Skessuhorn - 20.12.2017, Page 44
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201744
Snorrahátíð í Reykholti
Fjölmenni sótti höfuðstaðinn Reykholt í Borgarfirði heim
laugardaginn 15. júlí. Þá voru sjötíu ár síðan Norðmenn af-
hentu Íslendingum styttu Gustavs Vigelands af Snorra Sturlu-
syni. Afhending styttunnar fyrir sjötíu árum þótti stórviðburð-
ur á Íslandi og söfnuðust saman mörg þúsund manns í Reyk-
holti þegar styttan var afhjúpuð að viðstöddum Ólafi krón-
prins Noregs. Þétt dagskrá var í Reykholtskirkju-Snorrastofu
þennan hátíðisdag í sumar þar sem margir tóku til máls. Með-
fylgjandi mynd er frá Snorrahátíð hinni fyrri.
Torfæra við Akrafjallsrætur
Sjötta og síðasta umferð Íslandsmótsins í torfæru var haldin
í gryfjunum við Fellsenda við rætur Akrafjalls í júlílok. Alls
voru 19 bílar skráðir til leiks og allir luku þeir keppni. Að-
stæður til torfæruaksturs voru með besta móti, skýjað og ör-
lítil gola. Fjöldi áhorfenda lagði leið sína á keppnina og fylgd-
ist með torfæruköppunum klífa skriður, skríða kletta og stöku
sinnum velta niður.
Fótablautir ferðamenn
Ferðalangar sem hugðust skoða Kirkjufell og Kirkjufellsfoss á
stórstreymi í ágústmánuði urðu votir í fæturnar. Göngustíg-
ar hafa verið lagðir um svæðið og eru þeir mikið til bóta mið-
að við það sem áður var. Einn galli er þó á gjöf Njarðar, því
á stórstreymi flæðir yfir allt svæðið og ekki hægt að ganga
upp að fossinum þurrum fótum. Í staðinn hafa ferðalangar
brugðið á það ráð að ganga meðfram veginum með tilheyr-
andi hættu fyrir sig og aðra vegfarendur, ellegar verða blaut-
ir í fæturna.
Landað með handafli
Grænlenski togarin Polar Amaroq landaði tæplega 600 tonn-
um af frosnum fiski í Grundarfirði um miðjan ágústmánuð.
Var löndunin ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að
aflinn var allur í 18 kg öskjum sem eru lausar í lest skipsins.
Þurfti því að umstafla þeim öllum við löndunina sem tekur
langan tíma, enda kassarnir um það bil 33 þúsund talsins. Það
voru starfsmenn löndunarþjónustunnar Djúpakletts ehf. sem
sá um löndunina og flutti aflann á frystihótelið við höfnina.
HB Grandi hætti
fiskvinnslu á Akranesi
Í lok ágúst var síðasti vinnudagur í bolfisksvinnslu HB Granda
á Akranesi. Þá tóku jafnframt gildi uppsagnir þess starfsfólks
sem ekki hafði fengið vinnu innan fyrirtækisins eða hjá dótt-
urfélögum þess, né hjá öðrum fyrirtækjum. HB Grandi hætti
bolfisksvinnsla á Akranesi og færði hana í vinnsluna við Norð-
urgarð í Reykjavík 1. september. Að sögn Vilhjálms Vilhjálms-
sonar forstjóra fluttust 29 starfsmenn af Akranesi yfir í vinnsl-
una í Reykjavík og hófu þar störf. Nokkrir að auki fengu störf
hjá hrognavinnslu Vignis G Jónssonar og hjá Norðanfiski á
Akranesi. Tólf starfsmenn höfðu hvorki fengið aðra vinnu né
boð um önnur störf innan HB Granda samstæðunnar þeg-
ar vinnslunni á Akranesi lauk. En sama dag og HB Grandi
hætti bolfisksvinnslu á Akranesi var tilkynnt um kaup Ísfisks í
Kópavogi á fiskvinnsluhúsinu við Bárugötu 8-10. Upphaflega
stóð til að Ísfiskur flytti alla starfsemi sína á Akranes um næstu
mánaðamót, en nú liggur fyrir að sá flutningur verður næsta
sumar. Ísfiskur hf. sérhæfir sig í vinnslu á ýsu og þorski í neyt-
endapakkningar á markað í USA og Kína. Fyrirtækið vinnur
úr fjögurþúsund tonnum af fiski sem allur er keyptur á mark-
aði. Með kaupunum skapast rými til að tvöfalda vinnslugetu
fyrirtækisins og er því búist við aukinni starfsemi Ísfisks eft-
ir flutning á Akranes. Um fjörutíu störf fylgja starfsemi fyrir-
tækisins nú en þeim gæti fjölgað.
Hólmarar eignuðust ærslabelg
Seint í ágústmánuði tóku
íbúar Stykkishólms í notk-
un nýjan ærslabelg. Hann
er staðsettur á lóð Grunn-
skólans í Stykkishólmi, aust-
an megin við skólabygg-
inguna. Vígsla hans var lið-
ur í dagskrá bæjarhátíðar-
innar Danskra daga. Ærsla-
belgur, eða loftdýna, er leik-
tæki, niðurgrafinn belgur
sem blásinn er upp og síð-
an hoppað á eins og á tram-
pólíni. Leiktæki sem þetta er
að finna víða um land. Oftast
eru ærslabelgirnir blásnir upp á morgnana og loftinu hleypt úr
á kvöldin. Þeir eru helst notaðir yfir sumartímann en jafnan
hafðir vindlausir á vetrum.
Það var Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, sem
vígði nýja leiktækið með hoppi ásamt hópi ungra Hólmara. Af
meðfylgjandi mynd að dæma höfðu allir gaman af vígslunni
sem að henni komu, bæði bæjarstjórinn og börnin sem að-
stoðuðu hann við verkið.
Erfitt strandveiðitímabil
Fjölmargir smábátasjómenn réru á strandveiðar á liðnu sumri
eins og undanfarin ár. Undir lok tímabilsins ræddi Skessuhorn
við nokkra sjómenn sem réru frá höfnum í Snæfellsbæ. Var al-
mennt frekar þungt í þeim hljóðið eftir sumarið, meiri brælur
en á síðasta ári og lengra þurfti að róa eftir fiski. Þá var verð-
ið með eindæmum lágt framan af sumri þó það hafi aðeins
hækkað í ágústmánuði.
Tónlistarskóli Borgarfjarðar
fimmtugur
Fimmtíu ár eru síðan Tónlistarfélag Borgarfjarðar hafði frum-
kvæði að stofnun tónlistarskóla í héraðinu. Var þeim tíma-
mótum fagnað á afmælisdaginn, 7. september síðastliðinn
með opnu húsi í tónlistarskólanum og síðar með uppsetningu
skólans á söngleiknum Móglí. Var hann frumsýndur í Hjálma-
kletti í Borgarnesi í desember og fékk afar góðar viðtökur. Að
sýningunni stóðu um 70 manns á öllum aldri, bæði nemendur,
kennarar og fyrrum nemendur tónlistarskólans.
Snarlækkað afurðaverð til bænda
Afurðaverð á sauðfjárafurðum til bænda lækkaði um þriðjung
frá því á síðasta ári, og hafði þá lækkað um ein 10% frá árinu
þar á undan. Kom lækkunin illa við bændur, sem höfðu þá þeg-
ar lagt út fyrir nánast öllum kostnaði við lambakjötsframleiðslu
haustsins. Landssamtök sauðfjárbænda og Bændasamtök Íslands
kölluðu eftir aðgerðum stjórnvalda og bændur voru eðli málsins
samkvæmt þungir á brún. „Ef ekki verður hækkun afurðaverðs
á næsta ári þá er bara sjálfhætt,“ sagði Eyjólfur Ingvi Bjarnason,
bóndi í Ásgarði og formaður Félags sauðfjárbænda í Dölum, í
samtali við Skessuhorn. Davíð Sigurðsson í Miðgarði, formað-
ur Félags sauðfjárbænda í Borgarfirði, sagði að afurðastöðvarn-
ar þyrftu að huga að endurskipulagningu á sínum rekstri. „Tap-
rekstri þeirra virðist endalaust velt yfir á bændur,“ sagði hann og
Þóra Sif Kópsdóttir á Ystu-Görðum, formaður Félags sauðfjár-
bænda á Snæfellsnesi, tók í sama streng. „Þetta er vandi afurða-
stöðvanna. Reksturinn hjá þeim gengur illa og þær eru að velta
vandanum yfir á bændur.“
Eftir að afurðaverðslækkun til bænda var boðuð sprakk rík-
isstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Að
kosningum loknum tók við stjórn Sjálfstæðisflokks, Framsókn-
ar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Í stjórnarsátt-
mála nýrrar ríkisstjórnar var tilgreint að eitt af fyrstu verkefnum
hennar yrði að „bregðast við vanda sauðfjárbænda til skemmri
og lengri tíma,“ eins og þar stendur.
Bifreiðastöð ÞÞÞ
varð níræð á árinu
Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akra-
nesi fagnaði 90 ára starfs-
afmæli miðvikudaginn 23.
ágúst síðastliðinn. Fyrirtæk-
ið var stofnað 23. ágúst 1927
af Þórði Þ. Þórðarsyni og
Sigríði Guðmundsdóttur á
Hvítanesi við Kirkjubraut 16
á Akranesi. Eigendur þess í
dag eru bræðurnir Þórður Þ.
Þórðarson og Ólafur Þórð-
arson, barnabörn Þórðar og
Sigríðar. „Okkar helsta verk-
efni er að þjónusta fyrirtæki
og einstaklinga á Akranesi og í nágrenni bæjarins, eins og ver-
ið hefur alla tíð. Það er jafnframt stærsta verkefnið sem fram-
undan er,“ sagði Þórður Þ. Þórðarson í samtali við Skessu-
horn.
Framhald á næstu opnu
Fréttaannáll ársins 2017 í máli og myndum