Skessuhorn - 20.12.2017, Síða 50
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201750
Árleg kaffistofukeppni var haldin í
Grundaskóla á Akranesi föstudag-
inn 15. desember. Um er að ræða
skemmtilega hefð þar sem starfs-
fólk og nemendur breyta kaffistof-
unum sínum í einhverskonar ævin-
týraheim. Dómnefnd sker svo úr
hverjir hafa best skreyttu kaffistof-
una. Hver deild í skólanum tekur
sig til og velur þema til að skreyta
eftir en alls eru fjórar deildir sem
keppa. Mikill metnaður var í öllum
deildum og var eflaust erfitt verk
fyrir dómara að velja sigurvegara.
Ævintýraheimur á
yngsta stigi
Á yngsta stigi skólans réðu ævin-
týrin ríkjum og þegar inn á deild-
ina var komið gátu gestir horft á
teiknimynd sem sýnd var með
skjávarpa. Kaffistofan sjálf var einn
ævintýraheimur þar sem öll helstu
ævintýrin komu við sögu. Þar var
að finna rúmið hans Bangsímons,
fangelsi Hans og Grétu, heim-
ili Mikka og Mínu, sjóræningja-
skip og fleira. Þegar blaðamann
bar að garði voru börn af Garða-
seli að skoða þennan ævintýraheim
alveg heilluð á öllu sem bar fyr-
ir augu þeirra inni á þessari litlu
kaffistofu.
Malt og appelsín í
unglingadeildinni
Eigendur Ölgerðarinnar hefðu ef-
laust verið ánægðir með Unglinga-
deild Grundaskóla þennan daginn
en þar réðu malt og appelsín ríkj-
um. Starfsmenn klæddu sig upp
sem annað hvort malt- eða appels-
ínflöskur og sungu: „Ég hef elsk-
að þig frá okkar fyrstu kynnum...“
fyrir gesti og gangandi, kannski
þó mest hvort fyrir annað því eins
og allir vita elskar maltið appels-
ínið og öfugt. Þegar komið var inn
í unglingadeildina mátti sjá bæði
skemmtilega stemningu en einnig
var hægt að fá fræðslu um drykkina
tvo. Á ganginum var búið að setja
upp tímalínu þar sem segir frá því
hvenær og hvernig drykkirnir urðu
til. Inni á kaffistofu deildarinnar
var svo allt skreytt hátt og lágt með
malti og appelsíni.
Strumparnir
réðu ríkjum
Á neðstu hæð skólans höfðu list-
og verkgreinar, ásamt íþróttakenn-
urum og stjórnunarálmunni, búið
til strumpaheim. Þegar niður var
komið tók á móti fólki fallegi skóg-
urinn sem strumparnir búa í og
heimili Kjartans. Kjartan sjálfur
tók á móti gestum ásamt Æðstastr-
umpi og kettinum Brandi. Kjart-
an og Æðstistrumpur voru þó alls
engir vinir, eins og allir vita. Inni á
kaffistofunni var búið að gera sjálf-
an strumpaheiminn og mátti þar
sjá bæði strumpa og sveppina sem
þeir bú í. Strumparnir voru búnir
að setja upp og skreyta jólatréð og
gátu gestir stoppað við og dansað
fáeina hringi í kring um það áður
en þeir héldu áfram í skoðunarferð
um skólann.
Martröð fyrir
jólanótt á miðstigi
Á miðstigi tóku starfsmenn og
nemendur þetta skrefinu lengra og
voru ekki aðeins með skemmtileg-
ar skreytingar heldur nokkurskon-
ar leikþátt. Þegar inn á deildina
var komið tók á móti fólki martröð
fyrir jólanótt. Þar voru nemend-
ur og starfsmenn klæddir upp sem
draugar eða aðrar ógnvekjandi ver-
ur, sem toguðu og potuðu í gesti og
reyndu að hræða þá burt. Á kaffi-
stofunni tók á móti gestum sann-
kallaður jólaheimur, ekkert drauga-
legur. Þar var að finna fallega jóla-
skreytta kaffistofu með kökuborði
og öllu tilheyrandi. arg
Kaffistofukeppni
Grundaskóla á Akranesi
Inni á kaffistofunni á neðstu hæðinni var að finna sjálft heimili strumpanna.
Þeir sem hættu sér í gegnum ógnvekjandi ganga miðstigsins inn á kaffistofu
fengu að sjá þar jólaheim sem búið var að setja upp.
Börn af Garðaseli voru alveg heilluð af ævintýraheiminum á kaffistofunni á
yngsta stigi Grundaskóla.
Á neðstu hæð skólans var að finna strumpaland.
Heimili Bangsímons var m.a. að finna á kaffistofunni á yngsta stigi. Ekki nóg með að á miðstigi var kirkju-
garður þá mátti þar finna drauga sem
reyndu að hræða gesti.
Starfsfólk unglingadeildarinnar
klæddu sig upp sem ýmist maltflaska
eða appelsínflaska.
Malt og appelsín var meira að segja
að finna undir trénu í kaffistofunni í
unglingadeildinni.
Það var frekar ógnvekjandi að koma
inn á miðstigið.
Kjartan sjálfur tók á móti gestum í strumpalandi. Eins gott
að skólastjórinn sá hann ekki.
Á kaffistofu unglingadeildarinnar var malt og appelsín í
hávegum haft.