Skessuhorn - 20.12.2017, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201716
var honum þakkað fyrir góð stjórn-
arstörf undanfarin 6 ár.
Viðurkenningar veittar
Viðurkenningar voru að venju veitt-
ar. Guðmundar- og Óðinsbikarinn,
var veittur Valdísi Þóru Jónsdóttur
fyrir góðan árangur á árinu en hún
átti afbragðsgott tímabil sem at-
vinnukylfingur. Björn Viktor Vikt-
orsson fékk háttvísisverðlaun GSÍ
en þau eru veitt ár hvert þeim kylf-
ingi undir 18 ára aldri sem endur-
speglar hvað mest þá eiginleika sem
Leynir vill sjá í afreksefnaungling-
um sínum. Garðar Axelsson fékk
viðurkenningu fyrir mestu for-
gjafarlækkun hjá Leyni en Garðar
lækkaði úr 54,0 í 37,0 á árinu 2017
en Garðar gekk í Leyni á vormán-
uðum sem nýliði. Guðmundur Sig-
urjónsson og Jóhannes Karl Engil-
bertsson fengu viðurkenningu fyr-
ir flesta spilaða hringi á árinu en
þeir töldu um 78 frá opnun vallar
til lokunnar nú í haust.
Frístundahús boðið út
„Bjartir og spennandi tímar eru
framundan í húsnæðismálum með
nýrri frístundamiðstöð þar sem
samningar um verkefnið eru í höfn
og styttist í að framkvæmdir hefj-
ist,“ sagði Guðmundur. Fór hann
yfir stöðu mála varðandi húsnæð-
ismál Leynis. Gert er ráð fyrir
áfangaskiptu verki við byggingu
frístundahúss. Fyrsti áfangi verður
tekinn í notkun undir lok sumars
2018. „Áfangi 1 tekur til uppsteypu
og frágangs á byggingunni að utan
sem og 200m2 afgreiðslu og skrif-
stofuhluta. Áfangi 2 tekur til fulln-
aðarfrágangs á 500m2 sal, eldhúsi
og öðrum stoðrýmum. Áætlað-
ur framkvæmdakostnaður er 303
mkr. án virðisaukaskatts og mun
Fasteignafélag Akraness verða eig-
andi hússins að fullu. Leynir hefur
með samningum við Akraneskaup-
stað tekið að sér að vera umsjónar-
og rekstraraðili byggingarinnar frá
upphafi verks og einnig þegar hún
verður tekin til notkunar.
Fram kom að vinnu við teikn-
ingar er að mestu lokið en aðal-
hönnuður er Halldór Stefánsson
og hefur síðan önnur verkfræði-
vinna verið í umsjón Mannvits og
Alhönnunar. Tilboð eru kominn
í alla stærstu og veigamestu verk-
þætti og gert ráð fyrir að samn-
ingar við verktaka klárist í þessum
mánuði. Áætlanir gera ráð fyrir að
framkvæmdir hefist í byrjun janúar
2018 en nú er unnið við uppsetn-
ingu á vinnusvæði, bráðabirgða-
tengingum og niðurrif bygginga.
Framkvæmdastjóri fór að lokum
yfir teikningar af byggingunni og
útskýrði fyrir fundargestum og
svaraði spurningum. mm
Digranesgötu 6 - Borgarnesi - Sími: 437 1920
Opnunartímar yfir hátíðirnar:
23. Þorláksmessa 8:30-18:00
24. Aðfangadagur Lokað
25. desember Lokað
26. desember Lokað
27. desember 7:00-17:00
28. desember 7:00-17:00
29. desember 7:00-18:00
30. desember 8:30-16:00
31. Gamlársdagur Lokað
1. janúar Lokað
2. janúar 7:00-17:00
Verslum í heimabyggð
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
7
Geirabakarí óskar öllum
gleðilegra jóla, góðs og
farsæls komandi árs. Þakkar
viðskiptin á árinu sem er að líða.
Aðalfundur Golfklúbbsins Leynis
var haldinn þriðjudaginn 12. des-
ember síðastliðinn. Á fundin-
um fór Guðmundur Sigvaldason
framkvæmdastjóri yfir skýrslu og
starf klúbbsins og þær stórfram-
kvæmdir sem framundan eru á
svæðinu, gjaldkeri fór yfir reikn-
inga og framkvæmdastjóri kynnti
fjárhags- og rekstraráætlun næsta
árs. Fram kom hjá Guðmundi að
rekstur Leynis var erfiður rekstr-
arárið 2017 og lækkuðu rekstrar-
tekjur um 10% milli ára. Skýr-
ist það einkum af minni tekjum af
velli sem og lægri framlögum og
styrkjum. Rekstrargjöld voru hins
vegar í takti við fyrri ár og áætl-
anir. Rekstrarafkoma varð því nei-
kvæð um 4,3 mkr. og heildartap
ársins að teknu tilliti til fyrninga
og fjármunagjalda var rúmar tíu
milljónir króna.
Í skýrslu stjórnar kom fram hvað
myndarlegt og öflugt félagsstarf er
hjá Leyni. Félagsmenn í Leyni eru
nú um 490 og fjölgaði milli ára um
12%. Þar vóg mest hvað kvenna-,
barna- og unglingastarfið tók mik-
inn kipp og fjölgaði hlutfalls-
lega mest í þeim hópum. Spiluð-
um hringjum fækkaði mikið milli
ára, voru 16.235 hringir saman-
borið við 18.400 hringi árið 2016.
Fjölbreytt mótahald var að vanda á
vegum Leynis í sumar með blöndu
af 57 innanfélagsmótum, opnum
mótum og GSÍ mótum. Mótasókn
drógst saman milli ára en 2.235
kylfingar sóttu Garðavöll heim
samanborið við tæplega 2.500 árið
2016. Fram kom að stjórn Leynis
hefur skoðað og ígrundað vel stöðu
rekstrar og nú þarf að blása í öll
segl og snúa við taprekstri. „Í áætl-
unum fyrir rekstrartekjur er gert
ráð fyrir að félagsgjöld hækki, æf-
ingagjöld verði sett á fyrir börn og
unglinga sem og aukin sókn í aðr-
ar tekjur svo sem framlög og styrki
og aðrar þær tekjur sem hægt er
að búa til á velli. Að sama skapi
gera áætlanir rekstrargjalda ráð
fyrir almennu aðhaldi og niður-
skurði á völdum stöðum í rekstrin-
um. Hækkun á félagsgjöldum var
lögð fyrir fundinn og hlaut sam-
þykki. Gjaldskrá verður birt innan
skamms á heimasíðu Leynis þeg-
ar innheimta árgjalda hefst,“ sagði
Guðmundur Sigvaldason.
Stjórn Leynis var endurkjörin en
hana skipa Þórður Emil Ólafsson
formaður, Eiríkur Jónsson, Hörð-
ur Kári Jóhannesson, Berglind
Helgadóttir og Ingibjörg Stefáns-
dóttir. Heimir Bergmann var kos-
inn varamaður í stjórn. Úr stjórn
gekk Hannes Marinó Ellertsson og
Framkvæmdaár framundan hjá Leynisfélögum
Svipmynd af Garðavelli.
Guðmundar- og Óðinsbikarinn
var veittur Valdísi Þóru Jónsdóttur
fyrir góðan árangur á árinu en
hún átti afbragðsgott tímabil sem
atvinnukylfingur. Pálína Alfreðsdóttir
móðir Valdísar Þóru tók við bikarnum
úr hendi Þórðar Emils Ólafssonar for-
manns Leynis.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi
fyrir Kross, 1. áfangi, Hvalfjarðarsveit
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti 13. desember 2017 að
auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Kross, 1. áfanga.
Deiliskipulagstillagan felur í sér að 5 einbýlishúsalóðum við
Garðavelli 1, 3, 5, 7 og 9 verði breytt í þrjár parhúsalóðir.
Tillagan er sett fram á uppdrætti með greinargerð dags.
27. nóvember 2017.
Tillagan er auglýst samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar.
Tillöguna má einnig sjá á heimasíðu sveitarfélagsins
www.hvalfjardarsveit.is frá 20. desember 2017 til og með
1. febrúar 2018.
Kynningarfundur verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar
þriðjudaginn 9. janúar 2018 kl. 17:00 til 18:00.
Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast
skipulagsfulltrúa í síðasta lagi 1. febrúar 2018 á skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið
skipulag@hvalfjarðarsveit.is.
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Hvalfjarðarsveitar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7