Skessuhorn - 20.12.2017, Page 32
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201732
Rannsóknir sýna að það fólk sem er
undir mesta álagi, finnur fyrir mik-
illi streitu er á sama tíma það fólk
sem er hamingjusamast og finnur
mestan tilgang í lífinu. Álagið teng-
ist því að hafa mikið af mikilvægum
atriðum í lífinu.
Endurskoðun á rannsóknunum
sem kenndu okkur að streita væri
hættuleg heilsunni hefur sýnt að
það er ekki streitan sem slík sem er
hættuleg heilsunni heldur viðhorf
okkar til hennar.
Þannig er að streituviðbrögð eru
fleiri og flóknari en áður var tal-
ið. Flestir kannast við ótta-flótta
(e.“fight-flight” ) viðbragðið. Sem
sagt að fara annað hvort í árásarham
eða flýja. Árásarhamur getur verið
að bregðast við með reiði og geð-
vonsku. Flótti gæti lýst sér í afneit-
un, að horfast ekki í augu við vanda-
málin, heldur flýja þau til að mynda
í óhóflegri líkamsrækt eða tölvu-
leikjum (sem hvoru tveggja er ann-
ars ágætt). Nýrra er ótti-flótti-frjósa
(e.“fight-flight-freeze”), þá er kom-
inn þriðji möguleiki sem er að lam-
ast af ótta. Fólk sem hefur upplif-
að líkamsárásir eða nauðgun seg-
ir stundum frá slíkum viðbrögðum.
Einnig þegar fólk fær mjög slæm-
ar fréttir af sjúkdómum eða dauða.
Þetta eru svolítið yfirdrifin viðbrögð
við þessu venjulega hversdagslega
stressi og vonandi tengir þú lesandi
góður ekki við þau. Þriðja útgáfan
er líklegri til að hæfa því, en það er
svokallað “áskorunarviðbragð” (e.
challenge). Það kemur fram þegar
fólk mætir álaginu sem áskorun en
ekki sem ógn. Það hefur í för með
sér gjörólík líffræðileg viðbrögð, t.d.
fer hormónið DHEA út í blóðið.
DHEA hjálpar við viðhald og upp-
byggingu líkama, sem er beinlínis
gott fyrir heilsuna. Venjuleg daglega
streita vekur oftast þetta viðbragð
og er því alls ekki til að óttast.
Hugsaðu um hvað það er sem
vekur streitu eða áhyggjur dagsdag-
lega, punktaðu það helst niður. Til
dæmis er það að koma börnunum í
skólann á réttum tíma oft eitthvað
sem hækkar blóðþrýsting foreldra.
Af hverju er það mikilvægt? Svarið
er auðvitað undir hverjum og einum
komið. Það getur verið að lífsgildi
ykkar sé að standa sig vel í lífinu
og því mikilvægt að mæta þar sem
maður á að vera. Það gæti líka verið
að í ykkar huga sé menntun barnsins
mikilvæg og þess vegna mikilvægt að
það mæti, eða að þið hafið áhyggj-
ur af ímynd fjölskyldunnar: „Hvað
ætli fólk segi..?“ eða ýmislegt ann-
að sem kemur til greina. Málið er að
við höfum oftast áhyggjur af því sem
skiptir okkur máli, börnin okkar,
vinnan, tengslin við fólkið í kringum
okkur. Rannsóknir sýna að það fólk
sem er undir mesta álaginu og finn-
ur fyrir mikilli streitu er á sama tíma
það fólk sem er hamingjusamast og
finnur mestan tilgang í lífinu. Álag-
ið tengist því að hafa mikið af mik-
ilvægum atriðum í lífinu. Fagnaðu
streituviðbrögðum því þau eru leið
líkamans til að hjálpa þér að mæta
álagi. Aukin hjartsláttur og önd-
un gefur ekki bara vöðvunum held-
ur líka heilanum, aukið súrefni, sem
hjálpar þér að bæði leysa vandamálin
og hlaupa á eftir krakkanum! And-
aðu djúpt og segðu brosandi : „Ég er
svo stressuð/stressaður.“ Vitandi að
það er gott og hjálplegt.
Loks langar mig að nefna enn
eitt streituviðbragð sem er alls ekki
slæmt en kemur fram við mikla
streitu eins og þegar hamfarir verða
eða dauðsföll. Það nefnist tengsla-
viðbragð (e. tend and befriend) og
lýsir sér í þörf fyrir að vera með fólki,
og hjálpa til. Margir kannast við
þetta frá sjálfum sér t.d. þegar vin-
ir eða ættingjar verða fyrir sorg, við
viljum hitta þau eða færa þeim eit-
hvað sem léttir undir. Eða við heyr-
um fréttir af viðbrögðum venjulegs
fólks við sprengjuárásum eða slys-
um, þar sem fólk opnar heimili sín
fyrir bláókunnugu fólki eða legg-
ur sig í lífshættu við að hjálpa þeim
í neyð. Þegar þetta gerist fer horm-
ónið oxýtósín (e. oxitocin) á fullt í
líkamanum en það er þekkt sem ást-
arhormón og hefur meðal annars
þau áhrif að styrkja hjartað og fyrir-
byggja hjartaáföll.
Samantekt, gagnleg ráð:
Skoðaðu gildin þín, hvað •
er mikilvægt fyrir þig og af
hverju? Þegar þú sérð að álag-
ið í lífinu stafar af mikilvægum
hlutum verður það ekki ógn
heldur áskor-
un.
Ef áhyggj-•
ur og álag stafa af lítilvæg-
um hlutum,mæli ég með því
að hætta einfaldlega að láta þá
stressa sig.
Sýndu það hugrekki að fá að-•
stoð við verkefnin sem þér
finnst þú ekki ráða við eða
við að byggja upp sjálfstraust-
ið. Talaðu um vandann, þú ert
ekki sú eina eða sá eini sem ert
í þessari glímu.
Síðast en ekki síst ræktaðu •
tengslin við fólkið í kringum
þig, það er gott á svo margan
hátt, það að hafa góð tengl bæði
verndar þig og veitir stuðning
þegar á þarf að halda.
Bjóðum jólastressið velkomið.
Það verður til af því að við viljum
skapa ástvinum góðan tíma á jólun-
um, með vel völdum gjöfum, frá-
bærum mat í hreinu og fallegu um-
hverfi, ekki satt? Ekkert ógnvænlegt
við það. Bara ekki eyða of miklu,
það gleður ástvini ykkar ekkert sér-
staklega ef að þið farið á hausinn í
febrúar…
(Byggt að mestu á bókinni The
upside of stress eftir Kelly McGoni-
gal).
Steinunn Eva Þórðardóttir
Höf. er sjálfstætt starfandi fræðari
um jákvæða sálfræði, stofnandi Hér
núna.
Upplýsingar um Hér núna: Hér
núna stendur fyrir námskeiðum og
fyrirlestrum. Námskeiðin eru um
styrkleika, með fræðslu um núvitund
og sjálfsvinsemd. Fyrirlestrar eru
unnir í samvinnu við þá sem panta,
t.d. um góð og slæm áhrif streitu,
góðvild, þakklæti, og almennt um
það að blómstra í lífinu.
Kæru nemendur, foreldrar og starfsfólk
Grunnskóla Borgarfjarðar
Sendum ykkur okkar bestu jóla- og
nýárskveðjur með þökk fyrir ánægjulegt
samstarf á árinu sem er að líða
Skólastjórnendur
GRUNNSKÓLI BORGARFJARÐAR
HVANNEYRI
KLEPPJÁRNSREYKJUM
VARMALANDI
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Óska starfsmönnum mínum og viðskiptavinum
gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Þakka samskiptin á árinu sem er að líða.
Eiríkur Ingólfsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Árið 2017 var viðburðaríkt hjá
félagskonum í Kvenfélagi Reykdæla
í Borgarfirði. „Að sjálfsögðu voru við
með fundi og kaffisölur. Bollubingó
vorum við með en það tengist bollu-
deginum og tókst svo vel að ákveðið
hefur verið að halda því áfram. Vill
kvenfélagið þakka öllum velunnur-
um fyrir þátttökuna. En við héldum
líka námskeið í vattarsaumi og svart-
saumi,“ segir Ásthildur Thorsteins-
son formaður félagsins.
Mánudaginn 4. desember var
jólafundurinn kvenfélagsins hald-
inn og var félagskonum í Kvenfé-
lagi Hálsasveitar og Hvítársíðu boð-
ið í heimsókn. „Við fengum þá sam-
býlinga Albert Eiríksson og Bergþór
Pálsson til að halda fyrirlestur um
borðsiði og jólahald. Ekki skemmdi
fyrir að Páll frá Fljótstungu, fað-
ir Bergþórs, mætti með þeim fé-
lögum. Lagið var tekið og að end-
ingu var drukkið kaffi og jólapakk-
ar teknir upp.“
Að endingu verður síðan hald-
ið jólaball og að þessu sinni verður
það Hvítársíða sem sér um hátíðina í
Brúarási 29. desember, en þessi þrjú
félög skiptast á um að halda ballið.
Loks segir Ásthildur að Kvenfélags
Reykdæla standi á tímamótum því á
næsta ári fagnar það 90 ára afmæli.
Verður þess minnst með ýmsu móti.
„Það verður áfram gott og gaman
að vera í kvenfélagi,“ segir Áshildur
Thorsteinsson.
mm
Það verður áfram gott og
gaman að vera í kvenfélagi
Albert, Ásthildur og Bergþór.
Miðstöð íslenskra bókmennta lét
nýlega gera könnun á viðhorfi þjóð-
arinnar til bóklesturs, þýðinga og
opinbers stuðnings við bókmennt-
ir. „Niðurstöðurnar gefa fullt til-
efni til bjartsýni um framtíð bók-
menntanna og tungunnar,“ segir í
tilkynningu. Fram kemur að sam-
kvæmt niðurstöðum könnunarinn-
ar les mikill meirihluti þjóðarinn-
ar einungis eða oftar á íslensku en
öðrum tungumálum. Meirihluti Ís-
lendinga er sammála þeirri fullyrð-
ingu að mikilvægt sé að þýða nýjar
erlendar bækur á íslensku. Loks er
meirihluti landsmanna einnig sam-
mála þeirri fullyrðingu að mikil-
vægt sé að íslensk bókmenning hafi
aðgang að opinberum stuðningi.
Um 66% Íslendinga les einung-
is eða oftar á íslensku en á öðrum
tungumálum. 28,9% les einungis á
íslensku, 36,7% les oftar á íslensku
og 17,5% les jafnoft á íslensku og
öðru tungumáli. 15,6% svarenda
les oftar á öðru tungumáli en ís-
lensku og 1,3% les einungis á öðru
tungumáli. Þeir sem eru 34 ára og
yngri lesa mun síður á íslensku en
þeir sem eldri eru.
mm
Mikill meirihluti les ein-
göngu eða oftast á íslensku
Merkingarfullt líf er fullt af streitu
Heilsupistill Steinunnar Evu