Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 40
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201740
ingurinn samþykktur með naumum meirihluta og þar með
lauk nærri tíu vikna sjómannaverkfalli. Fljótlega að verk-
falli loknu héldu sjómenn til veiða. Saxhamar SH var eitt af
fyrstu skipunum sem leysti landfestar og hélt út á miðin að
kvöldi um leið og niðurstaða atkvæðagreiðslunnar lá fyrir.
Óvissu var farið að gæta með loðnuveiðar vegna verkfallsins,
en að því loknu var með hraði farið að hefja undirbúning fyr-
ir loðnuvertíðina. Verkfallið var langt og erfitt og hafði áhrif
á fjölmarga, bæði sjómenn og fiskverkafólk, sem og fólk og
fyrirtæki í tengdum atvinnugreinum. Höfðu sjómenn, sem
Skessuhorn ræddi við eftir að niðurstaðan lá fyrir, að nógu
lengi hefði verið heima setið og báru bros á vör. Mönnum var
verulega létt.
Snjó kyngdi niður
Aðfararnótt sunnudagsins 26. febrúr kyngdi niður snjó á suð-
vesturhorni landsins svo annað eins hefur ekki sést í háa herrans
tíð. Snjóþekjan mældist 63 cm djúp að Neðra-Skarði í Hval-
fjarðarsveit, en á Akranesi var 45 cm jafnfallinn snjór. Björg-
unarfélag Akraness var ræst út að morgni dags til að ferja heil-
brigðisstarfsfólk til og frá vinnu og þá þurftu björgunarsveita-
menn að koma sjúkrabílum til aðstoðar við Hafnarfjall, en þar
var ófært nema vel búnum jeppum. Í þéttbýlinu á Akranesi var
farið að ryðja árla morguns og voru helstu stofnæðar bæjarins
orðnar snjólausar um hádegi. Blíðuveður var þennan dag og
fólk mikið á ferðinni. Foreldrar drógu börn á snjóþotum um
bæinn og krakkar léku sér í snjónum. Margir skelltu sér í vetr-
arklæðin, reimuðu á sig gönguskóna og gerðu sér ferð í bak-
aríið, enda gekk bolludagurinn í garð daginn eftir og eins gott
að eiga nóg af bollum með rjóma, sultu og súkkulaði.
Yngsti skátahöfðingi landsins
Grundfirðingurinn Marta
Magnúsdóttir var í marsmán-
uði kjörin Skátahöfðingi Ís-
lands. Varð hún yngsti skáta-
höfðinginn í sögu Bandalags
íslenskra skáta, aðeins 23 ára
gömul. Marta er jafnframt að
eins önnur konan til að gegna
embættinu. „Ég hef mjög mik-
inn áhuga á og ástríðu fyrir vel-
ferð ungmenna og tel að hægt
sé að tryggja hana að hluta til
í gegnum skátastarfið,“ sagði
Marta í samtali við Skessuhorn
í mars. „Það er mjög góður
andi og hvatning í skátunum.
Þar er reynt að mæta hverjum
og einum á þeirra eigin forsendum og gleðin höfð í fyrirrúmi
í öllum verkefnum og ferðum. Þegar farið er svona að þá eflist
sjálfstraust hvers og eins. Markmið skátanna er að efla ungt fólk
til virkni í samfélaginu. Flest verkefna skátanna eru samvinnu-
verkefni eða samfélagsverkefni og skátahreyfingin fagnar öllu
samstarfi skátanna og annarra félaga.“
Misjafnt gengi karla og
kvenna í körfunni
Bæði Snæfell og Skallagrímur gátu státað af því að eiga lið
í Domino‘s deild karla og kvenna þegar keppnistímabilið
2016-2017 hófst. Það breyttist hins vegar í lok móts, því karlal-
ið beggja félaga féllu úr deild þeirra bestu og leika nú í 1. deild-
inni. En miðað við gengi þeirra framan af vetri má leiða líkum
að því að þau muni gera tilkall til sæti í efstu deild að nýju.
Í Domino‘s deild kvenna var annað uppi á teningnum. Vest-
urlandsliðin náðu glæsilegum árangri. Skallagrímur gafst ekki
upp fyrr en í fulla hnefana gegn Keflavík eftir æsispennandi
undanúrslitarimmu. Snæfellskonur, sem lyftu deildarmeistara-
titlinum, mættu Keflavík í úrslitarimmunni en urðu að játa sig
sigraðar í þetta skiptið. Það sem af er ári hafa bæði þessara liða
hikstað aðeins í deild-
inni, vegna meiðsla og/
eða barneigna leikmanna
en deildin er afar jöfn og
liðin þurfa aðeins að ná
smá rispu til að blanda
sér í baráttuna um sæti í
úrslitakeppninni í vor.
ÍA átti ekki gott tíma-
bil í 1. deild karla síðasta
vetur og hefur gengi liðs-
ins verið afleitt það sem af
er yfirstandandi keppnis-
tímabili. Grundfirðing-
ar gerðu prýðilegt mót í 3. deildinni síðasta vetur en hafa ver-
ið lengur í gang í ár.
Reiðskemma vígð í Stykkishólmi
Ný reiðskemma var vígð í Stykkishólmi við hátíðlega at-
höfn um miðjan marsmánuð. Fyrsta skóflustungan var tekin í
júní á síðasta ári og gengu byggingarframkvæmdir að óskum.
Reiðskemman byltir aðstöðu til hestaíþróttastarfs í Stykkis-
hólmi og hafði fyrsta reiðnámskeiðið þegar verið haldið þeg-
ar skemman var vígð. Skemman er 38x18 metrar að stærð,
byggð úr einingum frá Límtré Vírneti. Kostnaður við bygg-
inguna var undir áætlun, að sögn Nadine Walter, formanns
Hesteigendafélags Stykkishólms. „Það var mikil samvinna
við þetta verkefni og dugnaður félagsmanna sem gerði það
að verkum að við erum ánægð með fjárhagslega niðurstöðu,“
sagði Nadine í samtali við Skessuhorn.
Borgarnes 150 ára
Miðvikudaginn 22. mars voru 150 ár liðin frá því Borgarnes
fékk löggildingu sem verslunarstaður og forsendur urðu fyr-
ir myndun þéttbýlis. Síðan hefur staðurinn þjónað sem mið-
stöð verslunar- og þjónustu í Borgarfirði og sem þjónustu-
bær í þjóðbraut landsmanna. Á 150 ára afmæli bæjarins voru
íbúarnir 1954 og stefnir í að þeir muni rjúfa 2000 íbúa múr-
inn í fyrsta sinn í sögunni og það á afmælisárinu. Í tilefni
afmælisins var boðað til hátíðardagskrár í Borgarnesi með
fjölda viðburða, s.s. hátíðarfundi sveitarstjórnar í Kaupangi,
elsta húsinu í Borgarnesi, skóflustungu að nýrri viðbyggingu
Grunnskólans í Borgarnesi og opnun ljósmyndasýningar í
Safnahúsi. Þá hófst á afmælisdaginn forsala á tveggja binda
verki um sögu Borgarness sem ritað var í tilefni afmælisins
af þeim frændum Heiðari Lind Hanssyni og Agli heitnum
Ólafssyni. Bókin kom út í sumar og hefur sala gengið vel.
Vill reisa listaverk í Borgarfirði
Listamaðurinn Hilmar Páll Jóhannesson vill reisa níu metra
hátt listaverk út af Seleyri við syðri enda Borgarfjarðarbrú-
arinnar. Um er að ræða hönd sem rís upp úr Borgarfirði og
heldur á exi sem vísar á haf út. Innblásturinn sækir listamað-
urinn í Egils sögu en hugmyndina að verkinu fékk hann í til-
efni af 150 ára afmæli Borgarness. Hann sagði frá því í Skessu-
horni í aprílbyrjun að verkið yrði gjöf til allra Borgfirðinga og
að hann hefði fengið vilyrði frá einkaaðilum um fjármögnun
verksins. Uppsetning þessi væri hins vegar háð því að sveitar-
félagið vildi þiggja gjöfina fyrir hönd íbúa. Viðtökur við hug-
myndinni hafa verið dræmar.
Gaf sér slökkvibíl í afmælisgjöf
Kristján Andrésson, húsasmíðameistari á Hvanneyri, fagnaði
sextuxafmæli sínu í aprílmánuði. Eins og gengur fá menn gjarn-
an góðar gjafir við slík tækifæri. Ein gjafanna var þó mest um-
fangs, nefnilega slökkvibíll sem afmælisbarnið gaf sjálfum sér.
Bíllinn er amerískur, framleiddur af American - LaFrance og
þjónaði á Keflavíkurflugvelli til ársins 1983 en fór árið 1985 til
Landsvirkjunar sem hafði hann til taks við Búrfellsvirkjun. Sjálf-
ur er Kristján í Slökkviliði Borgarbyggðar og stjórnarmaður í
Fornbílafjelagi Borgarfjarðar og er bíllinn til sýnis og geymslu í
húsnæði félagsins í Brákarey í Borgarnesi. Eftir að Kristján fékk
bílinn hélt hann sérstaka forsýningu á honum á Hvanneyri og
höfðu krakkarnir í þorpinu sérstaklega gaman af framtakinu.
Riðu á sjötugsafmælinu
Hestamannafélagið Dreyri varð sjötíu ára gamalt fimmtudag-
inn 11. maí síðastliðinn. Afmælinu fögnuðu félagsmenn með
því að sýna sig og sjá aðra í veðurblíðunni á Akranesi laug-
ardaginn fyrir afmælisdaginn. Fóru Dreyramenn miðbæjar-
reið frá hestuhúsahverfinu á Æðarodda og riðu sem leið lá að
Akratorgi í miðbæ Akraness. Vakti uppátæki þeirra forvitni og
ánægju meðal vegfarenda. Þegar komið var að Akratorgi var
áð á blettinum neðan Suðurgötu og gestum og gangandi boð-
ið að virða fyrir sér hestana, klappa þeim og jafnvel bregða sér
á bak. Var teymt undir börnum sem voru mörg hver himin-
lifandi með uppátækið. Hestamannafélagið Dreyri sækir nú
stuðning við byggingu reiðshallar á Æðarodda.
Sinubruni í Eyja- og
Miklaholtshreppi
Fimmtudaginn 11. maí kom upp eldur í sinu í vegarkanti
skammt sunnan við bæinn Dal í Eyja- og Miklaholtshreppi.
Hvasst var í veðri þegar eldurinn kom upp og náði hann að
breiðast fljótt um þurra jörðina. Um tíma var óttast að eld-
urinn kæmist að mannvirkjum og að sögn slökkvistjóra stóð
nokkuð tæpt að verja hús og mannvirki gróðrastöðvarinnar
á Lágafelli, en tókst þó blessunarlega. Svæðið sem brann var
milli 10 og 15 hektarar að stærð og taldi slökkviliðsstjóri víst
að eldurinn hefði kviknað út frá sígarettuglóð, líkt og Mýra-
eldarnir vorið 2006. Fjölmennt slökkvilið var kallað út og
komu slökkviliðsmenn frá slökkviliðunum í Borgarbyggð,
Stykkishólmi og Grundarfirði til aðstoðar auk fjölda heima-
manna. Bændur komu með haugsugur fullar af vatni og fólk
gekk meðfram eldröndinni með klöppur. Undir lokin sleppti
þyrla Landhelgisgæslunnar vatni yfir síðustu glæðurnar.
Meiriháttar tjón á
lífríki Andakílsár
Í maí á þessu ári varð mik-
ið umhverfisslys af manna-
völdum í Andakílsá í Borgar-
firði þegar Orka náttúrunn-
ar lét hleypa þúsundum rúm-
metra af aur og uppsöfnuð-
um setlögum úr uppistöðu-
lóni ofan Andakílsvirkjunar
og niður í ána. Aldrei áður
í 70 ára sögu virkjunarinnar
Framhald á næstu opnu
Fréttaannáll ársins 2017 í máli og myndum