Skessuhorn - 20.12.2017, Side 55
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017 55
Tvífætlingar heimskir
en brúklegir
En þrátt fyrir að tvífætlingarnir vaði
ekki í vitinu segir skáldlæðan mikla
þá engu að síður brúklega til ýmissa,
einfaldra og einhæfra verka. „Tvífæt-
linga hef ég getað notað til að létta
mér lífin, en aðeins undir styrkri
handleiðslu. Með mikilli fyrirhöfn
má til dæmis þjálfa þá til að sækja
mjólk úr ísskáp og hella í skál,“ segir
hún en þar með þrýtur hæfni manns-
ins að mestu. Jósefína drekkur mikið
af mjólk og helst engan annan vökva
nema rjóma. „Ég er eiginlega mjólka-
hólisti,“ segir Jósefína sem lætur það
vera fyrsta verk mannanna að morgni
dags að sækja henni fyrsta mjólkur-
sopann. „Ef tvífætlingarnir standa
sig vel og eru jafnvel búnir að sækja
handa mér mjólk áður en ég vakna
þá leyfi ég þeim að klappa mér. Það
geri ég til að verðlauna þá og reyna
að hvetja til þess að þeir endurtaki
leikinn,“ segir Jósefína. Hún gæt-
ir þess þó að dekra mannfólkið ekki
um of, það megi ekki fá þær grillur
í höfuðið að það geti gert hluti sem
aðeins eru köttum megnugir. „Þess
vegna hef ég aldrei treyst tvífætlingi
fyrir verki sem krefst vitsmuna. Frek-
ar nota ég Eið,“ segir hún og blaða-
maður hváir. Hver er Eiður? „Hann
Eiður Svanberg er málfarsköttur og
frændi minn. Hann er hér í fóstri
og greiðir fyrir vatnið og þurrfóðr-
ið með því að vinna sem ritari minn,“
segir Jósefína en bætir því við að það
hafi gengið fremur illa. Eiður er vit-
grannur af ketti að vera, ólæs og lep-
ur vatn úr krana. Jósefína segir hann
hreint ekki starfi sínu vaxinn. „Ég hef
verið að reyna að kenna honum að
draga til stafs en með litlum árangri.
Hann getur ekki einu sinni skrif-
að nafnið sitt. Stundum er engu lík-
ara en að Eiður sé tvífætlingur,“ seg-
ir hún vonsvikin en bætir því við að
Eiður sé þó skárri kostur til að gegna
stöðu ritara en tvífætlingur.
Bara vond dýr
sem heita Snati
Jósefína hefur vakið undrun og að-
dáun mannanna. Hún hefur verið
dugleg að birta stórfenglegan kveð-
skap sinn á Facebook-síðu sinni. Þar
fer hún stundum ófögrum orðum
um samfélag mannanna og er mjög
gagnrýnin, enda telur hún manns-
lífið innihaldssnautt og ómerkilegt
samanborið við líf kattanna. En þó
hún sé gagnrýnin mjög vex aðdáun
mannanna á skáldskap hennar jafnt
og þétt. „Tvífætlingarnir eru hús-
bóndahollir og taka skömmunum
fagnandi, þeir vita ekki betur. En
ég er sanngjörn læða og hrósa því
sem hrósa ber. Til dæmis tel ég tví-
fætlingana hafa gert eitt vel og það
er að koma á fót sérstakri nefnd um
tvífætlinganöfn, sem þeir kalla tví-
fætlinganafnanefnd eða eitthvað í
þá veruna. Þó þeir viti ekki mikið
þá höfðu þeir að minnsta kosti vit á
því. Hugsaðu þér, annars gætu tví-
fætlingar jafnvel gæti heitið Jósef-
ína!“ segir Jósefína og hlær ákaf-
lega þegar hún hugsar til slíkr-
ar fjarstæðu. „Það væri jafn fárán-
legt og ef kettir hétu Snati eða kisur
segðu voff. Það eru bara vond dýr
sem heita Snati og segja voff,“ seg-
ir hún:
Orðið voff sem vitað er
að vondir hundar kunni
af öllum ljótum orðum fer
einna verst í munni.
Eftir að Jósefína fór með vísuna
varð hún að skola munninn með
því að fá sér mjólkursopa. Svo illa
fer orðið voff í munni hennar að
það skilur eftir sig óbragð.
Fáir geta lært að þegja
Eftir að hafa mjálmað klukku-
stundum saman við blaðamann,
malað stuttlega frá lífshlaupi
sínu, hugðarefnum og flutt nokk-
ur stórbrotin ljóð fyrir blaðamann
bar hann upp spurningu um fjöl-
skyldulíf Jósefínu, sem hann lang-
aði að fá svar við. Varð þá Jósef-
ínu á orði:
Mannfólkið er merkilegt og mesta furða
hvað upp úr því sem stríður straumur
stendur mikill orðaflaumur.
Talmál flestum tekst að læra á tveimur árum
en furðulegt er frá að segja
hvað fáir geta lært að þegja.
Sló samstundis þögn á blaða-
mann, sem stöðvaði segulbands-
upptökuna og gekk frá skrifbók
sinni. Hann þakkaði Jósefínu fyr-
ir viðtalið og bjóst til að halda
heim á leið. „Sæktu nú mjólkur-
lögg úr ísskápnum áður en þú ferð
og helltu í skálina mína,“ mjálmaði
Jósefína þá. Blaðamaður gerði eins
og hún bað og honum til mikill-
ar ánægju leyfði skáldlæðan mikla
honum að klappa sér stutta stund
eftir að hún hafði lapið fylli sína.
„Það er til margra hluta nytsam-
legt, það má vel brúka tvífætlinga
til einfaldra hluta,“ segir Jósefína
Meulengracht Dietrich, skáld og
mannfræðingur, að endingu.
kgk
Sendum viðskiptavinum
og félagsmönnum okkar
bestu óskir um
gleðileg jól og farsæld á
komandi ári.
Þökkum viðskiptin á árinu
sem er að líða
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
4
Jósefína er hirðusöm
og þvær sér oft á dag.
„Umgengni lýsir innri
ketti,“ segir hún og bætir
því við að hundar séu
skítugustu dýr sem fyrir-
finnast á jörðinni.
Kennslustund hjá Jósefínu, skömmu áður en hún gafst endanlega upp á því að
kenna málfarskettinum ólæsa, Eiði Svanberg, að draga til stafs.
Jósefína mjálmar stórbrotið ljóð sem
hún hefur ort sjálf.
Gleðileg
jól
gamur.is 5775757 gamur@gamur.is
Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins óskar viðskiptavinum sínum
og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári.
Við þökkum samstarfið á liðnu ári og hvetjum Íslendinga áfram
til stórra afreka í endurvinnslumálum.
Hugsum áður en við hendum.
Starfsfólk Íslenska Gámafélagsins.