Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201712
veiða og þar komu yfirburðir þessa
gæðaskips aftur í ljós enda var það
oftast í hópi aflahæstu nótaskipa.
Í bókarlok er svo viðauki um stofn-
un og aðdraganda að smíði Síldar-
og fiskimjölsverksmiðju Akraness,
sem lét smíða skipið og gerði það út
þangað til Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjan var sameinuð HB&Co sem
gerði út skipið þar til Grandi keypti
HB&Co og til varð HB Grandi, sem
gerði út Víking síðustu árin.
Sem fyrr segir er bókin væntan-
leg á markað í febrúar en nú þeg-
ar er hægt að kaupa hana í forsölu
og hefur sérstök síða verið sett upp
á facebook undir nafninu „Áskriftar-
söfnun bókar um aflaskipið Víking.“
Verð bókarinnar í forsölu er 5.000
krónur sem greiðast við afhendingu.
Hægt er að kaupa bókina með því að
senda skilaboð í gegnum þá síðu eða
senda skilaboð til höfundar ásamt
kennitölu, heimilisfangi og síma-
númeri á netfangið hallibjarna@
simnet.is
Víkingur, sögubrot af aflaskipi
og skipverjum er um 160 blaðsíð-
ur að stærð í stóru broti og ræki-
lega skreytt myndum frá mörg-
um áhuga- og atvinnuljósmyndur-
um auk mynda frá skipverjum. Að
sögn höfundar er farið af stað með
áskriftarsöfnun núna svo auðveldara
sé að gera sér grein fyrir hve prenta
þarf bókina í mörgum eintökum.
Hann segist telja bókina eiga mikið
erindi til Akurensinga, sjómanna um
allt land og raunar allra sem áhuga
hafa á sögu íslenskra skipa og sjáv-
arútvegs.
mm
HARÐIR, MJÚKIR OG
ILMANDI JÓLAPAKKAR
ÞÚ FINNUR OKKUR Á FACEBOOK
Minnum á flottu gjafabréfinYfirhafnir fyrir
dömur og herra
Úlpur - frakkar - ullarkápur
slár og regnkápur.
Vandaðar íslenskar
vörur frá Feldi
Unnar úr ekta refa-, úlfa-, lamba- og
kanínuskinnum.
Kragar – treflar – barna og dömu húfur,
leður og mokka hanskar og lúffur.
Ilmandi
gjafapakkningar
Frábært úrval af gjafapakkningum fyrir
dömur og herra þar sem þú borgar fyrir
ilminn, kremið eða snyrtivöruna og færð
flotta kaupauka með í öskju eða tösku. Ullarnærföt
100% merino ull, fyrir dömur og herra.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Okkar bestu óskir
um gleðileg jól og
farsælt komandi ár
Auðarskóli
Ábyrgð – Ánægja – Árangur
Lausar stöður
Auðarskóli auglýsir eftir að ráða í tvær stöður leikskólakennara frá og með
1. janúar 2018. Um er að ræða tvær 100% stöður.
Umsóknarfrestur er til 27. desember 2017. Æskilegt er að starfsmaður geti
hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni eru að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarnanna sam-
kvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
Hæfniskröfur eru
leikskólakennaramenntun eða sambærilega menntun sem nýtist í starfi
færni í samskiptum
frumkvæði í starfi
sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
stundvísi
góð íslenskukunnátta
Upplýsingar um starfið veitir Hlöðver Ingi Gunnarsson skólastjóri Auðarskóla í
síma 430 4757. Umsóknir berist á netfangið hlodver@audarskoli.is.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Í febrúar næstkomandi kemur út
bókin „Víkingur, sögubrot af afla-
skipi og skipverjum,“ sem rituð er
af Haraldi Bjarnasyni blaðamanni. Í
bókinni er sagt frá aðdraganda smíði
togarans Víkings AK-100 en hann
kom nýr til Akraness 21. október
1960 og skipinu er fylgt í gegnum
árin. Skipið var í rúma hálfa öld gert
út frá Akranesi og alltaf með sama
nafni og númeri. Það fór í sína hinstu
sjóferð 11. júlí 2014 til Grenå í Dan-
mörku þar sem það var rifið. Þá eru
mörg viðtöl við skipverja, sem á ein-
hverjum tíma voru um borð í Vík-
ingi en mislengi þó og ýmsar sögur
eru sagðar tengdar skipinu.
Víkingur var mikið happaskip alla
tíð. Skipið var smíðað til að sækja
á fjarlæg mið og var því við smíði
þess sett það markmið að gang-
hraðinn væri mikill. Þótt Víking-
ur væri smíðaður sem togskip var
hann þó lengst af notaður til nóta-
Bók um aflaskipið Víking AK-100 væntanleg
Bókarkápuna skreytir málverk eftir
listamanninn Baska (Bjarna Skúla
Ketilsson) frá Akranesi þar sem hann
sér fyrir sér Víking í ólgusjó að leita
vars undir Grænuhlíð.
Togarinn Víkingur AK-100.
Nótaskipið Víkingur AK-100.