Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Side 62

Skessuhorn - 20.12.2017, Side 62
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201762 Kveðjur úr héraði Fullveldisafmælisárið 2018, sem rís um áramótin, markar fleira en 100 ára áfanga í lífi þjóðar. Þá verða 40 ár liðin frá því að við fjölskyld- an fluttum að Kleppjárnsreykjum í Reykholtsdal. Skólinn, sem við höfðum ráðið okkur að, var þá ekki nema 18 ára, rekinn af Samtökum sveitarfélaga í Borgarfirði norð- an Skarðsheiðar. Aðstaða skólans var í sókn og kraftur í uppbygging- unni, svo að líflegur tími fór í hönd. Það er notalegt að horfa til baka og virða fyrir sér, hvernig það var að koma inn í gróið samfélag og verða smátt og smátt hluti af því. Minningar og þakklæti sækja jafnan á mig þegar jólin nálgast. Þau, sem eru bæði merkileg og dásamleg. Í þeim kristallast allt það fegursta sem lífið veitir okkur. Litla Jesúbarnið, sem sigrar allt heims- ins prjál með lítillæti sínu og hrein- leika liggur í jötunni. Foreldrarnir og hjörðin öll eru á verði, líka him- intunglin. Á jólanótt greini ég jafn- an hvernig jörðin öll stöðvast and- spænis þessari tæru mynd, þar sem myrkur og kvíði víkja. Það er magnað, hverju hátíð litla barnsins og ljóssins fær áorkað með okkur mönnunum. Það hleyp- ur í okkur þvílíkt kapp að undir- búa hana. Mín forréttindi eru, að hafa fengið að lifa og starfa í fallegu sveitinni okkar, Reykholtsdalnum, og margar af mínum bestu minn- ingum eru bundnar þessum undir- búningi þar. Öll sveitin iðaði af eft- irvæntingu og spenningi á hverri aðventu, allt þurfti að gerast áður en hátíðin gengi í garð. Kirkjan markaði jafnan upphafið með fyrsta sunnudegi aðventunnar, og þá hófst umstangið fyrir alvöru. Kven- félagið hafði í þá daga unnið meira og minna allt árið að jólabasarnum í Logalandi með listrænu og gagn- legu handverki og bakstri, þar sem hvert heimili hafði sína sérgrein. Þar voru einnig góðgerðasamtök á borð við Kiwanis að selja jólapapp- ír og svo var setið yfir kaffisopa og spjalli þangað til kominn var tími til að halda heim að baka fyrstu smá- kökusortina. Í huganum bjó viss- an um að hafa lagt góðum málefn- um lið, að ágóðinn yrði notaður til að gleðja og bæta hag þeirra, sem þyrftu. Kirkjukórinn átti næsta leik með aðventustund í félagsheim- ilinu, helgistund með söng, sögum og kaffiveitingum. Gamla kirkjan leyfði ekki slíkar uppákomur. Þá voru aðventusamkomur að ryðja sér til rúms við kirkjur og það þurfti nú að lyfta Grettistaki þegar fyrsta samkoman af slíku tagi var undirbú- in. Leitað var víða liðsinnis, allt átti að ljóma. Og ljósin lifnuðu í kirkju- garðinum, og smátt og smátt fóru ljósarendur að skreyta þakskeggin. Hvergi njóta þær sín nú betur en í skammdegi dreifbýlisins. Þá störf- uðu í sveitinni tveir skólar, Reyk- holtsskóli og Kleppjárnsreykja- skóli þar sem aukið líf var í tuskun- um á þessum tíma. Litlu jólin voru undirbúin eftir föstum hefðum þar sem hver hlekkur var mikilvægur. Föndur, skreytingar, sögur, leik- rit og söngur - allt var stundað af kappi. Jólatónleikar Tónlistarskól- ans juku enn á stemninguna. Allt samfélagið tók þátt í þessum lifandi tíma, beint eða óbeint með gleði og rausnarskap. Með þeim sem unn- ið hafa að undirbúningi hátíðarinn- ar með börnum, lifir blikið í aug- um þeirra og ákafinn smitar langt fram um veg. Í gluggum skólans, sem snúa útað götunni birtast sömu myndirnar ár eftir ár og segja veg- farendum hvað klukkan slær. Þessi tími, sem er svo ríkulegur af samhjálp og samveru, náunga- kærleika og friði – veitir næringu og þrótt í mannlífið og við finn- um á eigin skinni að það er sælla að gefa en þiggja og að hin kristnu gildi veita sálarró. Á aðfangadags- kvöldinu, þar sem eftirvænting barnanna fær útrás og krafturinn, sem spennan hefur byggt upp veitir fullnægju, er gott að eiga vísan aft- ansöng kirkjunnar. Margir leggja þá leið að leiðum ástvina sinna, kveikja lifandi ljós og inni fyrir bíða hlý faðmlög sveitunganna, söng- ur og jólaboðskapurinn. Friður og fögnuður ríkir. Þessar minningar eiga sér allar samsvörun í bernskuminningun- um, og allar jólasögur greina frá því sama. Megi þessir uppbyggilegu siðir jólaföstunnar viðhaldast um ókomin ár og hátíðin framundan færa öllum nær og fjær sanna gleði og farsæld á nýju ári. Með kveðju úr Borgarfirði, Jónína Eiríksdóttir Ljósm. Björg Guðlaugsdóttir Það er magnað hverju hátíð litla barnsins og ljóssins fær áorkað Nú styttist óðum í að árið 2017 líði undir lok en það hefur að mínu mati flogið hratt hjá. Það sem stend- ur upp úr hjá mér við árslok er, að mikilvægt er að horfa sér nær, rækta sinn eigin garð og njóta hans, það þarf ekki alltaf að sækja langt yfir skammt. Þó sumarið hefði getað verið hlýrra fyrir okkur íbúa Grund- arfjarðar þá voru alveg nokkrir virki- lega góðir dagar. Ég var svo heppin að geta notað einn af blíðviðrisdög- unum til þess að ganga upp á Mýr- arhyrnuna og gat því notið útsýnis úr tæplega 600 m hæð. Náttúran hér í kring er meðal þeirra kosta við að búa í Grundarfirði. Við höfum gríð- arlega fallegan fjallgarð sem umvef- ur okkur og það er því stutt að sækja fallegar gönguleiðir við hæfi hvers og eins. Einnig má nefna Kolgrafa- fjörðinn sem iðar af dýralífi og þar má skella sér á gúmmíbát eða kajak og litast um eftir selum, höfrungum eða fljúgandi örnum. Ég hvet alla til þess að njóta þessarar stórkostlegu náttúru! Þegar líður að jólum verður mér gjarnan hugsað til þeirra sem minna mega sín. Jólin eru ekki gleðileg- ur tími fyrir alla, því miður. Fyrir suma eru þau kvíðvænleg, fyrir aðra eru þau áminning um erfiða tíma og hjá einhverjum eru þau haldin fjarri fjölskyldu og vinum. Sem betur fer eru þau tími gleði, kátínu og sam- veru fyrir flesta. Hugsum sérstak- lega vel til náungans á aðventunni, sýnum samhug og samkennd í verki, það er dýrmætara en nokkur gjöf. Njótum tímans með þeim sem eru okkur kærastir, ef við höfum tök á. Stressum okkur ekki á bakstri, jóla- kortagerð, þrifum eða öðru, jólin koma sama hvað. Með ósk um gleðileg jól og farsæld á komandi ári, Berghildur Pálmadóttir, Grundarfirði Jólin koma - sama hvað
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.