Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 74

Skessuhorn - 20.12.2017, Blaðsíða 74
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 201774 Handtakið er þétt hjá Sigurði Hrafni Jökulssyni bónda á Vatni þegar hann tekur á móti blaða- manni. „Ég var að vona að þú fynd- ir einhvern merkilegri en mig til að tala við. Ég er ekkert fyrir þetta sviðsljós þótt ég sé í ferðaþjónustu og svoleiðis. Held kannski að það sé af því að ég kann ekki að bugta mig og beygja, er svo lítið fyrir snobb- ið. Í veislum kann ég sem dæmi best við að vera bara einhvers stað- ar úti í horni. En þú ert samt hjart- anlega velkomin og ég skal sannar- lega tala við þig, þú hefur þetta bara lítið,“ og Sigurður skellihlær að undrunarsvip blaðamanns og bætir við. „Hér er hún María mín, sam- býliskonan sem ættuð er frá Bakka- koti í Stafholtstungum. Ég held að hún hafi viljað mig af því að líklega sér hún föður sinn í mér, skrýtinn þverhaus. Má ekki annars bjóða þér kaffi, eða viltu frekar te? Við erum að reyna að vera í hollustunni svona fyrir jólin.“ Dalamaður langt aftur í ættir Foreldrar Sigurðar eru bæði Dala- menn og sjálfur er hann fæddur þar árið 1965 og uppalinn á Vatni að mestu leyti. „Foreldar mín- ir sem tóku við búskap hér á Vatni árið 1968, af föðurafa mínum og -ömmu, komu frá Eiðum þar sem þau höfðu búið um hríð og pabbi hafði meðal annars kennt íþróttir. Hann kenndi svo bæði á Laugum og í Búðardal eftir að þau fluttu hing- að, þar til hann varð bráðkvaddur árið 1994, íþróttakennarinn sjálfur, aðeins 56 ára gamall. Þá hætti mað- ur að hugsa um hollustuna,“ seg- ir Sigurður og brosir. Ætt Sigurð- ar hefur teygt sig víða um Dali og Borgarfjörð, „Vassararnir,“ eins og hann kallar ættmenni sín en ann- ars sé ættin oft kennd við Hamar í Hörðudal. Meðal ættmenna hans er formaður Bændasamtakana, Sigur- geir Sindri Sigurgeirsson. Sigurð- ur er heldur lágvaxnari en frændinn en hann segir að karlar í hans ætt séu alla jafnan herðabreiðir og hafi þurft að hafa fyrir því. „Og hvert kíló er basl,“ segir hann hlæjandi og vill ekkert skýra það neitt frekar. Rándýrt hobbý Líklega hefur Sigurður haft einna mestan áhuga á búskap af sínum systkinum sem eru þrjú. Hann kom gjarnan heim að Vatni þegar mikið lá við eins og um sauðburð og göngur og réttir. „Þannig að þegar pabbi deyr þá kom ég heim til að aðstoða mömmu og átti enda hægast með það. Systkini mín voru í þannig störfum að erfitt var fyrir þau að losa sig. Ég var að vinna við smíðar í Reykjavík en er reyndar menntaður iðnrekstrarfræðingur. Á þessum tíma var ekki mikið fyrir þá að gera svo ég var bara að smíða og hafði raunar alltaf gert það. Ég tók ekki prófið en það hefur alveg hvarflað að mér að gera það, svona einn daginn.“ Sigurður kaupir síð- an jörð og bústofn af móður sinni árið 1998 og segist bara búa með fé fyrir mömmu. „Það er alveg rándýrt hobbý að vera með kind- ur en líklega kem ég nú betur út úr því en margir því ég eyði alveg lágmarkstíma í þetta. En vand- inn við sauðfjárræktina er sá að menn neita að horfast í augu við ástandið og taka á vandamálinu. Það eru margir aðrir í samfélaginu sem þyrftu frekar aðstoð og í þau ár sem ég hef búið hefur ástand- ið alltaf verið að lagast, að því sagt er. Útflutningurinn alltaf að fara að bera sig og svo framvegis, en samt er allt eins.“ Aðspurður hvort hann sé með þessum orðum að hnýta í frænda sinn segir hann það alls ekki vera svo. „Forysta Bænda- samtakanna er að reyna að gera sitt besta en bændur sjálfir eru bara ekki tilbúnir að horfa út fyr- ir rammann og berja enn hausnum við steininn.“ Sárafá hross Sigurður hefur mjög gaman af hrossum. Reynir að fara í hesta- ferðir og útreiðartúra hvenær sem færi gefst í sínum alltof stutta sól- arhring. Honum hefur einnig gengið ágætlega með ræktun og hlotið viðurkenningar fyrir. „Þú verður að segja að ég eigi sárafá hross, þú manst það,“ segir hann hlæjandi því vitað er að á Vatni er gríðarlegur fjöldi hrossa. „Ég er reyndar skíthræddur um að ég eigi eftir að stórefnast á þessu,“ segir hann kómískur og bætir við að um þessar mundir sé aðeins lægð í út- flutningnum. Krónan sé örlítið að stríða þeim sem standi í slíku. En þess utan sé ástandið bara þokka- legt. „Ég hef líka passað að spara ekki góða fola á það besta í hjörð- inni. Það borgar sig að vanda vel til í þessari ræktun, sem víðar.“ Ljótur svipur ef nefndur er fiskur Jörðin Vatn er 4400 hektarar að stærð og liggur meðal annars að Haukadalsá, eða Hauku eins og hún er oft nefnd. Áin kemur úr Haukadalsvatni sem Vatn á einnig hlutdeild í og Sigurður segir að það komi ljótur svipur á þá bræður ef fiskur er nefndur, ekki síst silung- ur og lax. „Pabbi gat borðað þetta í alla mata svo það var oft bleikur fiskur hér á borðum. Ástandið var næstum eins slæmt og í Borgarfirð- inum, þar sem hundarnir struku að heiman ef þeir fundu fiskilykt,“ segir Sigurður hlæjandi. Hann segist þó hafa enn minni áhuga á laxveiðum heldur en að borða fisk og eigi hvorki veiðistöng né golf- kylfur. „Ég held að afgangurinn af sólarhringnum sé betur nýttur í eitthvað annað en þetta sport. Ég keyri nefnilega líka skólabíl hérna. Erfði það starf eiginlega frá pabba. Fyrst ók ég börnum úr Haukadal í skólann sem staðsettur er í Búð- ardal. En þegar fólk hér um slóðir hætti að eignast börn fékk ég nýja leið og fer núna á Skógarströnd- ina, alla leið að Emmubergi. Það eru töluvert á annað hundrað kíló- metrar sem ég keyri daglega. En ég á nú samt börn,“ segir hann kóm- ískur, „eina uppkomna dóttur frá fyrra sambandi og svo tvo drengi með Maríu minni, 5 og 6 ára.“ Eiríksstaðir þurfa að fara í algjöra naflaskoðun Heima á Vatni eru tvö sumarhús. Þau eru ekki til útleigu fyrir ferða- menn heldur einvörðungu hugs- uð fyrir starfsfólk Eiríksstaða en Sigurður hefur rekið bæinn síð- an 2004 sem verktaki hjá Dala- byggð. „Við erum eiginlega svo- lítið útbrunnin eftir þetta sum- ar. Við tókum á móti 168 hópum frá einni ferðaskrifstofu og raunar er það alveg orðið spurning hvort við eigum ekki eingöngu að taka við hópum á Eiríksstöðum á með- an ástandið þar er óbreytt. Lausa- gangan borgar varla laun starfs- manns.“ En hvað á Sigurður við með óbreytt ástand og lausa- göngu? „Það þarf að breyta ýmsu á Eiríksstöðum. Eins og staðan er núna greiða gestir sig bara inn í húsið, ekki inn á svæðið. Það eru helmingi fleiri sem koma á hlaðið en þeir sem borga sig inn, en eru samt að nýta þjónustuna sem boð- ið er upp á eins og salernin. Eiríks- staðir þurfa að fara í algjöra nafla- skoðun. Það er of mikill kostnað- ur sem ekki koma tekjur á móti. Eftir uppgjör sumarsins erum við að sjá að við höfum eiginlega ekki haft nein laun. Það gengur ekki til lengdar.“ Lausaganga ferða- manna er hrikaleg „Þessi lausaganga ferðamanna er alveg hrikaleg og það fólk vill fá allt frítt eða fyrir mjög lítið. Kaup- ir inn í Bónus, gengur illa um og keyrir um landið á kúkakampers- bílnum eins og þeir eru kallaðir. Við hin erum bara klósettverðir og ruslakarlar fyrir þennan hóp. Bara sem dæmi frá Eiríksstöðum. Fólk sem tímir ekki að borga sig inn í bæinn kíkir inn um gluggana, rífur niður strompinn til að taka myndir, hendir ruslinu þar sem það stend- ur, fer á klósettið og greiðir ekkert fyrir. Við erum með salernin opin við Eiríksstaði allt árið. Þar inni er hlýtt og notalegt og allt mjög snyrtilegt. Við erum með miða á veggjunum á nokkrum tungumál- um þar sem við biðjum fólk mjög kurteislega um að ganga snyrti- lega um og setja eitthvað smávegis í bauk. Það skiptir engu máli. Það borgar aldrei neinn og umgengn- in er hrikaleg. En við gerum þetta vegna þess að það er skárra held- ur en að vera með mannaafurðir út um allar koppagrundir. En svo gleymir maður þessu öllu þegar koma skemmtilegir hópar og allra bestir eru Ameríkanar, það verður bara að segjast eins og er og þeir eru um 60% þeirra sem sækja Ei- ríksstaði heim. Þeim finnst aðdá- unarvert hvernig við sem þjóðfélag höfum tekið á ýmsum málum. Það er alltaf gott að heyra það. Ég hef verið í hálfgerðu lykilhlutverki á staðnum lengi og leiðsegi bæði á ensku og dönsku, en í sumar var ég sjálfur minna en oft fyrr. Það var bara annað sem var aðkallandi þetta sumarið.“ Alltaf ljóð við rúmið Sigurður segist vera mjög ánægður með uppeldið sem hann fékk, með- al annars hafi hann fengið borg- að fyrir að lesa Laxdælu á sínum tíma. Og ljóð séu einfaldlega hans uppáhald. „Ég fékk mjög menn- ingarlegt uppeldi og bókmennt- um og ljóðum var mjög haldið að „Það halda margir að ég sé vitlausari en ég er“ -segir Sigurður Hrafn Jökulsson, bóndi á Vatni í Haukadal Sigurður Hrafn Jökulsson bóndi á Vatni segist eiga sárafá hross og verst sé að hann gæti orðið stórefnaður af hrossarækt. Það er margt brallað á Eiríksstöðum. Hér er víkingurinn Sigurður Hrafn að baka yfir eldi með skólabörnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.