Skessuhorn - 20.12.2017, Síða 73
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2017 73
Óskum viðskiptavinum og
Vestlendingum öllum gleðilegra
jóla,árs og friðar með þökk
fyrir árið sem er að líða
Almenna umhverfisþjónustan ehf.
Grundarfirði
Nú styttist í jólin og undirbúning-
ur þeirra á lokametrunum hjá flest-
um. Það er mjög misjafnt hvernig
hann fer fram frá einni fjölskyldu
til annarrar og einnig hversu mikið
er skreytt. Í Ólafsvík býr Ingibjörg
Júlíusdóttir með fjölskyldu sinni.
Ingibjörg, eða Bjögga eins og hún
er jafnan kölluð, elskar jólin og er
mikið jólabarn. Hún skreytir mik-
ið fyrir hátíðirnar og á mikið magn
af alls kyns jólaskrauti sem hún
hefur safnað að sér á liðnum ald-
arfjórðungi. Hefur skrautið aukist
eftir því sem hús þeirra hjóna hafa
stækkað.
Aðspurð af hverju hún sé svona
mikið jólabarn segir Bjögga að
hún hafi alltaf verið svona. For-
eldrar hennar voru bæði mik-
il jólabörn og skreyttu mikið. Var
til að mynda mikið loftjólaskraut
á bernskuheimili hennar. Bjögga
segist ná í jólakassana í geymsluna
um miðjan nóvember og taka allt
úr þeim og setja upp á borð. Svo
fer hún að byrja að skreyta og gef-
ur sér góðan tíma í það. Hún setur
skrautið alls ekki á sömu staði ár
eftir ár heldur leggur hún metnað
í að allt passi saman og sé sem fal-
legast. Má vel sjá það þegar geng-
ið er með henni um húsið en hún
var langt komin að skreyta þetta
árið þegar blaðamaður heimsótti
hana á dögunum í Miðbrekkuna
þar sem býr. Segist hún stund-
um setja einhvern ákveðinn hlut á
sinn stað og breyta svo daginn eft-
ir því henni finnist hann alls ekki
eiga heima þar þetta árið.
Að skreyta er þó langt því frá það
eina sem Bjögga gerir til að undir-
búa jólin. Hún bakar smákökur og
steikir laufabrauð. Uppáhalds kök-
ur fjölskyldunnar eru rúsínukök-
urnar sem má alls ekki vanta. Einn-
ig býr hún til ís og ananasfrómans
sem hún gæðir sér á þegar hinir í
fjölskyldunni fá sér ís. Bjögga læt-
ur þó eiginmanni sínum eftir að
skreyta utanhúss þó þau séu ekki
alltaf sammála um litaval og stíl-
iseringu eins og hún segir, en hann
fær að ráða utanhúss. Henni finnst
nefnilega leiðinlegast að setja upp
seríur en leyfir þó engum að koma
nálægt neinu innanhúss og setur
þær sjálf upp þar.
En hvar fær hún allt þetta fallega
jólaskraut sem hún hefur eignast í
gegnum árin? „Maður þarf alltaf
að hugsa til jólanna,“ svarar hún
og brosir en dóttir hennar skell-
ir upp úr og segir að móðir henn-
ar finni jólaskraut alls staðar. Hún
hafi meira að segja fundið jóla-
skraut á Tenerife í ágúst eitt árið í
fjölskylduferð. Bjöggu hlakkar líka
allt árið til að komast í Jólahúsið
á Akureyri og getur hún gleymt
sér þar við að skoða. Þegar hún er
spurð hvað sé í uppáhaldi af skraut-
inu segist hún ekki geta gert upp
á milli hlutanna sinna enda hafi
hún safnað þeim á löngum tíma
og þeir séu alls staðar frá. Henni
þykir þó vænst um gömlu hlut-
ina frá mömmu sinni og það sem
hún eignaðist fyrst þó það sé ekki
endilega það fallegasta, enda hafi
sumt af því meira að segja dottið
út um glugga í snjóinn nokkrum
sinnum. Skrautið tekur hún svo
ekki niður fyrr en eftir að jólahá-
tíðinni lýkur og dregur það stund-
um aðeins til að njóta þess leng-
ur. Segist Bjögga vita fátt betra en
þegar allt er tilbúið, húsið komið í
sitt fínasta púss og meira að segja
búið að skreyta svefnherbergið og
setja jólarúmfötin á, en að setjast
niður við jólatréð með konfekt og
bók að lesa.
þa
Hún Bjögga er mikið jólabarn
Tannlæknastofa Hilmis
Berugötu 12
Borgarnesi
Jörvi ehf.
Hvann eyri
Nesafl sf
Böðvarsgötu 5
Borgarnesi
Raf nes sf.
Heiða gerði 7
Akra nesi
Smur stöð Akra ness
Smiðju völl um 2
Akra nesi
Tannlæknastofa Borgarness
Skallagrímsgötu 1 • s: 437-1690
Ungmennafélagið
Íslendingur
Borgarfirði
Þjónustustofan ehf.
Grundargötu 30
Grundarfirði
Jarðmenn ehf. vélaleiga
Borg ar byggð
Sími: 435-1238, 894-3566
Auðarskóli
Ábyrgð – Ánægja – Árangur