Skessuhorn - 20.12.2017, Síða 52
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201752
Sunnudagurinn 12. nóvem-
ber síðastliðinn er eftir-
minnilegur í marga staði
fyrir hjónin Elvar Grét-
arsson og Aðalbjörgu Öllu
Sigurðardóttur á Akra-
nesi. Þennan dag varð Elv-
ar fimmtugur og boðið var
til veislu. Það sem afmælis-
barnið vissi hins vegar ekki
var að hann var að fara að
gifta sig. Afmælisdeginum
höfðu þau ákveðið að verja
heima í rólegheitum með
börnum, tengdabörnum og
barnabörnum. Allir voru
búnir að koma sér vel fyr-
ir þegar dyrasíminn hring-
ir og Elvar var beðinn að
athuga hver væri að koma.
„Ég þekkti ekki hvaða mað-
ur var að hringja, en hann
kynnti sig sem Þráinn. Ég
opnaði og sá að upp kom
ungur maður með tösku og
hélt að þetta væri sölumað-
ur þegar hann stoppaði hjá mér.
Ég hefði viljað sjá framan í sjálfan
mig þegar Alla kom aðvífandi og
tilkynnti mér að þetta væri sókn-
arpresturinn og við værum að fara að
gifta okkur,“ rifjar Elvar upp.
Elvar segir að Alla hafi planað þetta
allt frá a-ö. „Hún sannfærði prestinn
um að koma heim, keypti
jakkaföt sem hún gaf mér
í afmælisgjöf og svo þeg-
ar presturinn mætti á svæð-
ið, var hún búin að kaupa
hringana. Dætur okk-
ar voru beðnar um að vera
vottar og yngsta barnabarn-
ið sá um að rétta hringana.
Elvar hafði ekki hugmynd
um þessa uppákomu en var
samt ekki í vafa um hvert
svarið yrði þegar bónorð-
ið var borið upp. „Prest-
urinn var samt í einhverj-
um vafa, þegar Alla tal-
aði fyrst við hann, og hafði
spurt hana hvað gerðist ef
ég segði NEI! Alla var ekki
lengi að svara prestingum
og sagði honum einfaldlega
að þá gæti hann bara jarð-
að hann!“ Því skal þó haldið
til haga að Elvar var búinn
að biðja um hönd Öllu fyr-
ir allnokkru síðan, en ekk-
ert var hins vegar búið að ákveða
um stund eða stað þessarar stóru
stundar í lífi hjónanna.
mm
Þráinn Haraldsson prestur gaf Elvar og Öllu saman á
heimili þeirra.
Fimmtíu ára afmælið breyttist
óvænt í brúðkaup
Það var margt um manninn þegar
blaðamaður Skessuhorns kom inn í
hús á Krókatúninu á Akranesi fyr-
ir stuttu síðan. Börn hlaupa um allt
húsið í leik. En þó var ekki mik-
ill hamagangur eða læti eins og við
mætti búast þegar átján börn koma
saman. Þessi átján börn eru börn
sex vinkvenna sem hafa frá átján ára
aldri haldið hópinn í „saumaklúbbi“
og saumaklúbbi innan gæsalappa
því þær viðurkenna að það hafi að-
eins einu sinni gerst að þær hafa tek-
ið upp handavinnu þegar þær hafa
hist.
Æskuvinkonur
„Við kynntumst samt sumar þeg-
ar við fæddumst, aðrar í grunn-
skóla. En við fórum að halda hóp-
inn í framhaldsskóla,“ segir Úrsúla
Guðmundsdóttir sem á eitt barn
af þeim átján sem trítla um húsið.
Hinar í saumaklúbbnum eru Elísa-
bet Stefánsdóttir sem á fjögur börn,
Margrét Egilsdóttir sem á sex börn,
Eyrún Jóna Reynisdóttir sem á tvö
börn, María Mist Helgadóttir sem á
eitt barn og Guðný Kristín Guðna-
dóttir sem á fjögur börn. Öll eiga
börnin svo feður, sem í þessu tilviki
eru einungis sex eins og mæðurnar,
en það verður að teljast óalgengt í
nútímasamfélagi.
Meðaltalið
hátt eða lágt?
Það er mikið að gerast á meðan
blaðamaður spjallar við þessar ungu
mæður sem flestar eru nýlega orðn-
ar þrítugar. Tvær þeirra gefa brjóst
á meðan við spjöllum og ein hleyp-
ur á eftir barni en hinar ná að sitja
nokkuð rólegar og spjalla. Yngsta
barnið í hópnum er lítil stúlka sem
er ekki nema fjögurra vikna gömul,
en alls fæddust þrjú börn inn í hóp-
inn á árinu 2017. „Eru þetta samt
eitthvað mörg börn,“ spyr Eyrún
Jóna. „Þetta eru að meðaltali ekki
nema þrjú börn á mann. Er það eitt-
hvað svakalegt,“ spyr hún og hlær.
„Það eru þrjár sem eiga fjórtán börn
af þessum átján,“ stingur María að.
„Það eru bara tvær sem draga nið-
ur meðaltalið!“ segir Elísabet og
skellihlær. Þótt flestar þeirra hafi
lokið barnaeignum þá eru nokkrar
sem segja að þær hafi áætlanir um að
eignast fleiri börn.
Það hefur þó sína kosti að hafa
stóran barnahóp. Mörg barnanna
eru fædd á sama ári og hafa því fé-
lagsskap hvort af öðru þegar mæð-
urnar hittast. Þær hittast þó ekki
oft með öll börnin. „Við bjóðum
í afmæli og skírn og svona,“ seg-
ir Guðný. Elísabet segir að það hafi
alltaf verið ætlunin að hittast einu
sinni á ári og taka hópmynd af börn-
unum „en það hefur aldrei geng-
ið eftir.“ Hún er þó hörð á því að
svona mót verði endurtekið að ári.
„Við stefnum að því að hafa þetta
svona árlegt.“
Þrítugsferð á þrítugasta
og fyrsta aldursári
„Annars erum við ekki saumaklúbb-
ur sem saumar,“ læðir Guðný inn í
umræðuna. „Við borðum góðan mat
og fáum andlega pásu frá börnum
og heimilisverkum,“ segir hún og
skellihlær og hinar taka undir. Allar
eru þær sammála að þetta eina kvöld
í mánuði sem þær hittast sé kærkom-
ið frí. Þá hafa þær einnig gert áætl-
anir um að fara í utanlandsferð sam-
an og hafa gefið hvorri annarri upp
í flugmiða. „Við ætluðum að fara í
lok nóvember í ár,“ segir María en
nokkuð greinilegt er hvers vegna
sú utanlandsferð gekk ekki upp þar
sem tvær þeirra hafa börn sem eru
innan við þriggja mánaða. „Þannig
að þrítugsferðin verður farin á næsta
ári,“ segir Guðný. „Við höfum tekið
loforð af hverri annarri um að eng-
in verði að fæða þegar við ætlum að
fara,“ bætir hún við og allar hina
skellihlæja. klj
Efri röð f.v.: Vignir Gauti
Guðjónsson, Arnfinnur
Guðni Ottesen, Erlingur
Orri Guðjónsson og Samúel
Kári Ottesen. Neðri röð f.v:
Þórður Ármann Ottesen,
Bryndís Jóna Ottesen,
Valey Rún Birkisdóttir,
Reynir Snær Birkisson,
Ernir Leó Helgason, Vigdís
Birna Arnþórsdóttir, Dagný
Bára Guðjónsdóttir með
Lilju Maren Guðjónsdóttir,
Jóhannes Egill Guðjónsson,
Stefán Þórarinn Jökulsson,
Fanney Alda Guðjónsdóttir,
Írena Mjöll Jökulsdóttir með
Þórunni Öldu Jökulsdóttir og
Hafdís Ylfa Jökulsdóttir.
Átján börn í einum saumaklúbbi
Guðný Kristín, Margrét, María Mist,
Eyrún Jóna, Elísabet og Úrsúla. Þrjú
yngstu börnin eru með á myndinni.