragnheiður
formaður Hörpu og Sesselja gjald-
keri ásamt þeim Ríkharði og Jóni
Einari frá Lkl. Stykkishólms sem
afhentu Kristínu forstöðukonu
Dvalarheimilisins þetta þarfa tæki.
Mikil gleði var ríkjandi við afhend-
inguna og strax hafist handa við að
læra á gripinn. -fréttatilkynning
Afhentu blöðruómskoðunartæki
Síðdegis síðastliðinn föstudag var
allt tiltækt slökkvilið í Borgarnesi
kallað út. Eldur logaði þá í íbúð á
neðri hæð í húsinu við Skúlagötu 14.
Enginn var í íbúðinni þegar eldur-
inn kom upp. Slökkvistarf gekk vel,
að sögn Bjarna Kr Þorsteinsson-
ar slökkviliðsstjóra Borgarbyggðar.
Allir gluggar í íbúðinni á neðri hæð-
inni voru lokaðir og því skorti eldin-
um súrefni til að ná sér á strik. Engu
að síður urðu miklar skemmdir af
sóti, hita og reyk. Ekki sér á húsinu
að utan eftir brunann.
Skúlagata 14 er nær hundrað ára
gamalt og sögufrægt hús í Borgar-
nesi. Það stendur á mótum Egils-
götu og Skúlagötu. Húsið teikn-
aði Guðjón Samúelsson húsameist-
ar ríkisins og í það var starfsemi
Sparisjóðs Mýrasýslu flutt árið 1920
þar sem hann var starfræktur allt til
1962 að flutt var í nýbyggingu við
Borgarbraut 14, þar sem Ráðhúss
Borgarbyggðar er í dag. Húsið við
Skúlagötu hefur þó æ síðan verið
kallað Gamli sparisjóðurinn.
mm
Eldur kom upp í sögufrægu
húsi í Borgarnesi
Frá vettvangi slökkvistarfs
undir kvöld á föstudaginn.
Ljósm. Guðrún Jónsdóttir.
„Fyrir hönd starfsmanna sinna
vilja fyrirtækin Skaginn hf., Þor-
geir & Ellert hf. og 3X Techno-
logy ehf. stuðla að bættum gæð-
um og faglegri vinnu við barna-
og unglingastarf íþróttahreyfinga
í heimabyggð. Við trúum á gildi
íþróttaiðkunar til forvarna og vilj-
um gjarnan að stuðningurinn verði
nýttur í þágu þess,“ segir í tilkynn-
ingu frá fyrirtækjunum. Stofnað-
ir hafa verið sérstakir bankareikn-
ingar hjá Íslandsbanka, annars veg-
ar á Akranesi og hins vegar á Ísa-
firði, sem eingöngu verða ætlað-
ir til stuðnings við barna- og ung-
lingastarf íþróttahreyfinganna. Alls
nemur stuðningurinn á þessu ári
4,5 milljón króna.
„Stuðningurinn er veittur í nafni
starfsmanna fyrirtækjanna og er
ætlað að bæta barna- og unglinga-
starf íþróttahreyfinganna árið
2018. Þar sem barna- og unglinga-
starf er langtímaverkefni gefa fyr-
irtækin nú jafnframt fyrirheit um
sambærilegan stuðning, að ári, fyr-
ir árið 2019. Skaginn og Þorgeir
& Ellert styðja Íþróttabandalag
Akraness samtals að upphæð þrjár
milljónir króna og hafa fyrirtækin
greitt þá upphæð inn á bankareikn-
ing 0552-14-350180. 3X Techno-
logy styður Héraðssamband Vest-
firðinga að upphæð 1,5 milljón
króna og hefur fyrirtækið greitt
þá upphæð inn á bankareikning
0556-14-400730.“
Stuðningurinn er ekki sérstaklega
ætlaður ákveðnum aðildarfélög-
um innan íþróttahreyfinganna og
munu forsvarsmenn hreyfinganna
því annast með hvaða hætti stuðn-
ingurinn nýtist, í þágu barna- og
unglingastarfs í heimabyggð. Sér-
staklega er tekið fram að stuðning-
urinn er einungis ætlaður sem við-
bót við núverandi barna- og ung-
lingastarf og ekki ætlaður til frek-
ari fjárfestinga innan íþróttahreyf-
inganna. mm
Myndarlegur stuðningur Skagans3X
við barna- og unglingastarf