Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Síða 54

Skessuhorn - 20.12.2017, Síða 54
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201754 Þegar blaðamaður hafði samband við Jósefínu Meulengracht Dietrich, skáld og mannfræðing, fyrr í mán- uðinum og falaðist eftir viðtali fyr- ir Jólablað Skessuhorns tók hún vel í það, enda hefur margt á daga henn- ar drifið og frá mörgu að segja. Svo mörgu raunar að Jósefína taldi eðli- legast að jólablaðið fjallaði alfarið um hana. „Ég er skáldið Jósefína,“ hvæsti hún hneyksluð þegar blaðamaður tjáði henni að svo yrði ekki. Jósefína fæddist fyrst í Egypta- landi hinu forna nálægt árinu 2560 fyrir Krists burð. Þetta veit hún fyr- ir víst því hún minnist þess sem ung læða að hafa leikið sér í Giza og lapið mjólk úr lófa þrælanna sem þá voru að leggja lokahönd á hinn mikla Keopspýramída. Að sögn Jós- efínu var pýramídinn fyrsta mann- virkið sem reist var henni til heið- urs, en síðar áttu Egyptarnir eftir að reisa henni Sfinxinn, einnig í Giza. Öllu síðar kveðst Jósefína hafa verið dáð og dýrkuð í Katmandú, þar sem nú er Nepal, en fullyrðir að borg- in heiti í raun og veru Kattamandú. Nafn borgarinnar, eins og við þekkj- um það nú, sé síðari tíma afbökun og skrumskæling. Að öðrum kosti vill Jósefína lítið gefa upp um uppvöxt sinn í Egypta- landi og Kattamandú og beinir því til lesenda að bíða rólegir eftir ævisögu sinni, sem hún vinnur nú að. Hún er að vísu orðin nokkuð löng, um 200 bindi, þar sem ævi kattar telur átta líf og einu betur. Jólahundurinn vondi „Á öllu mínu æviskeiði hef ég þó aldrei kynnst eins miklum dónaskap og þegar ég var fönguð í Reykjavík og flutt í Kattholt,“ segir Jósefína og hvæsir. „Þar átti að sálga mér, sjálfri Jósefínu, en skáldagáfan varð mér til lífs. Ég er mest skálda og gat talað tvífætlingana til,“ bætir hún við. Laus úr prísundinni fluttist Jósefína bú- ferlum upp á Akranes þar sem blaða- maður hitti hana á heimili henn- ar. Allar götur síðan hefur hún ver- ið stórtæk í skáldskap svo eftir hefur verið tekið. „Ég yrki af stakri snilld um hugðarefni mín; veðrið og mýsn- ar, mjólk og ost til dæmis,“ segir hún. Jósefína sleikir loppu sína, reisir höf- uðið og mjálmar jólaljóð fyrir blaða- mann: Jólakalkún, jólanaut, jólamjólk í krúsina, jólaostinn, jólagraut, jólatréð og músina. „Ljóð þetta orti ég af snilli um kjarna jólanna, sem virðist mönnun- um gersamlega hulinn,“ segir Jósef- ína. Hún kveðst sjá jólin í réttu ljósi ólíkt mönnunum, sem hún kallar oft- ast bara tvífætlinga eða einfaldlega „það“, enda á mannskepnan ekki merkilegri titla skilið. „Ég er mann- fræðingur og rannsóknir mínar hafa allar leitt það í ljós að tvífætlingar eru skör lægri öðrum dýrum að vitsmun- um,“ segir Jósefína og færir rök fyr- ir máli sínu. „Sem dæmi um heimsku tvífætlinganna má nefna þá fásinnu að halda því fram að jólakötturinn sé köttur. Þeir hafa lapið upp eins og volga mjólk úr skál þá þjóðfræði- legu villu að jólakötturinn sé kött- ur. Það sér hver kisa að jólakötturinn getur ekki verið köttur. Kettir eru góð dýr og því getur hann ekki ver- ið köttur heldur er hann í raun hund- ur. Hundar eru verst dýra og þar með hlýtur jólakötturinn í raun réttri að vera hundur. Að tvífætlingarnir hafi gleypt við þessari rangfærslu sýnir aðeins að það er ekki fært um gagn- rýna hugsun né rökhugsun,“ seg- ir hún. Treyst fyrir örlögum heimsins Einn tvífætling, eða það, telur Jósef- ína aftur á móti bera af meðal sinnar tegundar og veltir því fyrir sér hvort ef til vill hafi hann gengið í kattaskóla. „Það er Bjarki Karlsson, mjálmfræð- ingur og skáld. Hann hefur einn manna ritað mjálmfræðiritgerð og er það mesta öndvegisrit sem tvífæt- lingur hefur ritað,“ segir Jósefína. Þá kveðst hún einnig hafa nokkrar mæt- ur á þjóðhöfðingjum á borð við Ólaf Ragnar Grímsson, Hosni Mubarak, Silvio Berlusconi og Vladimir Put- in, enda hafa þeir verið „duglegastir tvífættra fressa að merkja sér svæði,“ eins og hún orðar það. Um þetta at- hæfi tvífætlinga þessa segir Jósefína: Ótal merki á æðstu högna ítök minna og lyktina má lengi finna. Einn er þingmaður íslenskur sem Jósefína kveðst hafa miklar mætur á. Það er Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, af sömu ástæðum og greint er frá hér að ofan. Stundum fellir öldin illa dóma eins og gengur, en Sigmundur er vinur vors og blóma og vænsti drengur. Hún lýsti því raunar yfir fyrir þar- síðustu alþingiskosningar, sem voru í fyrra, að hún myndi glöð fara í stjórn- arsamstarf með Sigmundi. Flokkur Jósefínu, Minnsti flokkurinn, var þá í framboði og skipaði Jósefína sjálf tvö efstu sæti listans, annars vegar sem skáld og hins vegar mannfræðingur. Meðal áherslumála flokksins var lýð- heilsuátak undir yfirskriftinni „mús í öll mál“. Flokkurinn hefur einnig boðið fram í bæjarstjórnarkosning- um á Akranesi og einkum talað fyrir því að mótuð verði skýr hundastefna í bænum. Að slík stefna hafi ekki ver- ið mótuð fyrir löngu segir Jósefína enn einn vitnisburðinn um að þeir sem arki uppréttir um jarðkúluna séu vanvitar í einu og öllu. „Af þeim sökum var mér til dæmis falin umsjá með Higgs-bóseindinni svokölluðu og þar með örlögum heimsins. Tví- fætlingum er vitaskuld ekki hægt að treysta fyrir henni,“ segir hún. „Ég geymi hana því undir öspinni hérna í garðinum og gæti þess að hún fjúki ekki því þá ferst heimurinn,“ mjálm- ar Jósefína. „Ég er skáldið Jósefína“ Jósefína Meulengracht Dietrich, skáld og mannfræðingur. Skáldlæðan og mannfræðingurinn mjálmar stórfengleg ljóð fyrir blaðamann. Jósefína gluggar hér í nýútkomna Gamanvísnabók, sem einmitt hefur að geyma ljóð eftir hana sjálfa. Hér er Jósefína við lestur á bók um Higgs-bóseindina, sem hún geymir undir öspinni í garðinum heima hjá sér. Í miklu jólaskapi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.