Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 20176
Næsta blað
SKESSUHORN: Starfsfólk
Skessuhorns verður í fríi til og
með miðvikudagsins 27. des-
ember nk. Það mætir til vinnu
fimmtudaginn 28. desember og
undirbýr útfáfu fyrsta blaðs á
nýju ári sem kemur út miðvik-
daginn 3. janúar 2018. Gleðilega
hátíð! -mm
Snorri sjötugur
BORGARFJ:
Í tilefni þess að
Snorri á Auga-
stöðum er að
verða 70 ára
þann 21. des-
ember ætlar
fjölskylda hans að bjóða öllum
þeim sem vilja heiðra hann með
nærveru sinni að Hraunfossum
á afmælisdaginn. Húsið verður
opnað klukkan 18:00 og verður
opið það sem eftir lifir afmælis-
dagsins. Léttar veitingar í boði.
Snorri vil benda á að hann þarfn-
ast ekki gjafa og nærvera vina er
meira en nóg til að gleðja hann.
Allir velkomnir. Bestu kveðjur
frá fjölskyldunni á Augastöðum.
-fréttatilk.
Dimmiterað í FSN
GRUNDARFJ: Væntanlegir
útskriftarnemendur í Fjölbrauta-
skóla Snæfellinga í Grundar-
firði lyftu sér upp á dögunum
og skelltu sér í búninga áður en
þeir voru með sprell í sal skól-
ans. Þarna var svokölluð dimm-
isjon eins og hefð er fyrir hjá út-
skriftarnemendum. Það er frek-
ar fámennur hópur sem útskrif-
ast núna en það eru 9 nemend-
ur sem kveðja skólann í dag, 20.
desember.
-tfk
Margvísleg verk-
efni lögreglunnar
VESTURLAND: Verkefni
lögreglunnar voru margvísleg í
liðinni viku. Síðdegis mánudag-
inn 11. desember var einn öku-
maður stöðvaður og handtekin,
grunaður um akstur undir áhrif-
um fíkniefna. Um kvöldið sama
dag var ekið á ljósastaur við
hitaveitutankana í jaðri Akra-
nesbæjar. Ljósastaurinn brotn-
aði og ökumaður kenndi sér lít-
illa eymsla og var því fluttur á
sjúkrahúsið til skoðunar. Þriðju-
daginn 12. desember var hringt
í lögregluna vegna útlendinga
sem voru fastir í snjó. Lögreglan
vísaði málinu áfram á bílaleig-
una. Á fimmtudaginn 14. des-
ember var tilkynnt um þjófnað
úr dósagámi í Skorradal, ekki er
vitað hverjir voru að verki eða
hversu miklu var stolið af dós-
um og flöskum. Síðdegis sama
dag losnaði timbur af bifreið og
fauk á bíl sem var að koma úr
gagnstæðri átt og skemmdi bíl-
inn töluvert en engin slasaðist.
Í vikunni rann mannlaus bíll á
staur á plani pósthússins á Akra-
nesi og flutningabíll í Ólafsvík
rann í hálku utan í lítið hvítt hús
við Fiskmarkaðinn.
-arg
Akranesviti
24.-26. desember
Lokað
31. desember - 1. janúar
Lokað
Bæjarskrifstofur
Akraneskaupstaðar
25.-26. desember
Lokað
1. janúar
Lokað
Bókasafn Akraness
25.-26. desember
Lokað
1. janúar
Lokað
Íþróttamiðstöðin og
Jaðarsbakkalaug
23. desember
09:00-16:00
24. desember
09:00-11:00
25.-26. desember
Lokað.
30. desember
09:00-18:00
31. desember
09:00-11:00
1. janúar
Lokað
Íþróttahús Vesturgötu
18.-21. desember
07:00-22:00
22. desember
07:00-18:00
23.-26. desember
Lokað
27.-29. desember
07:00-19:00
30. desember - 1. janúar
Lokað.
2. janúar
07:00-19:00
Bjarnalaug
Lokað frá 20. desember til og
með 2. janúar 2018.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Akraneskaupstaður yfir jól og áramót
Athugið að opnunartími er hefðbundinn fyrir utan eftirfarandi daga:
Freyjukórinn, Karlakórinn Söng-
bræður og Reykholtskórinn, í sam-
starfi við Reykholtskirkju-Snorra-
stofu, halda aðventutónleika í Reyk-
holtskirkju fimmtudaginn 21. des.
nk. kl 20:30. Stjórnandi allra kór-
anna er Viðar Guðmundsson. Með-
leikarar eru Jón Bjarnason organisti
í Skálholti á orgel og píanó, Heim-
ir Klemenzson nýbakaður faðir á
píanó og Atli Guðlaugsson skóla-
stjóri Tónlistarskóla Mosfellsbæjar á
Trompet. Á söngskránni eru lög sem
bera með sér mildan blæ aðventu og
jóla.
Aðgangseyrir er kr. 1500 fyrir full-
orðna en börn 12 ára
og yngri greiða ekki.
Allir velkomnir.
Kórfélagar óska
íbúum Borgarbyggð-
ar svo og landsmönn-
um öllum gleðilegra
jóla- og áramótahá-
tíða og farsældar á
komandi ári.
-fréttatilkynning
Aðventutónleikar í Reykholti
Svipmynd frá tónleikum
kóranna í fyrravetur.
Ljósm. úr safni
Skessuhorns/bhs.